Fréttatíminn - 20.09.2013, Page 14
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Frétta-
stjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er
gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
A
Alþjóðlegi Alzheimersdagurinn er á morgun, laugardag.
Af því tilefni fylgir Fréttatímanum í dag sérblað Félags
aðstandenda Alzheimerssjúklinga. Full þörf er á þeirri
kynningu. Heilabilun er samheiti yfir nokkra sjúkdóma.
Eins og fram kemur hjá Birgi Óla Sigmundssyni heilsu-
hagfræðingi í sérblaðinu eru einkenni hennar margvísleg
en þau helstu eru minnisleysi, ruglingur og erfiðleikar
með tal og að skilja mælt mál. Langalgengasta tegund
heilabilunar er Alsheimerssjúkdómurinn en aðrar teg-
undir eru til. Fram kemur hjá Birgi Óla að
heilabilun byrjar að öllu jöfnu ekki að hrjá
fólk fyrr en það er komið á efri ár. Talað er
um algengi heilabilunar hjá þeim sem eldri
eru en 65 ára.
Alsheimersjúkdómurinn leggst þó einnig
á yngra fólk, allt niður í 45 ára aldur, eins og
Ragnheiður K. Karlsdóttir, varaformaður
Félags aðstandanda Alzheimerssjúklinga og
umönnunaraðili, bendir á grein í sérblaðinu.
Þau Birgir segja að allar rannsóknir sýni að
vænta megi mikillar aukningar á Alzheimer-
stilfellum næstu ár og áratugi. Vandinn sé
hins vegar sá að lítill skilningur hafi fram til þessa verið
á sjúkdómnum. Hann leggst þungt á þann veika en veikir
líka, eins og Ragnheiður rekur, alla fjölskyldu viðkomandi
og ekki síst þann sem næst hinum sjúka stendur og annast
hann. Það er binding allan sólarhringinn, allt árið.
Þótt heldur hafi miðað hérlendis undanfarin fimm
ár segir varaformaðurinn að við stöndum enn nánast á
byrjunarreit. Samfélagið verði að opna augun og ríkið
að viðurkenna að Alzheimerssjúkdómurinn og aðrir
minnissjúkdómar séu verulega stór hluti af veikindum
í heilbrigðiskerfi okkar. Með þeirri viðurkenningu móti
ríkið stefnu og komi fram með áætlun sem styðji um-
önnunaraðila og meti að verðleikum framlag þeirra. Þeir
sem heppnir eru í dag fá inni í dagþjálfun fyrir ástvini
þegar sjúkdómurinn fer að ágerast en ekki eru allir svo
lánsamir því nær 100 manna biðlisti er á flestum stöðum
á höfuðborgarsvæðinu og lítið er um slíka þjálfun á lands-
byggðinni.
Félag aðstandenda Alzheimerssjúklinga bendir á að
breytt afstaða gagnvart sjúkdómnum hafi átt sér stað í
sumum löndum í kjölfar þess að stjórnvöld tóku höndum
saman við Alzheimersfélög og heilbrigðisstarfsfólk.
Ragnheiður vill, fyrir hönd umönnunaraðila Alzheimers-
sjúklinga, forgangsraða með því að móta sem fyrst stefnu
í málum sjúklinganna og umönnunaraðila þeirra. Í annan
stað að sett verði í gang vinna við að koma upp gagna-
grunni hjá landlækni yfir fjölda greindra einstaklinga í
landinu og í þriðja lagi að opnað verði húsnæði þar sem
hægt verði að sinna umönnunaraðilum, styrkja þá og leið-
beina þeim gegnum verkefnið fram undan, líkt og Ljósið
er fyrir fjölskyldur krabbameinssjúkra.
Miðað við mannfjöldaspá Hagstofu Íslands má, að því er
fram kemur í grein Birgis Óla, sjá að fjölgun einstaklinga
frá 2013 til 2040 í hópi 67 til 80 ára verður á bilinu 99-101%
og 143-144% í hópi 80 ára og eldri. Íslenska þjóðin er að
eldast og óhjákvæmilega fylgir því, meðal annars, aukið
álag á einstaklingana og heilbrigðiskerfið vegna heilabil-
unarsjúkdóma en ágengi þeirra eykst með aldri. Miðað er
við að um 7% einstaklinga á aldursbilinu 67-80 ára þjáist af
einhvers konar heilabilun og 20-25% þeirra sem eldri eru
en 80 ára.
Beinn kostnaður mun því falla á heilbrigðiskerfið vegna
aukningarinnar þegar þessir einstaklingar þurfa dag-
vistun eða varanlega vistun á hjúkrunarheimili. Óbeinn
kostnaður fellur síðan á efnahagskerfið, eins og Birgir Óli
bendir á, þegar vinnufærir einstaklingar, sem greinast
með heilabilun, verða að hætta að vinna eða draga úr
vinnuframlagi – en ekki síður þegar aðstandendur verða
að draga úr vinnuframlagi eða yfirgefa vinnumarkaðinn
til þess að annast veikan fjölskyldumeðlim.
Kallað er eftir stefnumótun stjórnvalda til að mæta þeim
vanda sem við blasir.
Alzheimers og aðrir heilabilunarsjúkdómar
Kallað eftir stefnumótun
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3-
24
93
Kia cee’d Sportswagon EX 1,6
Árg. 2012, ekinn 19 þús. km,
dísil, 128 hö., 6 gíra,
eyðsla 4,3 l/100 km*.
Verð 3.890.000 kr.
Kia Sorento EX Luxury 4wd
Árg. 2011, ekinn 30 þús. km, 198 hö.,
dísil, sjálfskiptur, eyðsla 7,4 l/100 km*.
Verð: 6.690.000 kr.
Tilboðsverð: 6.390.000 kr.
Kia Sportage EX 4wd
Árg. 2011, ekinn 42 þús. km,
dísil, 136 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 6,9 l/100 km*.
Verð: 5.390.000 kr.
Kia picanto EX 1,2
Árg. 2012, ekinn 7 þús. km,
bensín, 84 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 5,6 l/100 km*.
Verð 2.250.000 kr.
Kia cee‘d LX 1,6
Árg. 2012, ekinn 41 þús. km,
dísil, 116 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 5,6 l/100 km*.
Verð 2.850.000 kr.
Opið virka daga kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
Kia cee’d EX 1,6
Árg. 2012, ekinn 4 þús. km,
dísil, 128 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 5,5 l/100 km*.
Verð: 3.890.0 00 kr.
* Skv. uppgefnum meðaleyðslutölum frá framleiðanda.
6 ár
eftir af
ábyrgð
6 ár
eftir af
ábyrgð
6 ár
eftir af
ábyrgð
6 ár
eftir af
ábyrgð5 ár
eftir af
ábyrgð
5 ár
eftir af
ábyrgð
Veldu notaðan Kia
með lengri ábyrgð
Kia Rio EX 1,4
Árg. 2011, ekinn 24 þús. km,
bensín, 90 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 6,4 l/100 km*.
Verð: 2.790.000 kr.
Greiðsla á mánuði
26.690 kr.
M.v. 50% innborgun og 72 mán. óverðtryggt
lán á 9,7% vöxtum. Árleg hlutfallstala
kostnaðar: 11,37%.
5 ár
eftir af
ábyrgð
VikAn sem VAr
En skoðanirnar?
Sjálfstæðisflokkurinn er mjög
ánægður með hárið á mér.
Birgitta Jónsdóttir pírati skartar
nú bláu hári við lófaklapp blárra
handa.
Leið til leiðréttingar
Vonandi sé ég ykkur, og peningana
ykkar, á Íslandi.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra og uppskar hlátur
fyrir í lok erindis síns á Iceland
Investment Forum á hótel Waldorf
Hilton í Lundúnum á fimmtudags-
morgun.
Þegar risaeðlur þrömmuðu um héruð?
Hér í eina tíð var Sjálfstæðisflokkurinn táknmynd
trausts, ráðdeildar og heiðarleika í íslenskum
stjórnmálum.
Jakob F. Ásgeirsson, ritstjóri Þjóðmála, snuprar
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins fyrir klíkuskap í
nýjasta tölublaði.
Loðið og teygjanlegt
Við misskildum hvernig þetta kvöld ætti að
vera og um leið og við sáum hvað þetta væri þá
ákváðum við að bakka út úr þessu.
Forsvarsmaður Sjallans útskýrir fyrir Akureyri
Vikublaði hvers vegna hætt var við svokallað Dirty
Night á skemmtistaðnum eftir athugasemd frá
Jafnréttisstofu.
Zzzzzzzzzzzzzzzzz........
Syfjuðu og lögfræðiskóluðu íhalds-
kerlingarnar í Útlendingastofnun
eru meira en ár að svara bréfum.
Þær vita ekkert í sinn haus og
biðja sífellt um sömu skírteinin
aftur og aftur.
Jónas Kristjánsson lætur
Útlendingastofnun fá það óþvegið á bloggi sínu.
14 viðhorf Helgin 20.-22. september 2013