Heimilisritið - 01.10.1955, Page 36
maður með þykk gleraugu. —
Sástu hvað Louise var niður-
dregin þegar hún sá hvað Sylvía
var kölluð oft fram? Sylvía varð
að lokum að draga hana með
sér fram á sviðið svo hún gæti
notið einhvers af fagnaðarlátun-
um!
Unga, ljóshærða stúlkan, sem
hann ávarpaði, hló þessum há-
væra, illkvittnislega hlátri, sem
margsinnis hefur fælt mig frá
að gifta mig.
— Auðvitað tók ég eftir því.
Það var auðséð á Louise að
henni var ljóst að hún er búin
að vera. Henni getur varla kom-
ið það á óvart, því ég var búin
að aðvara hana. „Ef þú vilt
Uyggja Þér sigurinn, máttu
aldrei samþykkja að Sylvía fái
eins gott hlutverk og þú,“ sagði
ég við hana áður en æfingamar
hófust. „Ef tvær stjörnur koma
fram á sama leiksviði hlýtur
önnur þeirra að bíða ósigur . . .
og þú ert ekki ung lengur,
Louise,“ sagði ég.
Hún þagnaði þegar hún mætti
augnaráði mínu.
— Gott kvöld, Ada, sagði ég.
— Gott kvöld Harry. Hvað
segirðu nú? Þú ert auðvitað him-
inlifandi. Nú hefur þér tekizt
það, sem þú ætlaðir þér. Þínar
glæstustu vonir hljóta að hafa
rætzt í kvöld. Ég heyrði samtal
blaðamannanna niðri við barinn.
Það er ekki vafi á að þeir hrósa
henni upp til skýjanna. Þér er
óhætt að fara að undirbúa sigur-
veizluna.
Ég kveikti mér í vindlingi.
Ég sá hálfopnar dyr neðar á
ganginum, en þær lokuðust
hægt um leið og ég leit á þær.
Það var Loise, sem hafði staðið
á hleri. . . .
Þegar aðdáendurnir voru farn-
ir gekk ég sjálfur inn í búnings-
herbergið til Sylvíu. Hún sat
við snyrtiborðið og var að lag-
færa hár sitt. Hún lét armana
síga og virti mig fyrir sér í
speglinum.
— Og hvað segirðu nú? spurði
hún.
— Að þessu sinni er ég ekki í
vafa, svaraði ég. — Þú varst
prýðileg, þú áttir leikinn.
— Átti ég leikinn?
Sylvía varð ólundarleg og
sneri sér að mér.
— Louise var ekkert á móts
við þig. Hún hvarf í skuggann,
sagði ég. Ég býst við að það sé
þetta, sem þú varst að bíða eft-
ir að ég segði.
Sylvía lyfti greiðunni og
renndi henni gegnum mjúkt,
svart hárið.
— Já, það var þetta, sem ég
vildi heyra, sagði hún.
Brún augu hennar ljómuðu
34
HEIMILISRITIÐ