Heimilisritið - 01.10.1955, Page 60

Heimilisritið - 01.10.1955, Page 60
Framhaldssaga eftir RUTH FLEMING Nýi herragarðs- eigandinn Bruce gekk fram og aftur um gólf og reykti hverja sígarett- una á fætur annarri. — Svo slengdi hann sér niður í stól og reyndi að lesa, en hann hafði enga eirð í sér, og nokkru seinna fór hann út í bílskúrinn og'ók út bílnum. Það myndi enginn taka til þess, þótt hann kæmi að sækja unnustu sína og það var ekki nauðsynlegt að hún dveldi svo mjög lengi, ef hún var aðeins að velja sjal úr safni frú Carnforths. Hann svipaðist um eftir bíl Maurices á hlaðinu fyrir utan húsið, en sá hann hvergi. Svo hringdi hann dyrabjöllunni, og ung stúlka opnaði fyrir honum. „Er ungfrú Kinlock hér?“ spurði hann. „Nei,“ svaraði hún, „en nú kemur frúin sjálf.“ Frú Carnforth fagnaði honum með útrétta handleggi. „Mikið er gaman að sjá yður!“ sagði hún. „Viljið þér ekki koma inn? Og hvemig líður móður yð- ar og Lindu?“ „Hefur Linda ekki komið hingað í dag, frú Carnforth?“ Hún varð undrandi á svip. „Nei, af hverju spyrjið þér?“ „Vegna þess að móðir mín var rétt áðan að segja mér, að son- ur yðar hefði komið og sótt Lindu. Hann hafði sagt að þér ættuð von á henni. Hún átti að líta á einhver sjöl hjá yður.“ „Þetta hlýtur að vera einhver misskilningur,“ sagði frú Carn- forth og varð föl í andliti. „Hann hefur ekki minnzt á það einu orði við mig, að hann ætlaði að sækja hana. Þér haldið þó ekki að eitthvert slys hafi orðið? Hver veit nema hann hafi ekið með hana eitthvert upp í sveit.“ 58 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.