Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 52
Í takt við tÍmann Baldvin Þormóðsson
Hættur að nota sjampó
Baldvin Þormóðsson er 19 ára Garðbæingur sem útskrifaðist úr MH í vor og var að hefja nám í viðskiptafræði í HÍ. Baldvin hefur unnið í Herrafataverslun Kormáks og
Skjaldar síðan hann var unglingur og það mótar fatastíl hans. Uppáhaldskvikmynd Baldvins er 60 ára gömul og hann er Dominos-maður þegar kemur að pítsum.
Staðalbúnaður
Fatastíllinn minn er margbreytilegur, ég er mikið fyrir
peysur en ég er oftast líka frekar fínn. Nú er haustið komið
og þá er ég kominn í góða skó og ullarsokka en er samt í
fínni skyrtu við. Haust og vetur eru uppáhalds árstíðirnar
mínar, þær henta mínum stíl. Ég er ekki í alveg nógu góðu
formi til að vera á hlýrabolnum á sumrin. Ég er að vinna í
Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar um helgar og hef
gert það í nokkur ár. Áður en ég byrjaði í búðinni var ég
með sítt hár og spangir og gekk í Korn-bol. Ég var bara
settur inn á lager fyrst um sinn. Nú kaupi ég langmest af
fötunum mínum þar en ég versla líka í GK Reykjavík og
Spútnik. Mér finnst fataúrval hér á landi mjög gott og hér
eru frábær íslensk fatamerki. Mér finnst miklu skynsam-
legra að safna peningum og kaupa eina góða flík hér held-
ur en að kaupa tíu flíkur í H&M sem allir eiga. Uppáhalds-
flíkin mín er Harris Tweed jakki úr Kormáki og Skildi.
Hann virkar við öll tilefni. Það er gott skóúrval í Kron og
ég versla þar. Það er ekkert að því að eiga gott skósafn,
strákar vanmeta oft skóbúnað.
Hugbúnaður
Það fer eftir stemningunni hvert kvöld hvar ég djamma
en ég fer mikið á Prikið og Dollý og svo getur verið gott
að byrja kvöldið á Kaldabar. Eftir að ég fór að djamma
með eldra fólki hef ég líka farið svolítið á Boston. Eitt
eftirminnilegt kvöld þar stóð pabbi vinar míns við
barinn að drekka kampavín. Bestu kvöld lífs míns
eru samt undantekningarlaust á karókístaðnum Live
Pub. Uppáhaldsdrykkurinn minn er Einn klassíkur á
Prikinu. Ég fæ mér hann alltaf en veit ekki enn hvað
er í honum. Ég er í skóla og í hlutastarfi á Fíton og hjá
Kormáki og Skildi svo ég hef ekki mikinn tíma fyrir
margt annað. Ég hef eiginlega bara tíma seint á kvöld-
in og þá horfi ég mikið á bíómyndir. Ég tek stundum
æði, eina vikuna horfði ég bara á Sci fi-myndir og
svo horfði ég á rómantískar gamanmyndir vikuna á eftir.
Uppáhaldskvikmyndin mín er How to Marry a Millionaire
með Betty Grable og Marilyn Monroe frá 1953, það er hin
fullkomna mynd. Ég hef ekki gefið mér tíma til að byrja að
horfa á Game of Thrones, Breaking Bad eða Orange is the
New Black. Þegar ég horfi á sjónvarpsþætti horfi ég bara
aftur og aftur á Seinfeld.
Vélbúnaður
Ég hef átt Macbook Pro í þrjú ár og vinn
mikið á hana. Henni var reyndar einu
sinni stolið en ég fékk hana aftur
eftir þrjá mánuði. Hún var í fínu lagi
en það var skrifaður diskur í drifinu
með hörðustu teknótónlist sem ég hef
nokkurn tímann heyrt. Svo er ég með
iPhone eins og allir aðrir en ég
nota hann mest í Hungry Shark
Evolution. Það er geggj-
aður leikur!
Aukabúnaður
Ég hef gaman af góðum mat. Á Snaps bistro er geggjað
að fá sér andalifur og djúpsteikti kjúklingurinn á Nora
Magazine er góður. Annars reyni ég að vera lítið í skyndi-
bitanum. Nema í pítsum á sunnudögum og ég ætla ekkert
að reyna að láta eins og ég panti á Eldsmiðjunni. Ég panta
bara á Dominos. Ég hætti að nota sjampó fyrir löngu
síðan og hárið mitt hreinsar sig sjálft. Einu snyrtivörurnar
sem ég nota eru JS Sloane brilljantínvaxið sem góður
vinur minn, Smutty Smiff, framleiðir. Ég fer til útlanda á
hverju ári með Hamrahlíðarkórnum. Í fyrrasumar fór ég í
mánaðarferð um helstu stórborgir í Suður-Evrópu og end-
aði á Costa del Sol í útskriftarferð. Þar var mikið borðað
og drukkið. Í þessari ferð smakkaði ég tartar í fyrsta og
síðasta sinn.
Baldvin Þormóðsson er nemi
í viðskiptafræði við HÍ með
áherslu á markaðsfræði.
Ljósmynd/Hari
appafengur
Evernote
Evernote man
allt. Þess vegna
er jú viðeigandi
að táknmynd
appsins sé af fíl.
Evernote er ekki
nýtt af nálinni en
það er bara svo
ótrúlega hand-
hægt að það á
skilið að skrifað
sé um það hér. Í
raun er fátt sem
appið getur ekki
haldið utan um;
þú getur skrifað
þar minnismiða,
tekið myndir,
geymt skjá-
myndir, tekið upp
hljóð og vistað
vefsíður. Appið
sér um að skipu-
leggja gögnin og
er mjög auðvelt
að leita í þeim.
Þá er einfalt að
senda gögnin
hvert á land sem
er í tölvupósti.
Það sem mér
finnst sérlega gott við Evernote er
að hægt er að nota sama aðgang í
símanum, í spjaldtölvunni og í borð-
tölvunni. Þannig getur þú sett upp-
lýsingar inn í appið í gegnum borð-
tölvuna en hefur alltaf aðgang að
þeim í gegn um símann, og öfugt.
Ég geymi satt að segja mikið af
mataruppskriftum í appinu og skoða
þær síðan í símanum við eldavélina,
með myndum og öllum leiðbein-
ingum. Ég hef það síðan fyrir satt að
skólafólk noti Evernote til að glósa
og þá hafa nemendurnir aðgang að
glósunum alls staðar, alltaf.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
52 dægurmál Helgin 20.-22. september 2013