Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 72
8 ÍSLENSKT GRÆNMETIHAUST 2013
Góður biti af ferskum engifer, smátt saxaður og
látinn sjóða með rófunum
Rófur og laukur saxað smátt. Grænmetið er
léttsteikt í olíu og kryddinu þar til það er orðið
meyrt. Þá er vatninu bætt útí og látið sjóða í
20 mín. Þá er komið af töfrasprotanum til að
mauka súpuna. Bragðbæta með sítrónusafa,
salti og pipar. Súpan er best frekar þykk . Síðan
má breyta henni að vild t.d. með því að minnka
vatnsmagnið en nota þess í stað kókósmjólk.
Látið malla við vægan hita í 5 mín eftir að hafa
verið bragðbætt. Ferskar smátt saxaðar jurtir og
vorlaukurinn eru settar yfir rétt áður en súpan er
borin fram og varla þarf að nefna það að nýbakað
brauð er það eina sem þarf með réttinum.
Helga Mogensen
Rófusúpa úr sveitinni
4 stk meðalstórar rófur
4 msk ólífuolía
1 stk laukur
2 tsk broddkúmen
2 tsk túrmerik
1 msk sítrónusafi
Salt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk
Geymið blaðið
Gróður
Grænkál hefur undanfarið skotist upp á vinsældarlistann hjá landsmönnum og er nú
talið ómissandi í salöt, heilsurétti og heilsudrykki.
Grænkál er sannkölluð ofurfæða, svo næringarríkt
er það.
Grænkál hefur verið ræktað við sunnanvert
Miðjarðarhaf í 5 þúsund ár. Egyptar höfðu mikið
dálæti á grænkáli og ræktuðu það sér til matar
og til lækninga. Kálið barst til Norður-Evrópu
með Rómverjum. Rússneskir innflytjendur
hófu ræktun á því í Kanada og þaðan barst
það til Bandaríkjanna. Í Norður-Evrópu og á
Norðurlöndum var grænkálið mjög mikilvægur
C vítamín gjafi. Fyrir meira en hundrað árum var
grænkálið jafn algengt í matjurtargörðum bænda á
Íslandi og kartöflur og rófur.
NæriNGarGildi
Grænkálið er eitt næringarríkasta grænmeti
sem fyrirfinnst. Það er stútfullt af vítamínum og
steinefnum og er trefjaríkt. Það er sannkallað
ofurfæði. Í því er mikið af A, B, C og E
vítamínum, en einnig fólasín, kalk og mikið
magn andoxunarefna. Grænkálið er upplagt að
nota í alls konar næringardrykki sem gerðir eru í
blandara. Í 100 gr. eru 56 hitaeiningar (kcal).
Geymsla
Blöð grænkáls eiga að vera dökkgræn og jafnlit. .
Best er að geyma grænkál í kæli en gætið þess að
raki sé á kálinu. Grænkálið er næmt fyrir etýleni
og því ber að varast að hafa það nálægt eplum,
perum eða tómötum.
GræNkál
Sannkölluð ofurfæða
Þorleifur Jóhannesson býr ásamt konu sinni, Sjöfn Sigurðardóttur, á Hverabakka II á Flúðum. Þar reka þau garðyrkjustöðina Gróður ehf.
og stunda fjölbreytta ræktun en hjá Gróðri ehf. eru
ræktaðir tómatar, kirsuberjatómatar og agúrkur á 4000
fermetrum í gróðurhúsum. Eins er stunduð útirækt
á staðnum og ræktað kínakál, spergilkál, blómkál,
sellerí og rófur á um 15 hekturum lands. Gróður ehf.
er jafnframt eini framleiðandinn innan Sölufélags
garðyrkjumanna sem ræktar sellerí.
Garðyrkja hefur verið stunduð á Hverabakka
nánast óslitið frá árinu 1944. Faðir Sjafnar stofnaði
Gróður ehf. og keyptu Þorleifur og Sjöfn stöðina
af honum. Þorleifur segir það þó ekki hafa verið
ætlunina að gerast garðyrkjubóndi. Þau hjónin eru
bæði menntaðir kennarar og vinnur Sjöfn við kennslu
á Flúðum. Þorleifur sér þó ekki eftir því að hafa farið
út í garðyrkju og segir starfið sérstaklega gefandi og
skemmtilegt og honum leiðist aldrei í vinnunni.
Á staðnum vinna um 6 manns á veturna en á sumrin
fjölgar allt upp í 15 manns.
Allt grænmetið hjá Gróðri ehf. er handtínt, hreinsað
og flokkað á staðnum. Sendingar fara daglega frá
garðyrkjustöðinni til neytenda en tómatarnir eru tíndir
þrisvar sinnum í viku og gúrkurnar daglega. Ræktunin
er vistvæn, tómatarnir og gúrkurnar eru ræktaðar í vikri,
lífrænum vörnum er beitt og sjá býflugur um að frjóvga
plönturnar. Hluti útiræktunarinnar fer fram í heitum
jarðvegi frá náttúrunnar hendi og er jarðhiti einnig
nýttur til upphitunar í gróðurhúsunum.
Heita vatnið kemur úr
Grafarbakkahver sem liggur
við húshornið á Hverabakka
en garðyrkjustöðin stendur
á bökkum Litlu-Laxár.
rækta kínakál á bökkum litlu-laxár
„Mér finnst
óskaplega
gott að grilla
spergilkál,
smá salt og
smjör, það
þarf ekkert
annað.“
Þorleifur Jóhannesson
og Sjöfn Sigurðardóttur
reka garðyrkjustöðina
Gróður ehf.
Kátir kroppar
-frosinn íslenskur barnamatur
Það fyllir okkur barnslegri gleði
að kynna, Káta kroppa, nýjan
íslenskan barnamat framleiddan
samkvæmt ströngustu
gæðakröfum úr íslensku
grænmeti, sem er fullt af orku
hins íslenska sumars. Þú veist
hvaðan það kemur,við sækjum
það ferskt af akrinum, vinnum
og frystum. Þessi aðferð hefur
notið mikilla vinsælda því með
frystingu er hægt að tryggja meiri
ferskleika og betri varðveislu
næringarefna en í niðursoðnum
barnamat.
Væntanlegt á markað
Vefjur og
lasagna
Íslenska grænmetið nýtur sín
vel í nýjum réttum sem Sölufélag
garðyrkjumanna er að senda á
markaðinn bráðlega. Um er að ræða
kælivöru, vefjur og lasagna. Í þeim er
íslenskt blómkál, spergilkál og gulrætur,
sem er tekið ferskt af akrinum og fryst.
Þannig varðveitast öll næringarefnin í
grænmetinu og hægt er að eiga fyrsta
flokks grænmeti í réttina allt árið.
Réttirnir eru í álbakka. Þeir eru hitaðir
í ofni við 180 til 200 gráður í 20 mínútur.
Einnig er upplagt eða setja þá á grillið.
Kartöflu- og grænmetisgratínin frá
Sölufélagi garðyrkjumanna kannast
flestir við, en nú eru þau komin í
nýjar umbúðir. Í grænmetisgratíninu er
íslenskt grænmeti, gulrætur, spergilkál
og blómkál. Það er tekið ferskt af
akrinum. Til að öll næringarefnin
varðveitist sem best er grænmetið fryst
og þannig fæst fyrsta flokks grænmeti í
réttina allt árið.
Í kartöflugratíninu eru íslenskar
kartöflur sem geymdar eru við
bestu aðstæður og því fæst ávallt
úrvalshráefni í réttinn.
Réttirnir eru kælivara. Þeir eru hitaðir í
ofni við 180 til 200 gráður í 20 mínútur.
Einnig er tilvalið að setja þá á grillið.