Heimilisritið - 01.10.1955, Síða 27
búning þeirra allt upp að höku.
Hirðmenn, hirðmeyjar, hirð-
sveinar og þjónar fylgdu þeim
inn til konungsins. Snöggvast
komst hreyfing á þessa dauflegu
höll. Konungurinn kyssti allar
prinsessurnar á ennið, heimsókn-
in var afar stutt, eftir stundar-
fjórðung var öllu lokið og prins-
essurnar aftur setztar við lestur-
inn.
Fjölskyldulífið stóð gersam-
lega í skugga samkvæmislífsins.
Mesta valdakonan var hvorki
drottning konungs né dóttir,
heldur ástmær hans: Madame
de Pompadour.
Hún var kölluð drottning Ro-
koko-aldarinnar, þessi hrífandi
kona, sem kunni að syngja og
spila, dansa og ríða, kunni að
klæða sig betur en allar aðrar og
öllum var snjallari í frásagnar-
list. Hún var af hertogaættum,
en henni tókst þó að láta ein-
valdsherrann lúta sér í fjölda-
mörg ár.
Nú leið að lokum þessa glæsi-
lega tímabils. María Antoinette
varð mesta áhrifakonan eftir
Madame de Pompadour. Hún
varð að flýja frá Versölum til
Trianon, og frá hinni yfirlætis-
lausu Trianon-höll í kofa með
stráþaki. Rousseau fordæmdi yf-
irborðslíf „litlu salanna", og
kenning hans um afturhvarf til
náttúrunnar átti vaxandi fylgi
að fagna. Endalokin urðu þau,
að byltingin sprengdi ríkjandi
þjóðskipulag í loft upp.
Öld konunnar var liðin, en
ekki gleymd. Talleyrand fursti
batt minningarnar um þetta
tímabil í þessi orð:
„Sá einn, sem lifað hefur und-
ir hinu gamla stjómarfari, þekk-
ir sætleika lífsins.“ *
Ráðning á ágúst-krossgátunni
LÁRÉTT: i. Amor, 5. sauma, 10.
skarf, 14. refa, 15. aflar, 16. kóra, 17.
krak, 18. umlum, 19. ólin, 20. agnasmá,
22. lausung, 24. róa, 25. farna, 26. bun-
ar, 29. fer, 30. glóir, 34. arar, 35. bút,
36. frilla, 37. rrr, 38. vos, 39. æra, 40.
alls, 41. trafar, 43. brú, 44. ígul, 45. að-
als, 46. fit, 47. frama, 48. ekill, 50. sel,
51. valsana, 54. ættatal, 58. ílát, 59.
duttu, 61. næpa, 62. siga, 63. ættin, 64.
draf, 63. anar, 66. latra, 67. Sara.
LÓÐRÉTT: 1. arka, 2. merg, 3. of-
an, 4. rakarar, 5. sauma, 6. afmá, 7. ull,
8. maular, 9. armar, 10. skósali, 11. kólu,
12. arin, 13. fang, 21. sór, 23. ungra,
25. fet, 26. barta, 27. urrað, 28. narra,
29. fús, 31. ólaga, 32. illum, 33. ralla,
35. bor, 36. frú, 38. vaska, 39. ært, 42.
flestar, 43. bil, 44. Irlands, 46. flauta,
47. fet, 49. indæl, 50. stuna, 51. vísa,
52. alin, 53. lága, 54. ætir, 55. tæra, 56.
apar, 57. lafa, 60. ttt.
OKTÓBER, 1955
25