Fréttatíminn - 20.09.2013, Page 23
vel. Það er eins og ég hafi hrein
lega pantað hann úr pöntunarlista.
Hann sefur á nóttunni, er rólegur
og glaður, drekkur vel og borðar
vel.“ Miðað við hversu stilltur
hann hefur verið allt viðtalið hef
ég enga ástæðu til að efast um að
þetta sé hið fullkomna barn. „Við
giftum okkur þegar Breki var fjög
urra mánaða. Ég var kannski að
eins of bjartsýn á að ég væri komin
í gott form þá. Ég var auðvitað
rosalega grönn og í keppnisformi
áður en ég varð ólétt en ég bætti á
mig 45 kílóum á meðgöngunni. Ég
er 188 sentimetrar á hæð þannig
að þetta er ekki eins mikið og fyrir
einhvern sem er 150 sentimetra
hár en þetta var samt svolítið
mikið. Ég fékk líka mikinn bjúg.“
Ragnheiður hefur nú þegar misst
35 kíló og hefur hún lagt áherslu á
að borða hollan mat og hreyfa sig.
„Ég ákvað að vera ekkert að drífa
mig að missa þetta. Það er ekki
heilbrigt. Allir sögðu mér reyndar
að hann myndi drekka þetta af
mér en það gerðist ekki. Hann
drekkur vel en ég hef þurf að hafa
fyrir því að léttast.“ Hún hefur
skrifað niður fjölda uppskrifta sem
hún hefur búið til á undanförnum
mánuðum. „Ég borða hreinan mat,
mikið prótein, góð kolvetni og
góða fitu. Ég er ekki á fitusnauðu
eða kolvetnasnauðu mataræði. Ég
sleppi sykri og ég held að það hafi
hjálpað. Allt sem ég borða fer auð
vitað bara beint í brjóstamjólkina.
Margar vinkonur mínar eru búnar
að biðja mig um að setja upp
skriftirnar saman í bók þannig að
ég er svona að skoða það. Ég hef
í gegnum tíðina verið að blogga
um heilsu en ég er bara svo hrifin
af bókum og veit fátt fallegra en
fallega bók. Þegar ég er erlendis
get ég eytt meiri tíma í að skoða
bækur en skó.“
Andlit nýrrar förðunarlínu
Hún verður að mestu ein með
Breka þar sem Atli er nú í skipti
námi í Kína og verður þar allavega
fram yfir áramót. „Ég var að hugsa
um að fara líka til Kína en síðan
var ég ekki alveg tilbúin að fara
með litlu barnalungun í alla meng
unina þar. Atli hefur líka nóg fyrir
stafni í skólanum, öll fjölskyldan
er hér og allar vinkonur mínar.
Það varð eiginlega barnasprengja
í vinkvennahópnum þannig að við
getum hist með börnin á daginn.“
Ragnheiður er líka nýbyrjuð að
vinna með förðunarfyrirtækinu
New CID og eru auglýsingar frá
því með Ragnheiði væntanlegar.
Hún er vel kunnug fyrirsætustörf
unum enda hefur hún setið mikið
fyrir á undanförnum árum og
tengja hana væntanlega flestir við
Prodermsólarvörnina. Ég tilkynni
henni að vitanlega kaupi ég ekkert
annað en sólarvörn frá Proderm.
„Það eru líka frábærar vörur. Ég
myndi aldrei setja nafnið mitt eða
andlit við eitthvað sem er ekki
gott. New CID förðunarvörurnar
hafa fengist á snyrtistofum en
núna er merkið að fara á flug hér
á landi. Litaúrvalið er ekki alveg
bilað eins og hjá sumum þessum
stóru merkjum heldur er lögð
áhersla á að grunnurinn sé góður
og markmiðið er að laða fram
náttúrulega fegurð. Ég er mjög
hrifin af þessum vörum og það er
vissulega líka alveg hægt að leika
sér aðeins með litina.“ Ragnheiður
vinnur einnig hjá Te og Kaffi og
hefur undanfarin misseri unnið
með ömmu sinni sem framleiðir
og selur íslenskar ullarvörur undir
merkinu Mdesign.
Passar að hafa tíma fyrir
sjálfa sig
Vegna þess hversu mikið Ragn
heiður er núna ein með son sinn
hefur hún fundið fyrir því hversu
nauðsynlegt er að skipuleggja sig
til að koma hlutum í verk. „Þegar
mig langar á æfingu þá kemst ég
ekki og þegar ég kemst þá langar
mig ekki. Ég dríf mig nú samt. Ég
mæli samt ekki með því að vera
of harður við sjálfan sig. Ég var
mjög hörð við sjálfa mig á tímabili
því ég er auðvitað vön því að vera
í mjög góðu formi. Það eina sem
hefur dregið mig niður síðan hann
fæddist er að komast ekki í öll fötin
mín. Allt annað hefur gengið vel,
hann er heilbrigður og við nýgift.
Eina vandamálið er að ég kemst
ekki í gallabuxurnar mínar sem
er auðvitað ákveðið lúxusvandmál
því ég er nýbúin að eignast barn.“
Hún ráðleggur öðrum nýbökuðum
mæðrum að leyfa sér að eyða tíma
í sjálfar sig, enda er ánægð móður
að öllum líkindum betri móðir. „Ég
átti svolítið erfitt með það um tíma.
Mér fannst ég ekki mega nagla
lakka mig því það tók alveg 20 mín
útur að láta naglalakkið þorna. En
svo áttaði ég mig á að tíminn sem
ég eyddi í mig var líka dýrmætur;
að fara á kaffihús, fara í ræktina,
vera lengi í sturtu. Þetta er allt svo
vanmetið. Ég æfi alltaf í Hreyfingu
og finnst alveg frábær slökun í
raun að fara þangað á æfingu. Bláa
lónið og Hreyfing eru mínir uppá
halds staðir til að slaka á enda held
ég að ég sé eini Íslendingurinn
sem fer í Bláa lónið í hverjum mán
uði. Við búum í Garðabæ þannig að
það er svo stutt að fara.“
Það er þó ekki víst að fjölskyldan
búi í Garðabæ til frambúðar því
Ragnheiður og Atli horfa hýru
auga til útlanda. „Hann langar að
fara í meira nám úti þegar hann
er búinn með viðskiptafræðina og
mig langar líka í nám. Við höfum
skoðað Bandaríkin og Asíu en það
er ekkert ákveðið. Ég bjó um tíma
í SuðurAfríku og leið mjög vel
þar. Mér fannst líka mjög gaman
að keppa þannig að ég ætla ekki
að útiloka að ég fari aftur í það.
Þetta kemur allt í ljós.“ Þrátt fyrir
mikinn metnað Breka til að vera
stilltur er hann nú orðinn heldur
sybbinn og kominn tími á seinni
lúr dagsins. Það er því næsta mál
á dagskrá hjá mæðginunum, og
framtíðin bara kemur þegar hún
kemur.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Hann átti hins
vegar auðvelt
með að heilla
vinkonur mínar
upp úr skónum,
og mig líka.
viðtal 23 Helgin 20.-22. september 2013