Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.11.2013, Page 14

Fréttatíminn - 29.11.2013, Page 14
 Vikan sem Var Fífl og dóni Þú ættir að skammast þín, þú ert óþverri. Páll Magnús­ son útvarps­ stjóri svaraði Helga Seljan að sjómannasið, eins og sönnum Eyjamanni sæmir, eftir átakafund með starfsfólki RÚV. Greinilega ekki! Hér er ekkert meiri neikvæðni en bara á Ríkisútvarpinu sjálfu. Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri á Útvarpi Sögu, svaraði því fullu hálsi þegar Sigríður Arnardóttir ræddi neikvæðnina á Útvarpi Sögu í þætti sínum á Rás 2. Hin grænfingraða lamandi bláa hönd Það er lamað andrúmsloft hér á stofnuninni núna. Hallgrímur Indriðason, formaður Félags fréttamanna og fréttamaður á RÚV, lýsti ástandinu í Efstaleitinu eftir að hópuppsagnir byrjuðu. Uuuuuu, ókey, Framtíðin í íslenskum fótbolta er mjög björt. Lars Lagerbäck ætlar að stýra íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu í tvö ár til viðbótar, fullur bjartsýni. Bara í þessu máli? Forsætisráðherra hagar sér mjög undarlega í þessu máli. Magnús Júlíusson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, hefur nokkrar áhyggjur af hugmyndum Sigmundar Davíðs um skuldaleiðréttingu. Og þú starfar hvar, segirðu? Hægra fólk stofnar fyrirtæki, vinstra fólk verður kennarar og blaðamenn. Hannes Hólmsteinn Gissurarson staðsetti sig vinstra megin við miðju í deilu við Evu Hauksdóttur. Þau drukku það allt Ég er í raun forviða, það hefði nú verið ódýrara hjá þessu fólki að hella einfaldlega brennivíni á lóðina. Sverrir Agnarsson, formaður félags Múslima, furðaði sig á undarlegum gjörningi andstæðinga moskubyggingar í Reykjavík sem lögðu svínshöfuð á lóðina þar sem fyrirhugað er að bænahúsið rísi. Farðu í endurmenntun, góði! Vandamálið við íslenska stjórnmálamenn, hvort sem þeir eru til vinstri, hægri eða fyrir miðju, er að þeir velja alltaf skammtímalausnir. Lars Christensen, aðalhag­ fræðingur Danske Bank, er þekktur fyrir skarpar greiningar ástandinu á Íslandi. Svenni sem býr á götunni segir nýtt gistiskýli ekki lausnina Farsótt í Reykjavík G istiskýlið í Þingholts-stræti þar sem heimilis-lausir geta leitað skjóls, þegar þar er pláss, hefur lengi gengið undir nafninu Farsótt- arhúsið. Farsótt er smitandi sjúkdómur sem breiðist ört út og leggst á tiltölulega marga. Í frumvarpi til sótt- varnarlaga er farsótt skilgreind sem „skrán- ingarskyldur smit- sjúkdómur sem ógnað getur almannaheill. Auk hinna almennu sóttvarn- aráðstafana, sem ætíð skal grípa til, heimilar frumvarpið einnig svo- kallaðar opinberar sótt- varnaráðstafanir vegna yfirvofandi farsótta.“ Nafngift hússins tengist þeim útigangsmönnum sem þar hafa fengið að gista ekki neitt heldur var húsið raunverulegt farsóttarsjúkrahús frá árinu 1920 þar sem sjúklingar með taugaveiki, skarlatssótt og barnaveiki voru einangraðir. Eftir að farsóttarsjúkrahús- inu var lokað voru áfengis- og taugasjúklingar vistaðir í hús- inu. Og síðan voru það útigang- smennirnir. Utan við innganginn blasir við gamalt flísagólf þar sem áður var líkskurðarhús. Í húsinu eru 20 rúm en undanfarna mán- uði hefur að jafnaði þurft að vísa einum eða tveimur frá á hverri nóttu. Þegar mest var, var sjö heimilislausum mönnum synjað þar um næturstað. Mennirnir hafa sofið þar allt að fjórir sam- an í herbergi og margir hafa notað áfengi og lyf til að deyfa sig þannig að þeir nái að festa svefn í hrotunum frá hinum. Vegna eldvarnarsjónarmiða hefur ekki mátt fjölga nætur- gestum í Farsóttarhúsinu og því verður gistiskýlið fært á Lindar- götu á vormánuðum. Þar verða einnig 20 rúm en þar sem húsið er stærra verður hægt að bæta við dýnum á gólfið ef þörf kref- ur. Sveinn Rafn Sigurjónsson segir í viðtali hér í Fréttatíman- um að honum finnist ekki verið að bæta stöðu heimilislausra með þessu heldur aðeins sé ver- ið að færa vandann. Sveinn, eða Svenni eins og hann er alltaf kallaður, hefur búið á götunni í fimm ár og lítur á Fógetagarð- inn sem stofuna sína. Hann segir mis andstyggilegt að sofa í gistiskýlinu og finnst hann hafa beðið of lengi eftir félagslegu húsnæði og dreymir allra mest um að geta boðið tólf ára dóttur sinni í heimsókn. Svenni er indæll maður. Hann lifir á bjór og reynir að láta daginn líða ein- hvern veginn, og alltaf læðist að honum sú hugsun að hann veit ekki hvar hann á að sofa næstu nótt. Þeir sem eiga reglulega leið um Laugaveginn og miðbæ Reykjavíkur hafa eflaust rekist á Svenna þar sem hann reynir að finna sér eitthvað að gera. Hann ber það utan á sér að hann hefur bundið bagga sína öðrum hnútum en samferðamennirnir og vakti hann þannig athygli þar sem við settumst niður saman á virðulegu kaffihúsi. Það eru margir sem vilja ekki hafa útigangsmenn og nálægt sér. Sumir líta jafnvel á aukn- ingu útigangsmanna í borginni sem farsótt. Þeir eru samt bara fólk eins og þú og ég sem hefur misstigið sig í lífinu á mismun- andi hátt. Það geisar þó farsótt í Reykjavík og sú farsótt heitir úrræðaleysi. Hann dreymir allra mest um að geta boðið tólf ára dóttur sinni í heimsókn. Volkswagen up! kostar frá 2.050.000 kr. www.volkswagen.is Lítill að utan og stór að innan Volkswagen up! setur ný viðmið í hönnun smábíla með því að sameina nett ytra rými og rúmgott innra rými. Hvergi er gefið eftir í kröfum um aksturseiginleika, gæðum né öryggi og því til sönnunar eru einróma hrós bílablaðamanna um allan heim og 5 stjörnu einkunn í árekstrarprófunum EuroNcap. Niðurstaðan er einföld: Volkswagen up! er alvöru smábíll. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Eyðsla frá 4,1 l/100 km A uk ab ún að ur á m yn d: s ól þa k, þ ok ul jó s í f ra m st uð ar a , s ky gg ða r rú ðu r og 1 6“ á lfe lg ur Erla Hlynsdóttir erla@ frettatiminn.is sjónarhóll 14 viðhorf Helgin 29. nóvember-1. desember 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.