Heimilisritið - 01.10.1955, Side 45
Afríkanskur Pygmy-dvergur
Pygmy-dvergarnir eru náskyldir negr-
unum og lifa í frumskógum Kongó.
'minnsta kosti í nokkur þúsund
ár.
Af þessu leiðir, að þegar við
tölum um að ákveðið fólk til-
heyri vissum kynflokki, meinum
við það eitt, að álitlegur meiri-
hluti þess samsvari að meira eða
minna leyti þeim líkamlegu kyn-
einkennnum, sem flokkunin er
látin byggjast á.
Þegar mikill hluti einstak-
linga meðal fólksins í heild, er
allt í senn: hávaxnir, hörunds-
ljósir, bláeygir og ljóshærðir
langhöfðar, er sagt að fólkið til-
heyri Norræna kyninu, sem þessi
einkenni eiga við; rétt eins og
ef þeir eru hörundsdökkir, ull-
hærðir langhöfðar, varaþykkir
og með önnur einkenni þeirrar
manngerðar, köllum við þá
negra.
Þegar mannfræðingurinn hef-
ur rannsakað útbreiðslu slíkra
einkenna meðal íbúanna, og á-
kveðið hvaða manngerð þeir til-
heyra, verður mögulegt að rekja
ættsögu kynsins í þessu samfé-
lagi, þ. e. að ákveða hvaða áhrif
hafa orðið til að móta fólkið í
fortíðinni.
Þessi þekking er mikils virði í
félagslöggjöf og umbótastarf-
semi. Aðeins með því að þekkja
kynþætti fólksins, getum við
sagt með vissu hvaða mælikvarða
beri að leggja á þá líkamlega, og
gengið úr skugga um hvort þeir
sýni merki líkamlegs vanþroska,
dæmt um áhrif næringarskorts,
eða af óheilnæmu umhverfi eða
óhentugum og heilsuspillandi
störfum o. s. frv.
Frumkyn Evrópu
Athugum til dæmis líkams-
stærð manna, einkenni, sem
virðist mjög viðkvæmt fyrir ó-
hagstæðum lífsskilyrðum. Ef í-
búarnir eru á einu tímabili af
norrænu gerðinni, er meðalhæð
manna meiri en á öðru tímabili,
þegar Miðjarðarhafsgerðin er
OKTÓBER, 1955
43