Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 6
„Megnið af fötunum sem við fáum er í mjög góðu standi og við höfum reyndar verið með svolítið mikinn áróður um að ná líka í
það sem fólki finnst vera ónýtt,“ segir Örn Ragnarsson, hjá Rauða krossinum, sem sendir notuð föt úr landi í tonnavís mánaðar-
lega. Ljósmynd/Hari
Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður
hjá Þjóðminjasafni Íslands og fráfarandi
formaður Heimsminjanefndar Íslands,
hefur haft forgöngu um að hinn íslenski
torfhúsaarfur ásamt tengdu búsetulands-
lagi verði tilnefndur á heimsminjaskrá
UNESCO. Torfbæirnir eru nú á yfirlits-
skrá sem ríkisstjórn Íslands samþykkti árið
2011 að tillögu Heimsminjanefndar en þar
er að finna minjar sem til stendur að tilefna
á heimsminjaskrána. Ekki er vitað hvenær
torfbæirnir verða formlega tilnefndir en til-
nefningar eru háðar ákvörðun ríkisstjórnar
á hverjum tíma. Verið er að ljúka samnor-
rænni tilnefningu á víkingaminjum og eru
Þingvellir þar framlag Íslands en þeir hafa
raunar verið á heimsminjaskrá UNESCO
frá árinu 2004.
„Þetta snýst ekki um einn og einn torfbæ.
Við erum hér með torfhúsaarfinn sem
myndar einstæða heild, þ.e. torfhúsin sjálf,
handverkið, umhverfið og menningarsagan.
Það er langt og flókið ferli að koma minjum
á heimsminjaskrá og við þurfum að færa
rök fyrir að minjarnar og minjaheildin sé
einstök í heiminum. Torfbæirnir hafa notið
þess að vera komnir inn í þetta ferli og því
er sérstaklega gætt að allri verndun þeirra
og varðveislu á vegum Þjóðminjasafnsins,“
segir Margrét. Hún bendir á hversu dýr-
mætur torfhúsaarfurinn sé sem uppruna-
legar minjar með ríkulegt sanngildi, og
tekur til samanburðar hið gagnstæða þar
sem um eftirlíkingar er að ræða. „Dæmi
um slíkt eru fyrirhugaðar hugmyndir um
eftirlíkingu af miðaldakirkju í Skálholti. Of
mikil áhersla hefur á stundum verið á eftir-
líkingar í stað þess að stuðla að varðveislu
raunverulegra minja sem ég tel að muni
hafa mun meira aðdráttarafl að ekki sé talað
um gildi fyrir íslenska menningu. Torfhúsin
eru þegar komin á skrá yfir minjar sem yfir-
völd telja að eigi erindi á heimsminjaskrána
og ég myndi halda að það væri sóknarfæri í
því fyrir ferðaþjónustuna,“ segir hún. -eh
Forminjar Þjóðminjavörður gagnrýnir eFtirlíkingar aF Fornminjum
Vill torfbæi á heimsminjaskrá
Laufás í Suður-Þingeyjarsýslu er meðal þeirra bæja
sem eru á yfirlitsskrá Heimsminjanefndar. Ljósmynd/
Guðmundur L. Hafsteinsson. Þjóðminjasafnið
endurvinnsla rauði krossinn tekur við hverri einustu tusku
Á síðasta
ári fluttum
við út 1350
tonn.
Sendir 100 tonn af fötum
úr landi mánaðarlega
Í fyrra sendi Rauði kross Íslands 1350 tonn af fatnaði úr landi en alla jafna flytur Rauði krossinn
út um 100 tonn af flíkum úr fatasöfnun sinni til útlanda. Flokkunarfyrirtæki í Hollandi og Þýska-
landi kaupa fötin og ágóðinn rennur í hjálparstarf samtakanna. Rauði krossinn leggur mikla
áherslu á að hann taki við öllum fötum, ekki síst þeim sem fólk telur ónýt. Þær flíkur leyna
nefnilega á sér og þannig mun vera hægt að endurnýta ónýtar gallabuxur fimm sinnum.
F atasöfnun Rauða krossins hefur sótt í sig veðrið eftir samdrátt í kjölfar efnahagshrunsins. Hjálparsamtökin
senda mest af því sem safnast til útlanda og
lætur nærri að 100 tonn af fötum séu send
úr landi mánaðarlega.
„Lunginn af því sem safnast fer úr landi
og þá í tvennum tilgangi,“ segir Örn Ragn-
arsson, verkefnisstjóri hjá Rauða krossin-
um. „Annars vegar seljum við það sem við
getum ekki notað sjálf og notum svo pen-
ingana í hjálparstarfið. Síðan sendum við
nokkra gáma á ári til Hvíta-Rússlands en
það eru sérvalin og sérpökkuð föt, aðallega
fyrir smábörn og svo barnafjölskyldur.“
Rauði krossinn úthlutar fatnaði innan-
lands einu sinni í viku til þeirra sem þurfa
á að halda. „Og síðan rekum við fjórar
verslanir hérna á höfuðborgarsvæðinu og
nokkrar úti á landi,“ segir Örn og þangað
rata margar eigulegar flíkur.
Örn segir ljóst að fólk sé að verða með-
vitaðara um að föt sem það er hætt að
nota geti enn gert gagn og komi þeim í
söfnunargáma frekar en henda. „Það er
greinilegur vöxtur. Það varð náttúrlega
mikill samdráttur í hruninu en svo fór þetta
að taka við sér aftur 2010 og hefur verið á
uppleið síðan. Á síðasta ári fluttum við út
1350 tonn.“
Örn segir Rauða krossinn taka við öllu
enda séu nýtingarmöguleikarnir margir.
„Við tökum við öllu sem heitir tuska. Öllum
fatnaði alveg sama í hvaða ástandi hann er,
rúmfötum, borðdúkum og gluggatjöldum.
Bara ef það heitir tuska og sé hægt að nýta
það.“ Og það á oftast við. Ónýtar galla-
buxur er hægt að endurnýta allt að fimm
sinnum og prjónavara er rakin upp og nýr
þráður spunninn.
„Það er einhver misskilningur í gangi
sem ég sá í einhverju blaði nýlega að fötin
sem héðan væru flutt út væru urðuð. Ég
held að 95% af því sem kemur frá okkur fari
í endurnotkun.“ Örn leggur áherslu á að
Rauði krossinn þiggi flíkur sem fólk telur
ónýtar. Nærföt og brjóstahaldarar séu til
dæmis eftirsóknarverð. „Við höfum fengið
tiltölulega lítið af nærfötum en þörfin fyrir
þessar flíkur er eftir sem áður töluverð og
eftir átak í fyrra verðum við vör við það að
fólk er farið að gefa miklu meira af nær-
fötum.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
ORKA SEM ENDIST
Weetabix er frábær leið til að
byrja daginn. Veldu næringar-
ríkan morgunverð sem heldur
þér gangandi fram að hádegi. •
•
Sykurminnsta
morgunkornið
Sykurinnihald er það
lægsta sem gerist
í morgunkorni.
4,4 g sykur í 100 g
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 120578
Verið velkomin í eina glæsilegustu gleraugnaverslun landsins
Ný verslun í göngugötu
Frábærar daglinsur á sama
góða verðinu
2.800 kr.
pakkinn
KAUPUM Á
ALLRA VÖRUM
GLOSS FRÁ DIOR
Þú færð Á allra vörum glossin frá Dior á eftirtöldum sölustöðum:
Fríhöfnin, Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Debenhams, Smáralind
Lyf og heilsa um land allt
Lya um land allt
Ólöf snyrtistofa, Selfossi
Make Up Gallery, Akureyri
Sigurboginn, Laugavegi
Snyrtivöruverslunin Glæsibæ
Snyrtivöruverslanir Hagkaups um land allt
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
6 fréttir Helgin 20.-22. september 2013