Fréttatíminn - 20.09.2013, Qupperneq 20
www.odalsostar.is
Þessi margverðlaunaði ostur, framleiddur í
Mjólkursamlagi KS á Sauðárkróki frá því árið 1965,
rekur ættir sínar til danska bæjarins Maribo á Lálandi.
Það sem gefur Maribó-ostinum sinn einkennandi
appelsínugula lit er annatto-fræið sem mikið er notað
í suðurameríska matargerð. Áferðin er þétt en bragðið
milt með votti af valhnetubragði. Frábær ostur til
að bera fram með fordrykk, í kartöflugratín eða á
hádegisverðarhlaðborðið.
MARIBÓ
HLÝLEGUR
Þ
egar hausta tekur þarf ekki
bara að finna kjötsúpuupp-
skriftina hennar ömmu heldur
er tími kominn til að lokkarnir
fái að síkka fyrir veturinn. Í
sumarhitanum freistast margur karl-
maðurinn oft til að klippa hárið stutt. Það
var reyndar tilgangslaust þetta sumarið,
það kom nefnilega ekki. Því er ekki eftir
neinu að bíða. Heldur byrja að safna.
En ekki má bara setjast bara upp í sófa
og bíða eftir að hárið verði jafn sítt og
mannabrjóst á feitabollu í pólóbol. Nei,
það þarf að skipuleggja ferlið og fyrsta
mál á dagskrá er að velja stíl. Best er
að velja stíl sem hentar hártegundinni.
Einfaldast er að velja sér Hollywood-
stjörnu og spyrja klippar-
ann hvort það sé einhver
séns að enda svipaður
um kollvikin. Ef hár-
fræðingurinn er ungur
er gott að mæta með
mynd. Því það er alls óvíst
að hann viti upp á hár hver
Kurt Russell sé.
Uppvöxturinn
Þumalputtareglan er þó sú að láta toppinn og kollinn vaxa
fyrst. Ef útlitið krefur má láta síkka í hliðum og að aftan, en
ekki fyrr en kollurinn er kominn svolítið af stað. Það kann aldrei góðri
lukku að stýra að snúa dæminu við. Margur hefur brennt sig á að vera
með ýsuflaks-hár. Eitthvað sem enginn vill. Sér í lagi norðanmegin við
þrítugt.
Með síðara hári þarf að hugsa um það. Þvotturinn dugir ekki einn og
sér. Það þarf næringu. Hárnæringar eru seldar í of mörgum útgáfum til
að nýliðar skilji muninn. Því getur verið gott að prófa hjá næsta kven-
kyns heimilismeðlimi.
eigir góðan hárdag
Ef blásturs er þörf er
gott að byrja að æfa sig
þegar síddin á toppnum
nær u.þ.b. einn þriðja
hring utan um nýja
rúlluburstann. Sveigja
hárinu utan um burst-
ann með blásaranum
og halda hitanum á í
smá stund. Fjarlægja
svo blásarann en halda
burstanum á sínum stað
í nokkrar sekúndur á
meðan hárið kólnar. Þá
helst sveigjan. Passa
bara að ganga ekki of
langt. Til að enda ekki
eins og gömul kona með
vel túperað fjólublátt
hár.
Strjúka sérlagaðri gel-
blöndunni í allt hárið og
muna eftir hnakkanum
líka. Gott að fara svo í
lokin aðeins yfir kollinn
með blásarann á kald-
asta. Svona til að losna
við þetta nýgreidda
lúkk. Eins má líka stinga
hausnum út úr bílnum
á allt að 70 kílómetrum
á klukkustund til að ná
sama markmiði. Ekki er
þó endilega mælt með
því hér.
HárblástUr
Flasa er svo eitthvað sem enginn vill dreifa á axlirnar. Í
þeirri baráttu eru margir byrjaðir að stökkva á þann vagn
að þvo aldrei á sér hárið með sápu. Þetta er hörð aðgerð en
virkar oft og því tilvalið að prófa. Tekur nokkra daga upp
í vikur fyrir hárið að byrja að sjá um sig sjálft. Þannig að
ekki örvænta svona fyrst um sinn. Þótt hárið sé slímugt og
ógeðslegt.
tæki, tól og efni
Þá er komið að stóru spurn-
ingunni. Að blása eða ekki blása?
Það er jú efinn. Það þykir ekki
mjög karlmannlegt þegar upp
kemst um blástur. Það er þó svo
að þeir sem ekki eru blessaðir
af æðri mætti með fallegum
liðum þurfa að blása. Þannig
er það bara og því fyrr
sem sátt næst, því
betra. Til að allrar hreinskilni
sé svo gætt er best að kaupa
rúllubursta í leiðinni.
Nú þarf að greiða
makkann. Ekki hræðast
efnin. Sum efni haldast
klístruð á meðan
önnur harðna.
Enn önnur gefa
smá gljáa svona
eins og eftir vel
heppnaðan næt-
ursvefn. Það
er endalaust
val og um að
gera nokkrar
tilraunir
þangað til
rétta blandan
finnst.
Gel er allt gott
og blessað en með
tímanum myndar
hugurinn oft þol
gegn því. Því leiðast
sumir út í harðari efni.
Já, lesandi góður. Við
erum að tala um Varanlegt.
Permanentið er vissulega
hættulegur dans og aðeins fyrir
þá sem geta þolað hörð skot fyrstu vik-
urnar. Þetta er jú varanlegt og því oft betra að
sofa á þessari ákvörðun og brúka áfram geldoll-
una.
rétta síddin
Eitt það allra erfiðasta við að safna hári er svo að hafa vit á því
að stoppa. Þegar réttu síddinni hefur verið náð skal fara skal
nokkuð reglulega í viðhald. Bæði á þykkt og
sídd. Ekki láta blindast af eigin hári og
söfnunaráráttu. Sá sem lendir í þeim,
oft á tíðum fúla, pytti á nefnilega á
hættu að enda með sítt hár í tagli.
Sem er í raun andstæða þess að
eiga góðan hárdag.
Ég vil að þú
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
20 hár og fegurð Helgin 20.-22. september 2013