Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.11.2013, Page 34

Fréttatíminn - 29.11.2013, Page 34
E ins og margoft hefur komið fram í köflunum hér að framan bar andinn oftar en ekki skynsemina ofurliði í lífi Jóns Páls Sigmarssonar. Það kom glöggt í ljós á ýmsum uppátækjum hans og sást best á því hvernig hann æfði og borðaði. Það var oftar en ekki eins og hver einasta æfing væri upp á líf og dauða og hver ein- asta máltíð væri síðasta kvöldmál- tíðin. Fjölmargar sögur eru til um uppátæki Jóns Páls sem báru þess merki að hann vildi lifa lífinu til fulls og tók oft áhættur sem seint verða taldar sniðugar. Sérstak- lega sást þetta vel á aksturslagi hans, sem var á köflum með allra háskalegasta móti að sögn vina hans. Það var eins og það vaknaði púki innra með honum ef hann sá einhvers staðar möguleikann á að storka örlögunum.. Torfi Ólafsson ferðaðist með Jóni Páli út fyrir landsteinana oftar en einu sinni. Torfi sem er með stærri mönnum, var einn fárra sem stóðst Jóni Páli snúning um skeið, bæði hvað varðar matarræði og lyfting- ar. Hann var þegar mest lét rúm 190 kíló og rúmir tveir metrar. Bar semsagt eitt stærsta stell sem sög- ur fara af á Íslandi. En þó að Torfi hafi verið stór og mikill og kallaði ekki allt ömmu sína, varð honum alls ekki um sel við sum uppátæki Jóns Páls á erlendri grundu. „Maður þurfti ekki að vera lengi með Jóni Páli til að sjá að hann lifði algjörlega á brúninni, kallinn. Það var ótrúlegt að fara með honum til útlanda. Þar lifnaði hann allur við, enda ekki sama smásjáin á honum eins og hér heima, þar sem hver einasti kjaftur vissi hver hann var. Ég fór oft með honum út, en mér er sérstaklega minnisstætt þegar við fórum saman í svokallaða landskeppni Íslands og Kaliforníu í kraftlyftingum, þar sem tíu voru í hvoru liði. Við flugum frá Keflavík og það var svo millilent í New York. Við komum þangað um klukkan sex að kvöldi og áttum ekki að fara til Los Angeles fyrr en daginn eftir. Þegar við komum til New York vildi Jón endilega drífa sig niður í bæ og við hoppuðum upp í tvo leigubíla, kraftakarl- arnir tíu frá Íslandi. Við bjuggumst svona fyrirfram við því að bílarnir myndu enda á Times Square, þar sem við gætum tekið myndir eins og venjulegir túristar. En Jón Páll hafði nú minnstan áhuga á því, hann vildi endilega fara upp í Harlem og skoða hættulegustu svertingjahverfin. Þetta var upp úr 1980 og það var ekki búið að hreinsa upp glæpina í New York, þannig að hlutar af Harlem voru beinlínis stórhættulegir, en Jóni var nákvæmlega sama. Hann bað bílstjórann um að stoppa þegar við vorum komnir í svartasta hlutann af Harlem, þar sem almenna við- kvæðið var að hvítt fólk ætti alls ekki að láta sjá sig eftir myrkur. Þó að við höfum verið þarna tíu saman algjörir beljakar, held ég að mér sé óhætt að segja að níu af okkur leist ekkert á blikuna þegar við röltum að kvöldlagi í hverfum þar sem ekki var hvítan mann að sjá og eiturlyfjasalar á hverju horni. Jón Páll aftur á móti brosti út að eyrum og hafði ógurlega gaman að þessu. Hann gerði í því að böggast í nokkrum dópsölum þarna, þannig að það endaði með því að þeir voru allir á eftir okkur alveg snarbrjálaðir“ Hjalti „Úrsus“ varð eins og Torfi vitni að þessu og segir senuna hafa gengið nokkurn veginn svona fyrir sig: „Þeir byrjuðu á að bjóða okkur gras og Jón svaraði því til að við vildum eitthvað sterkara. Þá færðu þeir sig upp á skaftið og buðu hass eða kókaín, en Jón sagðist vilja eitthvað miklu sterkara. Þetta hélt svo áfram þar til þeir voru farnir að bjóða okkur heróín og krakk, en Jón hætti ekki að fíflast í þeim, þar til þeir voru orðnir arfavit- lausir. En við vorum sem betur fer ansi hraustir og tíu talsins, þannig að þeir lögðu ekki í okkur. En þegar þeir voru farnir að vera með fullmikla stæla og farnir að ögra okkur tók Jón Páll málin í sínar hendur. Hann sneri sér við, spennti handleggina upp í loftið og kallaði að lokum á þá: „Þið eigið ekkert dóp sem er nógu sterkt handa mér!“ Sem betur fer leist þeim mátu- lega á þennan kolruglaða gæja og þeir létu okkur í friði eftir þessa uppákomu, enda skynjuðu þeir væntanlega brjálæðið í Jóni Páli og að þar færi maður sem væri ekkert gaman að lenda í. En þetta er bara lítið dæmi um það hvernig hann var stöðugt að ögra og storka örlögunum.“ Jagúar og Lödudruslur þandar Torfi Ólafsson segir að sú tilhneig- ing Jóns Páls að lifa hratt hafi komið sérstaklega vel fram þegar hann var undir stýri. Þar var spilað upp á líf og dauða eins og annars staðar. „Ég man einu sinni þegar við erum að fara að sýna á Blöndu- ósi og vorum á einhverri gamalli Lödudruslu. Hann keyrði hana eins og hann væri á nýjum Ferrari. Ég hef aldrei verið jafnhræddur á ævi minni. Annað svona tilvik var þegar við vorum á hraðbrautunum Fífldirfska Jóns Páls Kraftajötuninn Jón Páll Sigmarsson varð á gullaldarárum sínum ítrekað sterkasti maður heims. Í janúar á þessu ári voru tuttugu ár liðin frá því Jón Páll kvaddi þennan heim aðeins 33 ára að aldri. Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason hefur lokið við ritum ævisögu Jóns Páls sem er að koma út hjá bókaútgáfunni Tindi: „Jón Páll – Ævisaga sterkasta manns í heimi.“ Sölvi setti sig í samband við fjölda fólks sem stóð Jóni Páli nærri, meðal annars son hans og barnsmóður. Við grípum hér niður í söguna þar sem sést berlega að uppátæki Jóns Páls báru þess oft merki að hann vildi lifa lífinu til fulls og tók oft óþarfa áhættu. Vel skorinn og vígalegur í sólinni. Sverðslyfta á Hálandaleikum. Þrautin er að halda sverðinu sem lengst með fram- réttum beinum handleggjum. JólaGjöf iN í á R f yr i r öMmur Og a fA - fæsT í HagkaUp og eymuNdssoN l e I k f i m I s æ F i n g a R f y r i r f ó l K á b e s tA a l d r I Styrkur • Þolfimi • Jóga • Pilates • Teygjur 8 laufléttir æfingatímar með íslenskri dægurlagatónlist 34 bækur Helgin 29. nóvember-1. desember 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.