Heimilisritið - 01.10.1955, Page 32
Danslagafextar
HIÐ UNDURSAMLEGA ÆVINTÝR
(Lag: To-morrow. — Texti: L. GuS-
mundsson. —StmgiS afHauk Mortbens,
á His Masters Voice flötn JOR214)
Allt mun ganga greitt, — á morgun
gleðihnoss þér veitt, — á morgun.
Lát því aldrei hryggðarhag
hugann buga um sólarlag,
Lífið hefur breytt um brag, — á morgun.
Sólin gyllir sund, — á morgun,
söngvar ylja lund — á morgun.
Ekkert varir ár og síð,
já, ekki heldur sorg og stríð,
þín mun bíða betri tíð, — á morgun.
Svo reifast rökkurhjúpi,
þá rós hver og ský.
Af dökkvans þögla djúpi
rís dagur á ný . . .
Þér leikur allt í lyndi, — á morgun,
þín bíður ást og yndi, á morgun.
Aldrei stund nein aftur snýr,
en yfir vonatöfrum býr
hið undursamlega ævintýr . .. á morgun.
AÐEINS ÞETTA KVÖLD
(Lag: Gigolette. — Texti: L. GuSmunds-
son. — SungiS af Steinunni Bjarnadótt-
ur, á His Master's Voice flötu
JOR2i3)
Þín er ég þetta kvöld
þú ert minn, skamma stund
meðan hljómfallið seiðir, lokkar og leiðir
léttan í dans.
Aðeins það eina kvöld,
aðeins þá fleygu stund,
meðan strengimir hljóma, bliknaðra
blóma
bindum við krans.
Er ég hvíli við barm þér,
heyri hjarta þitt slá,
tengjast andrá og eilífð
sárri saknaðarþrá.
Þín er ég þetta kvöld,
þú ert minn, fleyga stund,
þá stund, sem er Iífið, er saman við
svífum
okkar síðasta dans.
30
HEIMILISRITIÐ