Heimilisritið - 01.11.1952, Page 26
markar þessa fólks, hvað heilsufarið
snertir, er að finna í taugakerfinu og
lungunum.
★
Fólk fætt 22. júní til 22. júlí.
CANCER — merki krabbans. Krabb-
anum ræður ti< ngliS, og í þessu merki
ríkir móðurtilfinningin — jafnvel þótt
um karlmenn sé að ræða. Fólk þetta cr
sannsýnt og raungott, dálítið hégóma-
gjarnt, og hjá því geta átt sér stað
snögg skapbrigði. Það er rómantískt,
dáir tónlist og er tdfinningasamt. Það er
oft hneigt fyrir áfenga drykki. Konum,
sem eru fæddar undir merki krabbans, er
sérstaklega ant um heimili sín, þær ent
oft afbragðs mæður og hjúkrunarkonur.
Hvað heilsunni við kemur, hefur fólk
þetta oft meltingartruflanir. Það er mjög
sótthrætt og því er hætt við sjúkdóm-
um.
★
Fólk fætt 23. júlí til 22. ágúst.
LEO — merki Ijónsins. Merki ljóns-
ins ræður sólin. Það er mikill munur á
hinni æðri og hinni óæðri tegund ljóns-
ins barna. Hin æðri tegund hefúr hlotið
í vöggugjöf forustuhæfileika, hún er
svipmikil og hreinskilin. Svo vel var
mönnum í fornöld og á miðöldum
kunnugt um þetta, að margar konunga-
ættir ætluðu beinlínis á um tímann er
börn þeiira skyldu fæðast, svo að þeim
auðnaðist að líta fyrst dagsins Ijós und-
jr merki ljónsins. Hin óæðri ljónategund
er fremur leiðinleg. Fólk þeirrar teg-
undar er harðúðugt, þykist alltaf hafa
á réttu að standa, og röksemdir hafa
engin áhrif á það né heilbrigð skynsemi.
— Konurnar eru ágætar húsmæður og
matreiðslukonur. Hugtakið vald er hin-
um eiginlegu „ljónsbörnum" allt, en
þau eru frekar löt og láta tíðum aðra
annast störfin.
Um heilsufar þessa fólks er það að
segja, að það á vanda til hjartabilunar
og veilur í smáæðunum þjá það oft.
Það er ckki vel til erfiðra íþrótta fallið.
★
Fólk fætt 23. ágúst til 23. september.
VIGRO — jómfrúarmerkið. Það er
um þetta merki eins og tvíburana. að
því ræður Merkúr, en á annan hátt.
Börn jómfrúarinnar eru ekki grunnfær,
þau eru hins vegar mjög djúphyggin
og nákvæm. Þau eru afbragðs vísinda-
menn, ridiöfundar og blaðamenn. Hina
alþekktu „lærðu menn" með gleraugu
og skalla er líka að finna í hópi þeirra.
Þau eru góð og hjálpfús og iðin, og að
jafnaði. cru þau mælsk og fyndin, en
fyndni þeirra er þurr og kaldhæðin.
Þeim er öll óregla mjög á móti skapi,
og þau cru oft ströng í siðferðilegum
efnum. — Konurnar láta sjaldan tilfinn-
ingamar hlaupa með sig í gönur. Marg-
ar eru þær fagrar — en fegurð þeirra
er kuldaleg.
Helztu líkamlegar veilur þessa fólks
er að finna í þörmum og taugakerfi.
★
Fólk fætt 24. sept. til 23. okt.
LIBRA — vogarmerkiÓ. Þessu merki
ræður Venns, sem hefur verið tákn feg-
urðar og yndisþokka um þúsundir ára.
Ljót Venusböm — og þau eru til —liafa
jafnvel til að bera yndisþokka svo að
um munar. Þau eru lagin og alúðleg í
framkomu. Vogin á að tákna jafnvægi.
Þrátt fyrir það geta þau verið haldin
deyfð og hringlandahætti. Mörg þeirra
eru fyrirtaks sölumenn.
Konur vogarinnar em allra kvenna
fcgurstar. Þær geta meira að segja orðið
24
HEIMILISRITIÐ