Fréttatíminn - 29.11.2013, Blaðsíða 12
Hvort heldur máli Geirs fyrir Mannréttindadómstólnum lýkur
með efnislegri niðurstöðu eða sátt er mikilvægt að íslensk
stjórnvöld láti sér Landsdómsmálið að kenningu verða.
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
L Landsdómsmálið svokallaða varð til þess að margir voru með óbragð í munni meðan á því stóð og eftir að niðurstaða fékkst. Eins og flestum er í fersku minni ákærði Alþingi Geir H. Haarde, fyrrverandi for-
sætisráðherra, einn manna fyrir van-
rækslu í starfi í kjölfar bankahrunsins og
fól saksóknara Alþingis að sækja málið
fyrir Landsdómi. Í kjölfar bankahrunsins
haustið 2008 hafði Alþingi
skipað rannsóknarnefnd
sem komst að því vorið 2010
að íslenskir ráðherrar hefðu
sýnt af sér vanrækslu. Meiri-
hluti þingmannanefndar sem
skipuð var til að fjalla um
skýrslu rannsóknarnefndar-
innar komst að þeirri niður-
stöðu um haustið það sama ár
að leiða bæri fjóra ráðherra
fyrir Landsdóm. Niðurstaða
Alþingis varð hins vegar sú
að ákæra aðeins Geir. Sú niðurstaða var
umdeilanleg, svo ekki sé meira sagt og
breytti málinu í raun í flokkspólitísk átök
og sýndi um leið þær veilur sem í lögunum
um Landsdóm felast.
Niðurstaða Landsdóms á liðnu ári var að
sýkna Geir H. Haarde af þremur ákæruat-
riðum af fjórum en hann var sakfelldur fyr-
ir eitt ákæruatriðið, án þess þó að honum
væri gerð refsing, það er að segja að hafa
ekki haldið ráðherrafundi um mikilvæg
stjórnarmálefni. Eftir að Landsdómur hafði
kveðið upp sinn dóm sagði Róbert Spanó
lagaprófessor að ákæra í dómsmáli þyrfti
að byggja á faglegu og yfirveguðu lögfræði-
legu mati en núverandi fyrirkomulag byði
upp á að önnur sjónarmið drægjust inn í
það mat. Í gildandi kerfi um Landsdóm sé
á ferðinni samkrull lögfræði og pólitíkur
sem sé fyrirbæri sem hafi verið mun meira
viðurkennt í upphafi liðinnar aldar en í dag.
„Í nútímalögfræði,“ sagði lagaprófessorinn,
„reynum við eftir fremsta megni að skilja
vel á milli lögfræði og pólitíkur.“
Það var því miður ekki gert þegar Al-
þingi lagði út á það hála svell að kalla sam-
an Landsdóm í fyrsta sinn. Það sást einna
skýrast þegar fjórir tilteknir þingmenn
Samfylkingarinnar greiddu atkvæði með
því að ákæra Geir en gegn því að ákæra
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, hinn
leiðtoga ríkisstjórnarinnar í samsteypu-
stjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylking-
arinnar. Ingibjörg Sólrún lýsti því yfir að
rangt hefði verið pólitískt, siðferðislega og
réttarfarslega að kalla saman Landsdóm til
að rétta yfir Geir H. Haarde.
Þótt Geir hafi verið sýknaður af alvar-
legustu ákæruatriðunum og ekki gerð
refsing undi hann sakfellingunni í fjórða
ákæruliðnum illa. Hann kærði íslenska
ríkið því til Mannréttindadómstóls Evrópu.
Nú liggur fyrir að Mannréttindadómstóll-
inn tekur málið til meðferðar og hefur
sent innanríkisráðuneytinu erindi þar sem
það er staðfest. Mannréttindadómstóllinn
leggur sex spurningar fyrir stjórnvöld og
auk þess ber þeim að útvega dómstólnum
enska þýðingu af dómi Landsdóms og
öðrum ákvörðunum sem tengjast málinu.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkis-
ráðherra segir það að Mannréttindadóm-
stóllinn taki málið til meðferðar hljóti að
fela í sér ákveðna viðurkenningu á því að til
málsins gegn Geir hafi ekki verið stofnað
með réttmætum eða sanngjörnum hætti.
Andri Árnason, lögmaður Geirs, segir
ástæðu þess að dómstóllinn taki málið til
meðferðar séu óeðlileg frávik í því og alveg
tilefnislaus. Dómstóllinn meti að fram-
lögðum svörum íslenskra stjórnvalda hvort
málið verði tekið til efnismeðferðar. Af
málflutningi hans má þó ráða að hann telji
líkur á því enda séu pólitísk réttarhöld ein-
hver þau alverstu þannig að þau fái alltaf
skoðun. Lögmaðurinn útilokar þó ekki að
málinu ljúki með sátt.
Hvort heldur máli Geirs fyrir Mann-
réttindadómstólnum lýkur með efnislegri
niðurstöðu eða sátt er mikilvægt að ís-
lensk stjórnvöld láti sér Landsdómsmálið
að kenningu verða. Alþingi á ekki að hafa
ákæruvald, það á að skilja milli lögfræði
og pólitíkur. Svo virðist raunar vera því for-
ráðamenn núverandi ríkisstjórnar lýstu því
yfir á liðnu sumri að sett yrði af stað vinna
sem miðaði að því að breyta lögum og
leggja niður Landsdóm.
Landsdómur verði lagður niður
Samkrull lögfræði og pólitíkur
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Vikan í tölum
39
starfsmönnum var sagt upp á RÚV en að
sögn Páls Magnússonar útvarpsstjóra þarf
að skera niður rekstrarkostnað um hálfan
milljarð á næsta ári vegna niðurskurðar á
fjárframlögum frá ríki.
400
íbúar Vestur-
bæjar skrifuðu
undir yfirlýsingu til
borgarstjóra þar
sem vonbrigðum er
lýst yfir því hve lítið
mark hefur verið
tekið á ábendingum
og athugasemdum
íbúa vegna
deiliskipulagstillögu
fyrir Vesturbugt.
56
af hundr-
aði er fylgi
meiri-
hlutaflokkanna í
borginni, Bjartrar
framtíðar og
Samfylkingar,
samkvæmt nýjum
þjóðarpúlsi Gallup.
170
farþegar voru um
borð í flugi Ice-
landair til New York
sem snúa þurfti við
vegna erfiðleika.
663
milljónir eru heildar-
greiðslur ríkisins
vegna svokallaðra
sanngirnisbóta
vegna unglinga-
heimila ríkisins. Alls
hafa um 800 manns
krafist sanngirnis-
bóta en talið er að
um 5200 geti gert
tilkall til þeirra.
1,7
milljónir evra falla í
skaut Íslenskra orku-
rannsókna, ÍSOR,
sem er hluti af styrk
upp á 10 milljónir
evra sem Evrópu-
sambandið veitti
verkefni sem hefur
það að markmiðið að
þróa nýjar aðferðir til
að rannsaka og meta
jarðhitakerfi og stað-
setja borholur með
markvissari hætti.
260
þúsund krónur á
ári greiðir sá sem
borgar hæstu
lóðarleiguna
innan Þjóðgarðsins
á Þingvöllum. Alls
greiða 82 lóðarleigu
á svæðinu.
3,7
prósenta verðbólga
hefur mælst síðustu
tólf mánuði og hefur
verðbólga verið yfir
verðbólgumarkmiði
Seðlabankans í 32
mánuði samanlagt.
hefjast 2. og 3. desember
4 vikna námskeið
Ný námskeið
N
ý
ná
m
sk
ei
ð
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík
Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is
60 ára og eldri:
Í form fyrir golfið
Sérhæfð þjálfun fyrir golfara
Þri. og fim. kl. 12:10.
Jóga
Þri. og fim. kl. 12:00. Grunnur
Mán. og mið. kl. 12:00. Framhald
Zumba og Zumba toning
Dansaðu þig í form!
Þri. og fim. kl. 16:30.
Kvennaleikfimi
Gamla góða leikfimin fyrir konur
Mán., mið. og föst. kl. 16:30. Uppselt
Þri. og fim. kl. 10:00.
Morgunþrek
Fjölbreyttir púl tímar fyrir karla og konur
Mán., mið. og föst. kl. 7:45 eða 09:00
Leikfimi 60+
Mán. og mið. kl. 11:00.
Mán. og mið. kl. 15:00.
Þri. og fim. kl. 10:00.
Zumba Gold 60+
Fyrir þá sem hafa gaman af að dansa.
Þri. og fim. kl. 11:00.
12 viðhorf Helgin 29. nóvember-1. desember 2013