Heimilisritið - 01.10.1955, Blaðsíða 57
það, Faðir yðar hefur gefið mér
fullt vald til þess að gera allar
þær ráðstafanir, sem ég tel nauð-
synlegar til þess að halda yður
frá greifanum.“
,.Hvað ætlið þér að gera. Far-
ið út áður en ég hringi á hjálp!“
Eins og örskot greip hann
hana og lagði yfir hné sér. Síð-
an gaf hann henni vel úti látna
flengingu með einum hárburst-
anum hennar. Fyrstu almenni-
legu flenginguna, sem hún hafði
fengið. Reiði hennar gerði hana
orðlausa. Svo sleppti hann henni
og kastaði burstanum.
.,Nú hef ég gert það, sem ég
ætlaði mér í upphafi að gera, þó
að hárbursti sé að vísu of lítið
verkfæri til þess arna. Það hefði
átt að vera hrísvöndur.“
Við dyrnar snéri hann sér við
og hélt áfram:
„Reyndar getið þér gifzt greif-
anum, ef þér viljið. Mér er ná-
kvæmlega sama. Mig varðar
ekkert um, hvað þér takið yður
fyrir hendur! Verið þér sælar!“
Hann skellti hurðinni á eftir
sér.
Viku seinna stóð Richard
frammi fyrir O’Brien og gaf hon-
um skýrslu um hina misheppn-
uðu ferð sína.
Auðjöfurinn strauk hugsandi
hökuna og leit rannsakandi á
unga manninn. „Hm. . .. Það var
leiðinlegt að ferð yðar misheppn-
aðist, en eruð þér viss um að hún
hafi misheppnazt?“
„Hvað eigið þér við, herra
O’Brien. Ég er viss um það?“
„Það vill svo til að ég veit
betur, herra Meinel,“ sagði O’-
Brien brosandi og tók upp tékk-
heftið.
„Gjörið þér svo vel, herra.
Meinel, hér eru tvö þúsund doll-
ararnir yðar,“ hélt hann áfram
og rétti Richard tékkinn.
„Ég skil þetta ekki,“ sagði Ric-
hard undrandi.
„Dóttir mín giftist ekki greif-
anum. Svona nú, takið við
tékknum. Þér hafið unnið fyrir
honum.“
„Nei,“ sagði Richard ákveðinm
„Ég vil ekki taka við peningum
yðar.“
Hann reif tékkinn og kastaði
honum í pappírskörfuna. O’-
Brien leit á hann undrandi.
„Hvers vegna gerðuð þér
þetta, ungi maður?“
„Það kemur mér einum við.“
„Aha. — Ég skil. Þér hafið
ekki staðizt. Ég aðvaraði yður
"þó, að verða ekki ástfanginn."
„Já, ég varð ástfanginn af
henni,“ svaraði Richard kulda-
lega og hélt til dyra, „en mis-
heppnaður verkfræðingur er
ekki fyrir dóttur miljónamær-
ings.“
OKTÓBER, 1955
55-