Fréttatíminn - 20.09.2013, Page 9
Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » Miðasala í anddyri Hörpu » Sími: 528 5050 » Opið 10–18 virka daga og 12–18 um helgar
Hljómsveitarstjóri á tónleikum Litla tónsprotans er Bernharður Wilkinson.
Verð á korti með fernum tónleikum aðeins 6.080/7.360 kr.
Litli tónsprotinn
Áskrift að skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem ungir
tónlistarunnendur fá tækifæri til að kynnast töfrum tónlistarinnar.
Skilaboðaskjóðan
Lau. 28. sept. 2013 » 14:00 & 16:00
Heillandi, litrík og fjörug tónlist úr
ævintýrasöngleiknum Skilaboða-
skjóðunni eftir Þorvald Þorsteinsson
í nýrri útsetningu tónskáldsins,
Jóhanns G. Jóhannssonar, fyrir
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Flytjendur:
Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Jóhanna Vigdís Arnardóttir
Sigríður Thorlacius
Örn Árnason
Jólatónleikar
Lau. 14. des. 2013 » 14:00 & 16:00
Sun. 15. des. 2013 » 14:00
Tónleikarnir eru fastur liður í jóla-
undirbúningi margra fjölskyldna á
Íslandi. Hátíðleikinn heillar, með
sígildum jólalögum og klassískri ball-
etttónlist í forgrunni. Einsöngvarar
eru Sigrún Hjálmtýsdóttir og Kolbrún
Völkudóttir. Einnig koma fram ungir
hljóðfæraleikarar, kórar og dansarar.
Kynnir er leikarinn góðkunni, Gói.
Jabba-dabba-dú!
Lau. 15. feb. 2014 » 14:00
Á tónleikunum lifnar töfraheimur
kvikmyndanna við í meðförum Sin-
fóníunnar sem flytur eftirlætislögin
úr uppáhaldskvikmyndum á borð
við Mary Poppins, Stjörnustríð og
Sjóræningja Karíbahafsins. Tónlistin
öðlast nýja vídd í líflegum kynningum
leikarans Góa.
Maxímús kætist í kór
Lau. 26. apríl 2014 » 14:00 & 16:00
Nýtt ævintýri um Maxímús Músíkús
þar sem tónelska músin slæst í för
með stórum hópi kórbarna sem
syngja skemmtilega söngva og
herma eftir dýrahljóðum, Maxa til
mikillar skemmtunar. Sögumaður er
Valur Freyr Einarsson og flytjendur
með Sinfóníunni eru hinir ýmsu
barnakórar.