Heimilisritið - 01.10.1955, Síða 41
hefur hlotið að halda að ég væri
með lausa skrúfu.
Ég ók í leigubíl til Sylvíu.
Þjónustustúlka hennar vísaði
mér inn í svefnherbergið, þar
sem Sylvía sat í rúminu og
drakk sterkt kaffi. Hún hríð-
skalf af eftirvæntingu þegar ég
dró blöðin upp úr töskunni.
— Lof mér sjá . .. lof mér sjá!
Hún reyndi að hrifsa frá mér
blöðin, en ég færði mig fjær
henni svo hún náði ekki til mín,
og svo tók ég efsta blaðið og
byrjaði að lesa.
— Þeir hafa allir sett stórar
fyrirsagnir á frásagnir sínar frá
leikhúsinu okkar, sagði ég. — En
ég er ekki viss um að þú verðir
ánægð með það, sem stendur
undir fyrirsögnunum. Hlustaðu
nú á: „Óhugnanleg árás á fræga
leikkonu... Aðalstjama Grand-
leikhússins finnst bundin og
kefluð í þvottakörfu!“ Og svo
segir: „í nótt klukkan tvö þegar
næturvörður átti leið um ganga
Grand-leikhússins heyrði hann
hálfkæfða kveinstafi frá einu
búningsherbergjanna. Hann
sprengdi upp dyrnar og það kom
í ljós, að kveinstafirnir komu
frá stórri þvottakörfu með loki,
sem var rammlæst. . . . Hann
sprengdi upp lokið og fann í
körfunni stjörnu leikhússins,
Louise Le Koy, sem einmitt
t---------------------------------
Úr einu í annað
Segðu mér hvern þú umgengst,
þá skal ég segja þér hver þú ert.
#
Vertu hvorki liunang, sem sleikt
er upp, né eitur, sem skyrpt er út
úr sér.
#
Kínverjar byrjuðu að spila á
spil 1120 árum fyrir fæðingu
Krists. Hinir fjóru litir spilanna
voru látnir tákna ársfjórðungana,
spilin voru látin vera jafnmörg
vikunum í árinu (52).
L_______________________________l
þetta sama kvöld hafði borið
frumsýninguna fram til sigurs.
Louise Le Roy var næstum alls-
nakin. Hún var bundin með
reipi svo hún gat sig hvergi
hrært, og 1 munn hennar var
troðið vasaklút svo hún gæti
ekki kallað á hjálp. . . . Þegar
fjötrarnir höfðu verið leystir af
henni skýrði hún svo frá, að
tveir menn, sem hún minntist
ekki að hafa séð fyrr, hefðu
ruðst inn í búningsklefa hennar
og keflað hana og bundið. Hin
vinsæla leikkona tók þessum at-
burði með dæmafárri ró, en mun
þó hafa fengið taugaáfall.......
„Ég dreg mig í hlé frá leiksvið-
inu um stundarsakir,“ sagði hún.
„Ég ætla að taka mér langt og:
OKTÓBER, 1955
39'