Heimilisritið - 01.10.1955, Side 64

Heimilisritið - 01.10.1955, Side 64
að losna frá þér? En ég ann þér ekki þeirrar ánægju, Maurice. Ég er engin skólastelpa, skaltu vita. Ég veit að ég hef enga krafta við þér, en þú skalt ekki fá þá ánægju, að ég biðji þig um grið. Nú held ég að ég fái mér svolítinn matarbita.“ Hún settist við borðið og neyddi sig til að borða. Það eina, sem hún gat gert eins og sakir stóðu, var að draga tímann á langinn eins og hún gat, í þeirri von að Bruce hefði farið að leita að henni. Maurice leit tortryggnislega á hana, og svo tæmdi hann fleiri glös af viský, meðan hann beið þess að hún lyki við að borða. Veitingamaðurinn rak inn höfuðið og sagði: „Herbergið er til reiðu, herra. Það er gott og hlýtt og allt er í lagi.“ Þegar hann hafði lokað hurð- inni á eftir sér, gekk Maurice til Lindu og greip um axlir hennar. Hann beygði sig yfir hana, og hún sló hann hnefahögg í andlitið, en hann hló hrossa- hlátur, tók hana í fangið, bar hana fram og lagði af stað upp stigann með hana. Stormurinn þaut ílandi um húsið, en skyndilega tók hjart- að í Lindu snöggan kipp. í gegn- um stormhvininn heyrði hún vélardyn bíls, sem nálgaðist, og þegar hann nam staðar fyrir ut- an með hvínandi hemlum, stanz- aði Maurice og vissi ekki hvað gera skyldi. Svo sneri hann allt í einu við í stiganum og gekk niður aftur. Þegar inn í veitingasalinn kom, lét hann Lindu lausa úr fanginu, en ýtti henni inn í barinn, sem var fyrir innan. í sama bili kom veitingamaðurinn hlaupandi. „Það er einhver að koma, herra,“ sagði hann æstur. „Mundu að það fer enginn inn,“ svaraði Maurice stuttlega. Hann sneri sér að Lindu, batt hendur hennar fyrir aftan bak með handklæði og keflaði hana með öðru. „Þú ímyndar þér kannske, að hann Bruce þinn sé að koma þér til hjálpar,“ sagði hann háðslega, „en vertu ekki alltof viss um það. Jafnvel þótt þetta sé hann, verður það þér til lítillar gleði.“ Fótatak heyrðist á útitröppun- um, og svo var barið harkalega að dyrum. Er enginn svaraði, var sparkað svo hraustlega í hurðina að það brakaði í feysknu timbr- inu. „Opnið! Ég brýt upp 'hurðina, ef ekki verður opnað!“ „Er ekki bezt ég geri eins og hann segir?“ spurði Sam angist- arlega. 62 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.