Fréttatíminn - 29.11.2013, Blaðsíða 2
Botninn
200 g Ljóma
5 egg
4 dl sykur
4 dl hveiti
1 dl kakó
2 tsk lyftiduft
2 tsk vanillusykur
2 dl mjólk
Hitið ofninn í 200 gráður og
smyrjið skúukökuform.
Bræðið Ljómann og látið hann
kólna.
Hrærið egg og sykur þar til það
verður ljóst og létt.
Blandið hveiti, kakói, lyftidufti
og vanillusykri saman og sigtið
það út í deigið.
Setjið Ljóma og mjólk út í og
hrærið þar til deigið verður
slétt.
Hellið deiginu í bökunarformið
og bakið í miðjum ofni í 20–25
mínútur.
Skúffukaka
Glassúr
75 g Ljóma
1/2 dl sterkt ka
4 dl flórsykur
2 msk kakó
2 tsk vanillusykur
Bræðið Ljómann. Setjið
þurrefnin í skál og hrærið
saman við bræddan
Ljómann og kað.
Leyfið kökunni að kólna aðeins
áður en glassúrinn er settur á.
Setjið kókosmjölið yfir kökuna
og njótið.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
33
40
2
Kveikt á Oslóartrénu
„Okkur er aðeins að takast að skapa
þá vitund meðal íbúa að við séum með
hráefni í höndunum en ekki rusl. Al-
mennt má segja að meðvitund gagnvart
umhverfismálum og flokkun hafi tekið
við sér og meðvitund fólks um að nýta
hluti betur,“ segir Ragna Halldórsdóttir,
deildarstjóri hjá Sorpu, en flokkun og
endurnýting úrgangs hefur aukist um
helming frá árinu 2000 samkvæmt
Landshögum, útgáfu Hagstofunnar.
„Við erum að standa okkur ágætlega í
fataflokkun í samanburði við hin Norð-
urlöndin. Íbúar hinna Norðurlandanna
eru að lenda í sama veseni með að
flokka plast og við en plastumbúðir eru
erfiður úrgangur því hann er svo marg-
slunginn og farvegir fyrir efnið margir.
Það hefur orðið vakning með möguleika
í flokkun. Ég sé að fólk er að taka við
sér með að skila til okkar plastumbúð-
um,“ segir Ragna. „Við erum að gera
góða hluti og samstarf Sorpu og Rauða
krossins hefur verið að ganga mjög vel
en fólk þarf að gera sér grein fyrir því
að það má skila alls konar textíl líka,“
segir Ragna.
María Elísabet Pallé
maria@frettatiminn.is
Umhverfismál Íslendingar standa sig ágætlega
Fólk er duglegra að skila inn plastumbúðum
... flokkun og
endurnýting
úrgangs hefur
aukist um
helming frá
árinu 2000
Helmingurinn
borðar hollt
Rúmur helmingur Íslendinga
sem tók þátt í könnun á heilsu-
venjum borðar hollan morgun-
verð daglega sem og ávexti og
grænmeti. Af þeim sem tóku
afstöðu sögðust 53,4% borða
hollan morgunverð daglega
og 51,5% sögðust borða ávexti
eða grænmeti daglega. MMR
kannaði heilsuvenjur og voru
963 einstaklingar sem tóku
þátt. Þeir sem styðja Vinstri
græn borða mest af ávöxtum
og grænmeti eða 89,5% en
þeir sem styðja Pírata borða
minnst eða 67,5%. Mun fleiri
á aldrinum 68 ára
og eldri vakna
endurnærðir að
morgni, eða
81,2%, en
aðeins 56%
þeirra
sem eru
18-49
ára.
Oslóartréð á Austurvelli í
Reykjavík verður tendrað
sunnudaginn 1. desember
klukkan 16 en þá munu
jólastjörnurnar Sigríður
Thorlacius og Ragnhildur
Gísladóttir syngja jólin í
hjörtu landsmanna ásamt
fleirum. Viðburðurinn hefur
um áratuga skeið markað
upphaf jólahalds í borginni.
Jón Gnarr borgarstjóri mun
veita grenitrénu viðtöku úr
hendi Dag Werno Holter,
sendiherra Noregs, og Rinu
Marin Hansen, borgarfull-
trúa Verkamannaflokksins
í Ósló. Jón Gnarr tók þátt
í að fella 12 metra hátt
grenitréð í skóglendi utan
við Osló en tréð er 42 ára
gamalt og var valið fyrir
10 árum sem framtíðar
vinagjöf til Reykjavíkurbúa.
Heitt kakó og kaffi mun
verma kalda kroppa og
bílastæðahúsið í Ráðhúsinu
verður opið til að auðvelda
gestum aðgengi að hátíðar-
svæðinu.
Austurstræti 16. Fyrirhugað er að í húsinu verði inn-
réttað og rekið hótel ásamt veitingastað.
Hótel verður í fornfrægu húsi
Dótturfélag Regins hf. og Keahótel ehf. hafa undir-
ritað leigusamning um fasteignina Austurstræti 16,
Reykjavík. Fasteignin sem Reginn samstæðan
festi nýverið kaup á er alls 2.773 fermetrar
að stærð. Fyrirhugað er að í húsinu verði
innréttað og rekið hótel ásamt veitinga-
stað sem hæfa mun yfirbragði og
sögu hússins, að því er fram kemur
í tilkynningu. Reginn mun sjá um og
stýra framkvæmdum á húsinu. Gert
er ráð fyrir að rekstur geti hafist í lok
næsta sumars. Keahótel ehf. eru einn af
stærri leigutökum Regins en fyrirtækið
leigir einnig Hótel Kea á Akureyri. - jh
sakamál svissneskUr fjölmiðill fjallar Um leit rönkU að syninUm
Svissneskur fjölmiðill
fjallar um son Rönku
Stærsta alþjóðlega fjölmiðlasamsteypa Sviss vinnur að umfjöllun um Rönku Studic sem telur að
sonur hennar hafi nýfæddur verið seldur til Sviss. Hún fæddi hann á stríðstímum í Serbíu og í
ljós hefur komið að þar var starfandi svartur markaður með ungbörn. Rönku var sagt að sonur
hennar væri dáinn en fyrir fjórum árum fékk hún dularfullt símtal þar sem henni var sagt að
hann væri enn á lífi.
Rönku
var sagt
að sonur
hennar
hefði dáið
á sjúkra-
húsinu.
r ingier, stærsta alþjóðlega fjölmiðla-samsteypan í Sviss, vinnur að um-fjöllun um mál Rönku Ingu Studic
sem telur að sonur hennar hafi verið seldur
nýfæddur til Sviss. Fréttatíminn fjallaði
um málið í síðustu viku í tengslum við
útkomu bókar Elínar Hirst um sögu móður-
innar sem ber heitið: Barnið þitt er á lífi.
Fréttamaður á Ringier hafði samband við
Fréttatímann í vikunni til að fá nánari upp-
lýsingar um málið.
Eins og fram hefur komið fæddi Ranka
son á sjúkrahúsi í Jakodínu í Serbíu þann
7. júlí 1992 og er hann því 21 árs í dag, ef
hann er á lífi. Rönku var sagt að sonur
hennar hefði dáið á sjúkrahúsinu en á þess-
um tíma, þegar stríð geisaði í landinu, voru
þegar farnar að heyrast sögusagnir um að
nýfæddum börnum væri rænt frá foreldrum
sínum á sjúkrahúsinu og þau seld úr landi
fyrir fúlgur fjár.
Fyrir fjórum árum fékk Ranka dularfullt
símtal í heimasímann sinn í Kópavogi. Við
grípum hér niður í orð Rönku úr síðasta
blaði: „Þegar ég svara er kona á hinni
línunni sem talar mitt tungumál og spyr
um mig með nafni. Hún segir að ég hafi
fætt dreng á sjúkrahúsinu í Jagodínu þann
7. júlí árið 1992 klukkan sex. Mér bregður
mikið og ég spyr hvernig hún viti þetta. Þá
segist hún í rúm sautján ár hafa haft þetta
mál á samviskunni en hún hafi ekki getað
þagað lengur. „Drengurinn þinn er á lífi,“
segir hún. Konan segir að hann heiti Ratko
og hafi verið seldur af fæðingardeildinni
til efnaðrar fjölskyldu í Sviss. Síðan lagði
hún á.“
Ringier gefur út 120 dagblöð og tímarit,
fjölda sjónvarps- og útvarpsstöðva auk 80
vefmiðla, en fjölmiðlasamsteypan er með
útibú meðal annars í Þýskalandi, Ungverja-
landi og Kína. Það eykur því enn líkurnar
á að Ranka og Zdravko Studic, eiginmaður
hennar, finni son sinn ef hann er á lífi að
þessi stóra fjölmiðlasamsteypa fjallar um
mál þeirra. Auk þess hyggjast þau hafa
samband við serbneska blaðamanninn
Misa Ristovic sem fjallaði mikið um hina
svokölluðu „barnamafíu“ í Serbíu sem
hafði á sínum snærum lækna og annað
hjúkrunarfólk sem aðstoðaði við að ræna
nýfæddum börnum til að selja úr landi.
Hann komst að því að minnst þrjú hundruð
fjölskyldur grunaði að börnunum þeirra
hefði verið stolið og var upplifun þeirra
allra af sjúkrahúsvistinni svipuð, og mjög
áþekk reynslu Rönku.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ranka Inga Studic
sagði sögu sonar síns í
síðasta Fréttatíma en
hún telur að honum hafi
verið rænt og hann sé
enn á lífi í Sviss. Stærsta
alþjóðlega fjölmiðlasam-
steypa Sviss ætlar að
fjalla um málið.
Ljósmynd/Hari
2 fréttir Helgin 29. nóvember-1. desember 2013