Fréttatíminn - 20.09.2013, Síða 28
Uppskrúfuð andoxun
U
Um helgina er stefnt að því að fara í
sveitina og sækja eplin, sumarupp-
skeruna. Síðast þegar ég gáði voru fimm
rauðgullnir ávextir á trénu, kannski ekki
stórir – en samt epli. Ef ég ýki ekki, eins
sagt er að laxveiðimenn geri stundum
þegar þeir tjá sig um fiska sem þeir hafa
misst, þá eru eplin á stærð við þokkalegar
plómur. Vonandi hanga þau enn á epla-
trénu þegar við vitjum þeirra því haustið
fylgir í kjölfar óþurrkasumarsins og kalda
vorsins með óttalega leiðinlegu veðri.
Enn liggur ekki fyrir hvernig eplin
bragðast. Vera kann að þau séu súr – og
ljóst er að þau metta ekki marga munna.
Því er stefnt að því að baka úr þeim.
Eplakaka með þeyttum rjóma er lostæti.
Þegar að bakstrinum kemur treysti ég því
að aðrir en ég stýri verkinu. Ég mun hins
vegar fylgjast vel með til þess að læra
handbragðið, verði uppskeran betri næsta
sumar. Eplalundurinn er ekki stór, aðeins
tvö tré og annað bar ekki bar ávöxt, enda
hálf ræfilslegt. Óvíst er að það lifi vetur-
inn af, verði hann í líkindum við aðrar
árstíðir þessa árs. Til stóð að fjölga epla-
trjám í lundinum en við urðum of sein.
Síðustu eplatré sumarsins voru auglýst
með 70 prósent afslætti. Það virðist hafa
hrifið því þegar ég mætti í verslunina
til að ná í viðbót voru þau uppseld. „Þú
verður að bíða fram á næsta vor,“ sagði
búðarþjónn, rétt eins og hann væri að tala
við amatör en ekki eplabónda sem biði
uppskeru sinnar.
Ekki er með góðu móti hægt að halda
því fram að við hjónin séum sjálfum
okkur nóg um grænmeti og ávexti, þrátt
fyrir tilraunir í þá átt. Gulrótarfræ sem
við höfum sáð að vori hafa aldrei þroskast
almennilega. Betur gengur með kál af
ýmsum gerðum. Það dugar í nokkur mál.
Radísur hafa sprottið en okkur hefur
hætt til að taka þær of seint upp. Því hafa
þær trénað. Rifsberjatrén okkar standa
svo sem fyrir sínu – en eru aðeins þrjú.
Því er uppskeran takmörkuð. Staðið
hefur til að fjölga þeim svo sulta fáist með
jólarjúpunni en það hefur farist fyrir.
Ber höfum við ætlað að tína í mörg ár,
ekki síst aðalbláber sem bera af öðrum
og nútímavísindi segja að séu ofurfæða.
Ekkert hefur þó orðið af því. Við vorum
ákveðin að fara í berjamó í haust en það
hefur rignt allar helgar svo við höfum set-
ið heima. Ég átti hins vegar erindi vestur
á firði um liðna helgi. „Notaðu lausa
stund, ef hún gefst, til að tína ber,“ sagði
konan. Hún var þó vonlítil um árangur,
þekkir sinn mann og hefur reynslu af
því að hann er lélegur berjatínslumaður.
Þess utan var veðurspáin slæm, að vanda,
auk þess sem grunur lék á að næturfrost
hefði skemmt þau ber sem þó höfðu, þrátt
fyrir votviðri og sólarleysi, látið sjá sig.
Færi á berjatínslu gafst dagstund þegar
upp stytti. Báðar systur mínar voru með
í för, vopnaðar tínum og fötum. Ég var
hvorki með tínu né fötu en fann til tóman
skrúfupakka og greip með mér í móinn.
Berin höfðu sloppið þótt ljóst mætti vera
að þau þyldu ekki marga óveðursdaga
til viðbótar. Ég heyrði þegar systurnar
tæmdu úr tínunum í fötur sínar. Hægar
gekk hjá mér. Það var helst að fingurnir
lituðust vínrauðir af viðkvæmum aðalblá-
berjunum þegar ég stakk stöku beri í
skrúfupakkann. Rúmmál hans var lítið.
Hætt var við að afraksturinn yrði ekki til
að hrópa húrra fyrir.
Milli þess sem ég greip ber og ber á
stangli settist ég á þúfu og horfði út á
fjörðinn, yfir hólma og sker og gleymdi
mér þannig í berjatínslunni, rétt eins og
eiginkonu mína hafði grunað. Það er þó á
við heilsusamlegt andoxunarefni berja að
slaka á með þeim hætti í náttúrunni, í laut
í skjóli fyrir haustvindum. Systurnar voru
hins vegar ekki eins draumórakenndar
og héldu sig að verki. Það hækkaði stöð-
ugt í fötunum hjá þeim þótt lítið bættist í
skrúfupakkann minn.
Hið smáa er fagurt, ekki síður en það
stóra, fjörðurinn og hólmarnir. Það sá ég
þegar ég rýndi í gróðurinn allt í kringum
mig. Berjaþúfurnar voru svartar eða
bláar, með grænu, gulu og rauðu ívafi
lyngsins. Það var að skrýðast haustbún-
ingi, ekki síður en trén ofar í hlíðinni.
Vatn seytlaði alls staðar í kringum mig.
Vætutíð sumarsins og haustsins sá til
þess. Sprænur voru í öllum skorningum
og lækir með fjörugasta móti. Smyrill
æfði flugkúnstir og á flös hvíldu tveir selir
og biðu þess að yfir hana flæddi.
Það var því lítið í skrúfupakkanum
þegar systurnar kölluðu og sögðu að
tímabært væri að leggja í hann, kannski
botnfylli af aðalbláberjum. Þær roguð-
ust hins vegar af stað með fullar fötur,
andoxunarefni og aðra hollustu fyrir sig
og sína. Lítið hafði ég hins vegar fram að
færa þegar heim kæmi.
„Ansi er þetta rýrt,“ sögðu systurn-
ar þegar þær kíktu ofan í skrúfupakka
bróður síns, „þér er greinilega margt
betur gefið en úthald til berjatínslu. Þetta
gengur ekki.“
Að því sögðu fundu þær til vænt
plastbox með loki, gripu skrúfupakkann
og tæmdu lítilræðið úr honum í boxið
og fylltu það síðan með berjum af sinni
gnótt. „Taktu þetta, það er ómögulegt að
þú komir tómhentur heim.“
„Ansi varstu duglegur, elskan,“ sagði
konan þegar ég gaukaði að henni berja-
boxinu við heimkomuna, „þér hefur svo
sannarlega farið fram í berjatínslunni.
Hver hefði trúað því?“
Eplin fimm í kökunni verða skreytt
með nýjum aðalbláberjum. Ég segi kon-
unni seinna hver tíndi þau.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
NÝTT
Nicotinell er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Nicotinell Spearmint 2 mg og 4 mg lyfjatyggigúmmí. Inniheldur nikótín. Ábendingar: Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið
dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og
auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Skammtar fyrir fullorðna 18 ára og eldri:
Skammta skal ákvarða út frá því hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Mælt er með 4 mg lyfjatyggigúmmíi fyrir
einstaklinga með mikla nikótínþörf og fyrir þá sem ekki hefur tekist að hætta með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Ef þú
reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring má miða við notkun 4 mg, 20-30 sígarettur/sólarhring er miðað við 2 eða 4 mg eftir
þörf en ef reykt er minna en 20 sígarettur á sólarhring er æskilegt að nota 2 mg. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri
skammtsins (4 mg lyfjatyggigúmmí), skaltu íhuga minni skammt í staðinn. Tyggja skal eitt stk við reykingaþörf þar til finnst
sterkt bragð. Þá skal láta það hvíla milli kinnar og tannholds. Þegar sterka bragðið minnkar skal tyggja aftur. Þetta skal
endurtaka í 30 mín. Venjuleg notkun er 8-12 stk, þó ekki fleiri en 15 stk af 4 mg og 25 stk af 2 mg lyfjatyggigúmmíi á
sólarhring. Meðferðarlengd er einstaklingsbundin en skal í flestum tilfellum standa í a.m.k. 3 mánuði, skal þá draga smám
saman úr notkun lyfjatyggigúmmísins. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 lyfjatyggigúmmí á sólarhring.
Venjulega er ekki mælt með notkun lyfsins lengur en í eitt ár. Sumir, sem eru hættir að reykja, gætu þó þurft lengri meðferð
til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Geyma skal afgangs lyfjatyggigúmmí þar sem reykingaþörf getur skyndilega
komið upp aftur. Ráðgjöf getur aukið líkurnar á því að reykingafólk hætti að reykja. Nota má lyfið til að lengja reyklaus
tímabil og draga þannig úr reykingum. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígaretta á sólarhring eftir 6 vikur skal leita faglegrar
ráðgjafar. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er reiðubúin til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð.
Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Frábendingar: Ofnæmi fyrir
nikótíni eða einhverju hjálparefnanna, reykleysi. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing því ekki er víst að þú megir nota
lyfið ef þú: ert á meðgöngu eða með barn á brjósti, hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp, ert með hjarta- eða
æðasjúkdóm, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, magasár eða verulega skerta nýrna- og/eða
lifrarstarfsemi eða ef þú ert yngri en 18 ára. Einstaklingum með gervitennur og þeim sem eiga í erfiðleikum með að tyggja
tyggigúmmí er ráðlagt að nota önnur lyfjaform nikótínlyfja. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol skulu ekki nota lyfið.
Athuga ber að lyfið inniheldur natríum og bútýlhýdroxýtólúen (E321). Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað
er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Jafnvel lítið magn
af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfishafi: Novartis Consumer
Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
®
Loksins
á Íslandi!
Nicotinell með
Spearmint bragði
- auðveldar þér að
hætta reykingum
28 viðhorf Helgin 20.-22. september 2013