Fréttatíminn - 29.11.2013, Blaðsíða 66
Verslunin SUIT verður opnuð að Skólavörðustíg 6 næsta
laugardag. Búið er að taka húsið allt í gegn að innan sem utan
og setja á það hornglugga sem vísar niður á Laugarveg svo
útsýnið er stórgott. „Verslunin verður rúmgóð á tveimur hæðum
og við erum mjög ánægð með að hafa fengið þetta skemmtilega
húsnæði á þessum spennandi stað. Búðin opnar klukkan 15 á
laugardag og verður þá opnunargleði hjá okkur þar sem við
bjóðum viðskiptavinum okkar upp á léttar veigar. Alla helgina
verður svo 20% afsláttur í tilefni af opnuninni. Þetta er fyrsta
eiginlega SUIT búðin í heiminum og er þetta mjög spennandi
verkefni. Karítas Sveinsdóttir og Hafstein Júlíusson hjá HAF-
stúdíói hanna útlit verslunarinnar og höfum við nú þegar fengið
sterk og góð viðbrögð við þrívíddar teikningum sem við höfum
sett inn á netið og er stílinn mjög afgerandi og nýstárlegur. Ég
er mjög stolt af því að eiga þátt í að skapa ímynd fyrstu SUIT
„flagship“ búðarinnar og að hún skuli vera hér á litla Íslandi.
SUIT er danskt merki sem nýtur sívaxandi vinsælda í Evrópu. Að
sögn Ásu Ninnu eru vörurnar frá SUIT á mjög góðu verði. Sem
dæmi kosta peysur og skyrtur frá 10.900 krónum, buxur eru
frá 13.900 og úlpur frá 28.900 krónum. SUIT er þekkt fyrir ein-
staklega vandaðar og flottar yfirhafnir en lögð er mikil áhersla
á tæknileg smáatriði og gæði. Sem dæmi má nefna að flestar
úlpurnar og rennilásarnir eru vatnsheld. Í versluninni verða
einnig skór frá Sue the Bear og tvö til þrjú merki til viðbótar sem
eru undir sama fyrirtæki og SUIT.
Frá stofnun hefur SUIT lagt aðal áherslu á herraföt en réð
nýlega til sín kvenhönnuð svo von er á stórri kvenlínu frá fyrir-
tækinu í janúar. „Við fáum mjög fína dömulínu fyrir jólin en svo
bætist við hana þegar stóra línan kemur í janúar. Vörurnar frá
SUIT henta breiðum hópi fólks og höfða til flestra. Bankagaurinn
getur keypt klassískar skyrtur og jakkaföt og skólastrákurinn
gallabuxur og munstraðar, marglitar prjónapeysur.“ Ása Ninna
er einnig eigandi GK og hefur SUIT verið eitt stærsta merkið í
þeirri verslun. Þau höfðu lengi gælt við þá hugmynd að opna
SUIT verslun sem er nú orðin að veruleika.
Helgin 29. nóvember-1. desember 201366 tíska
Gabor sérverslun
Fákafeni 9 S: 553-7060
www.gabor . i s - f a cebook . com/gaborse r ve r s lun
Opið mán-fös 11-18
& lau 11-16
Laugavegi 178
Sími 551-3366
www.misty.is
OPIÐ:
Mán. - fös. 10 - 18,
Laugardaga 10 - 14
JÓLAFÖTIN
KOMIN Í HÚS
Teg Vivienne -
Fæst í stærðum
32-40
D,DD,E,F,FF,G
skálum
á kr. 10.990,-
KYNNING
Fyrsta SUIT „flagship“ búðin í heiminum
Miðborgin SUiT reykjavík
Ása Ninna Pétursdóttir og Guðmundur Hall-
grímsson vinna nú hörðum höndum að því
að leggja lokahönd á frágang SUIT verslunar
sem opnar í miðbænum á laugardag. HAF-
stúdíó hefur séð um hönnun verslunarinnar
allt niður í fínustu smáatriði í samvinnu við
Ásu Ninnu og Guðmund. Frá byrjun hafa þau
hannað allt í þrívíddar forriti og hafa myndir
af hönnuninni strax hlotið mikla athygli.
Hafsteinn Júlíusson og Karítas Sveinsdóttir hjá HAF-stúdíói
hafa séð um hönnun verslunarinnar í samvinnu við eigend-
urna, þau Ásu Ninnu og Guðmund. Stílinn verður mjög
afgerandi og nýstárlegur.
Bankagaurinn
getur keypt
klassískar
skyrtur og
jakkaföt
og skóla-
strákurinn
gallabuxur og
munstraðar,
marglitar
prjónapeysur.
Pils í öllum útgáfum má sjá í vetrarlínum tísku-
húsanna, allt frá aðsniðnum pilsum sem ná niður
fyrir hné, eins og Louis Vuitton sýndi á pöllunum
og yfir í fiftís-tísku, efnismikil pils með háu mitti.
Það má segja að í raun séu öll pils í tísku, sama
hvernig þau eru í sniðinu.
PilsLOUISVUITTON
VERONIKA
MASHAMA JITROIS