Heimilisritið - 01.10.1955, Side 63
litningu í röddinni. „Tilfinning-
ar þínar til mín eiga ekkert skylt
við ást.“
„Viltu gera svo vel að halda
engar prédikanir yfir mér! Þá
vil ég heldur geðofsa og móður-
sýkisköst. Æptu bara. Það er
hvort sem er ekki til neins, því
hér heyrir enginn til þín. Gerðu
þér grein fyrir því, að þú skalt
giftast mér.“
„Það skal aldrei verða, Mau-
rice‘“
„Ég skal sýna þér að þú skipt-
ír um skoðun,“ hreytti hann út
úr sér og greip um axlir henn-
ar. „Eftir þessa nótt verðurðu
bara fegin að ég skuli vilja gift-
ast þér. Þú ert alltof stolt til þess
að láta vitnast, hvað hér hefur
gerzt, og eftir að við höfum bara
farið í svolitla brúðkaupsför,
komum við heim aftur og setj-
umst um kyrrt sem Maurice
Carnforth og frú. Það munu allir
fyrirgefa okkur, því fólki mun
skiljast með tímanum, að það
hafi verið eitthvað óvenjulega
rómantískt við ást okkar. Um
Bruce Kinlock þarftu hreint
ekkert að hugsa. Áður en hálft
ár er liðið, hefurðu áreiðanlega
gleymt honum.“
„En skilurðu ekki, að ég mun
fyrirlíta þig alla mína ævi?“
spurði hún.
„Ég verð að hætta á það, ef ég
bara fæ vilja mínum fram-
gengt,“ svaraði hann í léttum
tón og dró hana til sín.
„Bruce drepur þig!“
Hann hló.
„Svo þú heldur það. Ég hugsa
frekar að hann hafi nú fengið
hugboð um að það sé lítið á þér
að byggja. Hann telur sjálfsagt
að þú notir fullvel tækifærin til
að skemmta þér með gamla kær-
astanum.“
„En ef hann hefur nú farið á
eftir okkur?“
„Ég hugsa að hann hafi ekki
gert það, en ef svo er, mun hon-
um ekki veitast auðvelt að kom-
ast hingað inn. Sam gamli er
góður varðhundur fyrir mig og
ef hann skyldi samt ryðjast inn,
þá . . .“
Hann brosti lymskulega án
þess að ljúka við setninguna, og
Lindu grunaði allt í einu ein-
hverja hættu, sem hún hafði
ekki reiknað með. Hvað átti hún
að gera?
Þegar hún leit framan í hann,
laut hann að henni og kyssti
hana á munninn. Það fór hroll-
ur um hana, en hún stóð graf-
kyrr án þess að gera tilraun til
að verja sig.
Hann sleppti henni brátt, og
hún brosti fyrirlitlega.
„Þú bjóst kannske við að ég
myndi hrópa á hjálp og reyna
OKTÓBER, 1955
61