Fréttatíminn - 29.11.2013, Blaðsíða 16
Demanta hlaupari
heillaður af skordýrum
Orri Finnbogason fór 19 ára gamall í jólafrí til systur sinnar í New York eftir að hafa misst
móður sína í umferðarslysi. Jólafríið varð að fimm árum í stórborginni þar sem hann lærði
demantaísetningar í staðinn fyrir að sendast með
verðmæta skartgripi til viðskiptavina, og var
því svokallaður demantahlaupari. Eftir að
hann flutti aftur til Íslands kynntist hann
Helgu Gvuðrúnu Friðriksdóttur og í
ljós kom að þau höfðu nánast verið
nágrannar í New York án þess að
vita hvort af öðru. Þau hanna
nú saman undir merkinu Orri
Finn og voru að setja nýja línu á
markað þar sem þau sækja inn-
blástur til Forn-Egypta.
P arið Orri Finnbogason og Helga Gvuðrún Friðriks-dóttir hanna saman undir nafninu Orri Finn og eru að
setja á markað sína aðra línu, Scarab,
þar sem innblástur er sóttur í scarab-
bjöllurnar sem Forn-Egyptar álitu
heilagar. „Þeir tengdu bjölluna við
sólarguðinn og endurfæðingu. Bjallan
ýtti á undan sér stórri drullukúlu sem
inni í var allur matarforði hennar, og
þar geymdu þær líka eggin sín. Sólar-
guðinn ýtti sólinni inn í sjóndeildar-
hringinn á hverjum morgni. Þeir
sáu þessi líkindi og voru bjöllurnar
skornar út og notaðar sem verndar-
gripir. Þær voru jafnvel jarðaðar með
faróum,“ segir Helga. Á Hönnunar-
mars í fyrra sýndi Orri stóra eftir-
líkingu af scarab-bjöllu úr steinum
og silfri, en steinaísetning er eitt
af sérsviðum hans. Í framhaldinu
ákváðu þau að hanna heila línu með
bjöllunum. „Sem barn eignaðist ég
eftirlíkingu af scarab sem var skorin
út í lítinn stein. Ég var alveg heilluð
af henni og svo kom í ljós að Orri var
líka alveg heillaður af skordýrum,“
segir hún. „Við gerðum tvenns konar
bjöllur og vængirnir þeirra voru líka
innblástur,“ segir Orri.
Fyrri lína þeirra kallaðist Akkeri
og vakti mikla athygli. Báðar línurnar
eru hannaðar þannig að flestir grip-
irnir eiga að henta bæði körlum og
konum. „Það eru fáir sem hanna fyrir
bæði kynin og okkur langar svolítið
að breyta því að skartgripir séu alltaf
tengdir bara við konur,“ segir Helga.
Meðal þeirra sem heilluðust af Akk-
eri-línunni er aðalleikkona myndar-
innar Málmhaus, Þorbjörg Helga
Þorgilsdóttir, sem skartaði Akkeri
við heimsfrumsýningu myndarinnar í
Toronto. „Þetta er skart fyrir töffara,“
segir Orri.
Í staðinn fyrir brynvarðan bíl
Helga er með bæði hálsmen og
eyrnalokka úr Akkeri-línunni þegar
þau taka á móti mér á heimili sínu
við Vesturgötu í Reykjavík. Þau búa á
þriðju hæð með gott útsýni yfir sjóinn.
„Útsýnið er það besta við þessa íbúð,“
segir Helga. Bæði hafa þau sterka
tengingu við sjóinn, Helga eyddi
æskusumrunum hjá móðurfjölskyldu
sinni í Hnífsdal og Orri er uppalinn á
Akranesi. „Ég bjó þar með mömmu
minni. Ég á fjórar eldri systur sem all-
ar voru fluttar að heiman. Við mamma
vorum rosalega góðir vinir og mjög
náin. Þegar ég var 19 ára dó hún í
umferðarslysi og það var mikið áfall.
Ég fann að ég þurfti að skipta um um-
hverfi og ákvað að eyða jólunum hjá
systur minni sem bjó í New York,“
segir Orri. Þetta var árið 1995 og jóla-
leyfið varð að fimm árum. Systir hans
starfaði sem fasteignasali í borginni
og í gegnum sambönd útvegaði hún
honum vinnu á skartgripaverkstæði á
Manhattan, 47. stræti sem er miðstöð
skartgripaverslana.
Orri Finnsson og Helga Gvuðrún Friðriksdóttir á vinnustofunni þar sem þau hafa undanfarið ár unnið að nýju línunni, Scarab. Ljósmynd/Hari Framhald á næstu opnu
16 viðtal Helgin 29. nóvember-1. desember 2013