Heimilisritið - 01.10.1955, Blaðsíða 67

Heimilisritið - 01.10.1955, Blaðsíða 67
SPURNINGAR OG SVÖR (Framhald af 2. kápusíSu). skafur, og aS við á okkar aldri gclum ckki clskazt heitt í alvöru. En þá mis- skilur (>ú mig. Hcldurðu að þú getir gert nokkuÖ til þess að ég komist t sam- band við hann aftur, eða á ég að láta hann koma til mtn að fyrra bragði? Núna umgengst hann aðra stelpu, og það finnst mér óþolandi, en ég hugsa að hann viti ekki, hvað það bryggir mig. Hvað á ég að gera? Elskan mín. Hvað ertu eiginlega að liugsa? Ef ég færi að hugleiða áhyggj- ur þínar, yrði ég sjálf ringluð. Svona bemskuástir hafa að vísu sinn tilgang, en að það sé alvara á bak við þær, það er harla fráleitt — þó að bréfin, sem ég fæ um slíkt, séu ótrúlega möig — og sízt vil ég gera lítið úr áhyggjunum, sem af slíkum vonbrigðum stafa. En ef þú lest þessa dálka mína að staðaidri, muntu sjá, hversu miklu aivarlegri ást- in og hjónabandið getur verið, og hversu óútrciknanlega miklar ástasorgir geta steðjað að fullþroska fólki. SVÖR TIL ÝMSRA Svör til „Dóru': — Leitaðu til píanó- viðgerðamanna viðvíkjandi 1. spumingu og flugfélaganna varðandi 3. spurningu. Málningarblettinum nærðu vonandi af með blettavatni, eða að þú biður efna- laug um að ná blettinum úr jakkanum. Ægisíða skrifast með einu essi. Svör til „Jóntnu": —- Ef þig langar til að pilturinn bjóði þér upp, er ekki annað ráð vænna fyrir þig en að gefa honum auga og vita hvort hann tekur ekki eftir þér. Ef augnagotur þínar verka örvandi á hann, ætti árangur að nást. — Mér finnst 21 árs gömul stúlka þurfi ckki að hafa vitund af minnimáttar- kennd út af því, þótt hún sé ótxúlofuð ennþá. Flanaðu ekki að neinu. Það cr mikið í húfi, og þú skalt ckki bindast manni, sem þér er ekki geðfelldur, vegna þess eins að þú ert farin að örvænta — en auðvitað ön'æntir þú ekki nærri strax. Til „Óhamingjusamrar": — Ég myndi ekki gefa honum ástæðu til að vera afbrýðisamur, en ekki myndi það saka að þú héldir þér til og að hann yrði þess var að aðrir karlmenn hefðu áhuga á þér. Til „Ö. ]. M.“: — Gamlir árgangar af Heimilisritinu munu fást fyrir hálf- virði, en þeir síðustu eru seldir með 25% afslætti á afgreiðslunni. Til „A. M.“: — Gervifrjófgun er framkvæmd víða um heim, en hér á landi mun helzt að snúa sér til yfir- læknis fæðingadexldar Landspítalans. Til „Guss't": — Þú segir að stelpur viti ekki hvað þær vilja, — og hvernig ættu aðrir að vita það? Þetta er sjálfsagt mikið vandamál fyrir þig í dag, cn þú brosir að því eftir nokkur ár. Til „Grámanns": — Þetta er mjög leitt mál, og það getur enginn hjálpað þér, nema kannske tíminn. Það var rangt af henni að segja þér sannleikann — þér hefði liðið betur ef hún hefði þagað yfir ótryggð sinni. Hins vegar voruð þið ekki orðin hjón, þegar þctta varð, og ef til vill afsakar það hana eitthvað. Ef þú clskar hana, skaltu fyrirgefa henni, og vonandi verður allt gott aftur. Til „E. N. F.“: — Dinguvegur er ckki til í Rcykjavík, en aftur á móti er Dyngjuvegur til og mun liggja upp á Laugaráshæðina. Evx Adams HEIMILISRITIÐ kemur út mánaðarlega. — Útgáfa og afgreiðsla: Helgafcll, Veghúsastíg 7, Reykjavík, sími 6837. — Ritstjóri: Geir Gunnarsson, Baldursgötu 9, Reykjavík, sími 5314. — Prentsmiðja: Víkingsprent, Hverfisgötu 78, sími 2864. —- Verð hvers heftis er 10 krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.