Heimilisritið - 01.10.1955, Síða 59
BRIDGE-ÞÁTTUR
S: K643
H: Á G 5
T: D 9 6
L: D 108
S: A 5
H: 9432
T: 1072
L: 6532
S: D G 10 9 7
H: 1086
T: K3
L: ÁG 9
A ga£ spil þctta og sagði 1 t., S sagði
1 sp., N 3 sp. og S 4 sp.
Þar sem litaskiptin N—S er ekki
meiri en raun ber vitni, verður að telja
sagnir þeirra í frekasta lagi, enda á sögn
þcirra ekki að vinnast.
Þó er það svo að minnsta veila í vörn-
inni gefur vinning í spilið.
V spilaði út tigul-tíu, sem S tók með
kóng og spilaði út spaða-drottningu. V
tók með ás strax (ef hann gerir það
ekki, vinnst sögnin). Nú má V engu
öðru spila en tigli til þess að hnekkja
sögninni. Ath. t. d. hjarta-útspil, sem
A fasr á drottningu og spilar sig út í
trompi, sagnhafi tekur í borði, svínar
laufi og fær þar þrjá slagi og tekur síð-
an á öll trompin og lætur tigul-níuna
úr borði í síðasta trompið. Verður A þá
að halda tigulás einum til þcss að valda
hjartað, og er honum þá spilað inn á
hann. (Opnun A gefur til kynna hvar
háspilin eru niðurkomin, eftir að V hef-
ur sýnt trompásinn). Eftir að V hefur
látið tigul í þriðja útspili, tekur A níuna
með gosanum. Nú er það A, sem má
gæta sín, því hann má engu öðru spila
út en trompi. Ef hann spilar tigulás-
strax, trompar S, fer inn í borðið á
trompkóng, tekur þrjá slagina á lauf og
svínar svo hjartanu, og þá á A ekkert
útspil. A spilar því út spaða í fjórða
slag og tekur sagnhafi með kóng £
borði, og spilar út laufdrottningu. Nú
má A ekki láta kónginn, því þá skap-
ast aukainnkoma í borði. A lætur kóng-
inn næst, ef tíunni er spilað, annars-
ekki. Eftir að sagnhafi hefur fengið
þrjá slagi á lauf, svínar hann hjartanu
og fær A á annað hjónanna, og kemur
það nú í góðar þarfir að geta spilað sig
út á tigulásinn. A fær síðan tapslagina
á hjarta.
BRIDGEÞRAUT
S: K9
H: Á8
T: 763
L: Á 5
S: —
H: D 7
T: 854
L: D 1086
S: G 10
H: —
T: D
L: K G 9 7 4 2
Grand. S á útspil. N—S fá átta slagi.
Lausn á síðustu þraut
N tekur lauftvistinn með ásnumv
tekur síðan slag í þeim lit, sem A gaf
af sér. Síðan tekur S slag á lauf, og
verður A þá að gefa frá hinum rauða
litnum. Loks tekur S slag í spaða og
lendir V þá í kastþröng.
S: 82
H: K D 7
T: ÁG854
L: K74
OKTÓBER, 1955
5T