Heimilisritið - 01.10.1955, Qupperneq 49
Evrópu, ásamt sumum en ekki
öllum íbúum Þýzkalands, nor-
rænir; íbúar Mið-Evrópu frá
Mið-Frakklandi til Austur-Ev-
rópu að meðtöldum Balkanbú-
um, eru af Alpakyni. Það er stór
þáttur Alpakyns i Þýzkalandi,
og Slavar eru að langmestu leyti
staðbundið afbrigði Alpakyns-
ins.
íbúar Suður-Evrópu eru að yf-
irgnæfandi meirihluta Miðjarð-
arhafskyn, þó allmikið blandað,
einkum í Portúgal, blandað
negrablóði, og í Grikklandi
vegna ágangs Slava, Tyrkja og
Anatolímanna, jafnframt nor-
rænum mönnum í fornöld.
Rússar eru að mestu slavnesk-
ir, en hafa fengið töluverða inn-
gjöf af blóði Asíumanna og Mon-
góla (Tartara). Þó útbreiðsla
kynflokka í Afríku sé allóljós,
er hægt að ákveða hana að
vissu marki. Norðan til er, eins
og áður getur, Miðjarðarhafs-
kyn, blandað því sérhæfða Asíu-
afbrigði þess kyns, sem kallað er
Semítar, vegna innrása Araba,
og blóðblöndun við negrana fyr-
ir sunnan.
í „svörtu“ Afríku, sem tekur
við af Sahara, og nær yfir allt
landið fyrir sunnan, er ef til vill
bezt að lýsa útbreiðslu fólksins í
sambandi við þjóðflutninga.
Elztir og rótgrónastir af núver-
andi íbúum eru Búskmenn, Suð-
ur-Afríku frumbyggjarnir, sem
nú eru næstum aldauða, auð-
þekktir af smáum vexti, þétt
hringuðu hári .og fitusöfnun á
sitjandanum, einkum áberandi
einkenni á kvenfólki og talið til
fegurðarauka. Sumir telja Búsk-
menn afkomendur, eða grein af
frumsteinaldarfólki, sem hella-
teikningarnar stafa frá, er fund-
izt hafa á Spáni. Búskmenn eru
lágvaxnir, en ekki dvergvaxnir.
Sannir Dvergmenn finnast í
Vestur- og Mið-Afríku í Kongó-
skógunum. Skoðanir eru skiptar
um það, hvort Dvergmenn eða
Búskmenn hafi verið fyrsta alda
þjóðflutninga til Afríku. Það er
margt, sem mælir með Dverg-
mönnum; hin frumstæða menn-
ing þeirra bendir á mjög fornan
stofn. Dvergmenn eru náskyldir
negrum, sem sýna aðra forna
innflytjendaöldu. Þessi hörunds-
blakka, ullhærða, varaþykka og
nefbreiða manngerð Vestur-Afr-
íku er svo kunn að hún þarfnast
ekki frekari greinargerðar.
Bantu-mælandi fólk
Náskyldir Búskmönnum eru
Hottentottar, en kynuppruni
þeirra er ekki alveg ljós. Þeir
eru taldir blendingur af Búsk-
mönnum og hávaxnari, ósjálegri
negrastofni.
OKTÓBER, 1955
47