Heimilisritið - 01.10.1955, Blaðsíða 66

Heimilisritið - 01.10.1955, Blaðsíða 66
tók veitingamaðurinn. „Nei, herra.“ Bruce sá það á honum, að hann laug, og þess vegna ýtti hann kauða hispurslaust frá, tók upp vasaljós og fór að athuga dvalarkynnin. Þegar hann opn- aði dyrnar inn í barinn, var ósig- urinn því sem næst vís fyrir Maurice. Hann stóð rétt fyrir innan dyrnar með Lindu náföla í faðm- inum, en nú sleppti hann henni og sneri sér að sessunauti sín- um. Linda datt út að veggnum, en þegar Bruce gerði sig líkleg- an til að hjálpa henni, stöðvaði Maurice hann. „Gott kvöld, Kinlock,11 sagði hann eins og ekkert væri um að vera. „Hvernig gekk ferðin?“ Linda virtist ætla að segja eitthvað, en hann kreisti úlnliði hennar. „Vertu róleg, elskan mín, ég skal hafa orð fyrir okkur bæði,“ sagði hann. Það kom dálítið á Bruce, en svo sagði hann óhikað: „Ég vil gjaman fá skýringu,“ sagði hann. „Skýringu?“ endurtók Mau- rice frekjulega og lyfti brúnum. „Ég vil gjarnan fá að vita hvers vegna þér hafið farið með Lindu hingað í þessu veðri, og hvers vegna þið eruð hérna ein.“ „Það hljótið þér að skilja. Linda hefur alltaf verið hrifin af mér, og nú gerði hún sér ljóst, að hún treysti sér ekki til að giftast yður.“ Linda hné niður á stól með hendur fyrir andlitinu. Hún þorði ekki að segja orð, því þá mátti hún ganga að því vísu, að Maurice tæki skammbyssuna í notkun. Hún lyfti aðeins höfði og horfði bænaraugum á Bruce, en það var eins og hann tæki ekki eftir nærveru hennar. „Svo það er þannig, sem í þessu liggur," sagði hann. „Ég hef víst ekki annað að gera en viðurkenna að ég hef verið erki- bjálfi.“ Nú leit hann sem snöggvast til hennar. „Ég elska þig heitt og inni- lega, Linda,“ sagði hann, ,.og mér þykir leitt að þú skulir ekki hafa verið nógu hreinskilin að segja mér sannleikann.“ Linda heyrði hvernig rödd hans skalf af niðurbældri til- finningu, og hún hvíslaði nafn hans, en það var aðeins Maurice, sem heyrði hvísl hennar. Hann lagði arminn utan um hana. „Róleg, ástin. Nú veit hann hvernig þessu er varið, og þá leyfir hann okkur vonandi að hafa næturfrið." (Framhald) 64 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.