Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.11.2013, Síða 4

Fréttatíminn - 29.11.2013, Síða 4
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 HÁGÆÐA JÓLALJÓS Skoðið úrvalið á www.grillbudin.is Opið kl. 11 - 16 laugardag Opið kl. 13 - 16 sunnudag LED Mikið úrval vandaðra útisería fyrir fyrirtæki og heimili Frá Svíþjóð Opið fyrir umsóknir veður Föstudagur laugardagur sunnudagur SV-átt, hVeSSir í kVöld með rigningu eða Slyddu en þurrt auStantil Og hiti um 0 stig. höfuðbOrgarSVæðið: SV 5-13, m/S og rigning. Hiti 0 til 3 Stig. SV 10-18 m/S. rigning með köflum en þurrt auStaSt. hiti 2 til 7 Stig en kólnandi . höfuðbOrgarSVæði: SV 8-15 m/S og Slydda eða rigning með köflum. Hiti 0 til 4 Stig. Vaxandi Suðlæg átt Og úrkOma Víða um land Og hlýnar aftur. hiti 0 til 6 Stig Og hlýnar. höfuðbOrgarSVæði: S 8-10 m/S og rigning. Hiti 3 til 6 Stig umhleypingar Suðvestan og vestanáttir ríkjandi með vætutíð um landið vestanvert, en léttir til um tíma um landið austantvert. Strekkingur eða hvass- viðri um allt land, en lægir lítið eitt á milli veðrakerfa á laugardagskvöld. Hitinn dansar í kringum frostmark með tilheyrandi útgáfum af úrkomu. 1 -2 -2 -2 2 4 4 5 6 4 5 2 -2 -2 6 elín björk Jónasdóttir vedurvaktin@vedurvaktin.is kærleikskúlan afhjúpuð Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur gefið út Kærleikskúluna í ellefta sinn en sölutekjur eru notaðar til þess að auðga líf fatlaðra ungmenna með því að efla starfsemi reykjadals. agnes Sigurðardótt- ir, biskup Íslands, blessaði kúluna og hlaut Hrefna Haraldsdóttir kærleikskúluna í ár. Hrefna hefur unnið að málefnum fatlaðra í um hálfa öld en hún hætti að vinna á árinu vegna aldurs. Sýning á kærleikskúlunni verður sett upp í glugga Hafnarborgar sem snýr að Strandgötu en salan stendur frá 5.-19. desember næstkomandi. Búið er að opna fyrir umsóknir í frumkvöðla- keppnina gulleggið 2014. keppnin hefur alið af sér fjölda sprotafyrirtækja sem sum eru orðin að stórum og þekktum fyrirtækjum. megin- markmið keppninnar er að skapa vettvang fyrir ungt athafnafólk að öðlast þjálfun og reynslu í mótun nýrra viðskiptahugmynda og rekstri fyrirtækja. gulleggið er gott tækifæri fyrir frumkvöðla til að koma hugmyndum sínum á framfæri og gera úr þeim raunverulegar og markvissar áætlanir sem miða að stofnun fyrir- tækja. Samhliða keppninni er þátttakendum í samstarfsháskólum innovit boðið upp á námskeið, ráðgjöf og aðstoð sérfræðinga. frá mótun hugmyndar til áætlanagerðar og þjálfunar í samskiptum við fjárfesta. Þúsundasta innova kerfið selt Marel hefur selt þúsund Innova kerfi frá árinu 2008 en nú eru eitt eða fleiri kerfi seld og sett upp á hverjum virkum degi. innova er hugbúnaður sem hjálpar matvælaframleiðendum að hámarka verðmæti og nýtingu hráefnisins í gegnum allt vinnsluferlið, frá móttöku hráefnis til vöruafhendingar. innova hugbúnaðurinn er meðal annars upplýsinga-, pöntunar- og samhæfingarbúnaður sem gerir alla vinnslu skilvirkari í stórum sem og litlum framleiðslufyrirtækjum. Innova er fimmta kynslóð kerfishugbúnaðar sem Marel hefur þróað en markmiðið hefur verið að færa tæknina inn í matvælavinnslu til að auka afköst, nýtingu og gæði. Þ að þarf engan geim-vísindamann til að sjá að dagskráin mun taka breytingum,“ segir Skarphéð- inn Guðmundsson, dagskrár- stjóri Ríkissjónvarpsins. Páll Magnússon útvarps- stjóri kynnti á miðvikudag að draga þyrfti árlegan rekstrar- kostnað RÚV saman um 500 milljónir króna. Í kjölfarið var 39 starfsmönnum sagt upp en allt í allt mun þeim fækka um 60. Páll kynnti jafnframt að nokkrir dagskrárliðir í útvarpi og sjónvarpi muni hverfa, öðrum fækki og enn aðrir muni styttast og þynnast, eins og það var orðað. „Það er ekki tímabært að gefa upp hvaða breytingar verða á dagskránni. Við munum fara ofan í saumana á því með starfsfólki í næstu viku. Af tilliti við starfsfólkið getum við ekki talað um breytingarnar við fjölmiðla að svo stöddu,“ segir Skarphéðinn. Augljóst er að Kastljósið verður ekki svipur hjá sjón að óbreyttu. Níu manns störfuðu við þáttinn en samkvæmt upp- lýsingum Fréttatímans er reiknað með 4,5 stöðugildum við þáttinn hér eftir. Þá er viðbúið að ýmsir fastir þættir verði styttir og þeim fækkað yfir veturinn. Eins má líklegt telja að hætt verði við kaup á dýru efni eða því frestað. „Dagskrárdeildin mun hafa úr minna fé að spila en áður og þar af leiðandi dregur úr getu okkar til að framleiða efni. Það er líklegt að þáttum muni fækka og það verði færri þættir yfir veturinn af föstum liðum. Það mun ýmislegt sjást en það er okkar að reyna að láta eins lítið á sjá og mögu- legt er.“ Þú varst ráðinn dagskrár- stjóri fyrir ári síðan. Kemur þessi niðurskurður þér á óvart? „Svona aðgerðir, þó þurft hafi að skera niður meira en marga grunaði, eiga ekki að koma mönnum á óvart. Það er búinn að vera markviss niðurskurður á þessari stofnun og ég sá ekki nein teikn um að það væri að fara að breytast. Þetta er alltaf háð afkomu ríkisins. Það er svo áskorun að spila úr því sem úthlutað er hverju sinni á sem sanngjarnastan hátt, að hámarka það sem hægt er að gera og sinna þeirri þjónustu sem ætlast er til.“ höskuldur daði magnússon hdm@frettatiminn.is Niðurskurður á dagskrá RÚV kynntur eftir helgi  Fjölmiðlar uppsagnir og niðurskurður í dagskrá rÚv mikil ólga hefur verið í kringum rÚV í vikunni vegna uppsagna 39 starfsmanna. Afleiðingar niðurskurðar upp á hálfan milljarð eru þó ekki allar komnar fram því í næstu viku verða kynntar breytingar á dagskrá. Þáttum verður fækkað og þeir styttir. framtíð kast- ljóssins óviss. Skarphéðinn guðmundsson. Kastljósið hefur verið eitt af flaggskipum RÚV undanfarin miss- eri. Viðbúið er að breytingar verði á þættinum eftir að dag- skrárgerðarfólki var fækkað til muna. Þátturinn hefur heyrt undir dagskrárdeild síðan Þórhallur gunnarsson var bæði dagskrárstjóri og ritstjóri þáttarins. ekki er ólíklegt að stjórn- endur í efstaleiti sjái sér hag í að færa stjórn þáttarins undir fréttastofuna þó engin ákvörðun um það hafi verið kynnt. Skarphéðinn kveðst ekki vita hvað framtíð þáttarins ber í skauti sér. „enn sem komið er tilheyrir kastljósið dagskrárdeild og er með sjálfstæða ritstjórn, óháð fréttastofu. Ég veit ekki hvernig okkur tekst að spila úr því. Það hefur verið skorið svo mikið niður að við verðum að meta það.“ óvíst um framtíð kastljóssins Breytingar verða á dagskrá Sjónvarpsins á næstunni eftir að mikill niðurskurður hjá rÚV var kynntur í vikunni. Ljósmynd/Hari 4 fréttir Helgin 29. nóvember-1. desember 2013
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.