Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.11.2013, Blaðsíða 88

Fréttatíminn - 29.11.2013, Blaðsíða 88
 Í takt við tÍmann Rakel tómasdóttiR Í fimleikum í fjórtán ár Rakel Tómasdóttir er tvítug fimleikastelpa sem var í sigurliði Gerplu á Norðurlandamótinu í hópfimleikum á dögunum. Hún er auk þess nemi í grafískri hönnun í Listaháskóla Íslands, starfar hjá vefritinu Kjarnanum og hannar símahulstur undir nafninu Utopia. Staðalbúnaður Ég hef mikinn áhuga á tísku en er ekkert mikið fyrir að fylgja trendum. Ég reyni yfirleitt bara að finna jafn- vægi milli þess sem er þægilegt og flott. Mér finnst gott að vera í víðum og afslöppuðum fötum, sérstaklega fal- legum peysum. Flestar af uppáhaldsflíkunum mínum hef ég keypt í Urban Outfitters og Monki, maður reynir að nýta tækifærið þegar maður fer til útlanda. Mér finnst líka gaman að skoða notuð föt úr Spútnik eða einhverj- um flóamörkuðum. Ef ég nenni því finnst mér mjög gaman að vera á hælum en annars kemur það sér mjög vel upp á fimleikana að hlaupaskór séu í tísku. Maður þarf nefnilega að passa vel upp á fæturna á sér fyrir mót. Annars er ég ekki mjög hrifin af þessu íþróttatrendi sem er í gangi. Mér finnst gaman að vera í flottum íþrótta- fötum á æfingu en í skólanum langar mig að vera í ein- hverju öðru. Hugbúnaður Mér finnst mjög gaman að fara á kaffihús, bæði til að hitta vinkonur mínar og til að læra. Nýja uppáhalds kaffihúsið er Kaffismiðjan en annars er líka fínt að fara á Laundromat Café eða Loft Hostel. Annars eyði ég rosa- lega miklum tíma niðri í skóla eða í Gerplu. Við æfum svona fimm sinnum í viku, þrjá tíma í senn, fyrir mót svo maður er alltaf með þessum stelpum. Þetta eru allt mjög góðar vinkonur mínar enda hef ég æft fimleika síðan ég var sex ára. Ég horfi mjög lítið á sjónvarp. Eini þátturinn sem ég fylgist aðeins með er Greys Anatomy. Mér finnst skemmtilegra að skoða einhver blogg eða hönnun á net- inu, skoða ljósmyndir og grafík og fleira. Vélbúnaður Ég er með iPhone og nota Facebook og In- stagram. Svo nota ég Shazam sem er mjög gott þegar maður er að hlusta á útvarpið og langar að vita hvaða lag er verið að spila. Ég er með Macbook Pro og nota hana líka mikið, þar er ég með Photoshop og öll forrit sem þarf í þetta hönnunarstúss. Aukabúnaður Ég er ekki mikið fyrir að elda en reyni nú að borða heima þegar ég get. Ann- ars kaupi ég mér Nings, Serrano eða eitthvað svo- leiðis. Ég reyni að halda mig í hollustunni. Ég er á bíl sem er nauðsynlegt því ég bý lengst uppi í Kópa- vogi og er í skóla niðri í bæ. Fimleikaferðalögin eru þau einu sem ég hef farið í undan- farið. Ferðin til Árósa um daginn var ein sú skemmti- legasta sem ég hef farið í. London er annars í upp- áhaldi hjá mér. Það er mjög skemmtileg borg og þar er ótrúlega þægilegt að vera. SPARINAANWICH Glæsibæ • Dalvegi • N1 Ártúnsbrekku • Bæjarhrauni • Skoðaðu matseðilinn á saran.is Rakel er úr Reykjavík en flutti í Kópavog með foreldrum sínum fyrir nokkrum árum. Ljósmynd/Hari  appafenguR Appið Playtime with Dora the Explorer er eitt vinsælasta appið á mínu heimili. Það er búið til af fram- leiðendum þáttanna um Dóru land- könnuð og er mjög örvandi fyrir ung börn. Þrenns konar leikir eru í boði, minnisleikur, púsl og pörunarleikur. Hægt er að velja um þrenns konar erfið- leikastig í minnis- leiknum þar sem spjöldin eru allt frá 12 og upp í 30 en á öllum spjöldum eru persónur úr þátt- unum. Síðan þarf að finna samstæður og muna hvaða myndir eru hvar. Púslin eru frekar einföld en þar velja þátt- takendur sér mynd af Dóru og Klossa vini hennar, og fá hana þá sem púsl. Í pörunarleiknum eru einnig þrjú erfið- leikastig og tvær útgáfur þar sem birt er mynd af persónu úr þáttunum og finna þarf aðra eins í myndasafni. Börnin fá svo klapp og fagnaðarlæti þegar þau ljúka hverjum leik, nokkuð sem alltaf gleður litlar sálir. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Playtime with Dora the Explorer 88 dægurmál Helgin 29. nóvember-1. desember 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.