Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.11.2013, Qupperneq 48

Fréttatíminn - 29.11.2013, Qupperneq 48
Börn og foreldrar þurfa að upplifa sameiginlegan heim Þ essi barnabók kom bara til mín. Ég sagði strákunum mínum þessa sögu þegar þeir voru litlir og síðan hefur hún alltaf fylgt mér. Hún varð til þegar ég var að svæfa strákana mína, mér fannst hún virka svo vel því að við erum borgarbörn og þarna var komin leið til að vinna með heitin á íslensku dýrunum,“ segir Sigríður Arnardóttir fjölmiðlakona eða Sirrý eins og flestir þekkja hana. Hún er að gefa út sína fyrstu barnabók núna um jólin sem heitir „Tröllastrákurinn sem gat ekki sofnað.“ Bókin fjallar um íslenskan tröllastrák sem býr á Snæfellsnesinu og á við vandamál að stríða. Honum tekst að finna lausn á vandamáli sínu sem um leið gleður öll dýrin í sveitinni. „Pabbi minn á jörð í Snæ- fellsnesi í Staðarsveit sem myndirnar eru af og Frey- dís Kristjánsdóttir teiknar. Á sumrin sit ég þar oft á steini í flæðarmálinu og horfi upp í fjöllin og þá koma svona sögur til manns. Fjöllin, náttúran og dýrin hafa áhrif á sköpunina,“ segir Sirrý. „Ég er hrifin af því hvernig Freydís teiknar íslensku dýrin. Myndirnar í bókinni eru jarðbundnar og ná vel íslenskri náttúru og svo er Freydís líka með skemmtilegan húmor sem börnin taka vel eftir og kunna að meta,“ segir Sirrý. Mjög framtakssöm sem barn „Ég var mjög kraftmikið og skapandi barn, var ásamt vinum mínum alltaf að stofna félög, byggja kofa og bjóða fólki upp á leiksýningar og brúðuleikhús. Við bjuggum til leikhúsið sjálf sem og auglýsingarnar og svo buðum við fólki og seldum aðgöngumiða. Krakk- arnir gátu fengið popp og djús,“ segir Sirrý. Hún seg- ist hafa verið mjög stjórnsöm sem barn. „Eitt skipti var ég var lasin og hafði verið að rækta grænmeti í skólagörðunum en var staðráðin í að byggja kofa í Fossvoginum þar sem ég bjó. Ég gat ekki farið út að byggja sjálf og leysti það með því að gefa hinum krökkunum skipanir úti um gluggann. Ég gaf verka- mönnunum grænmeti að launum. Ég var framtaks- söm og hafði mikla framkvæmdagleði,“ segir Sirrý. „Ég og Ólafur Guðmundsson leikari vorum miklir vinir og þegar við vorum 9 ára gömul áttum við okkar uppáhaldsleik. Við lékum okkur saman í hlutverkal- eik þar sem hann var leikari og ég var útvarpsmaður. Hann lék fólk á förnum vegi og ég að tók viðtöl við alls konar fólk. Afraksturinn tókum við upp á kassettur. Svo varð hann leikari og ég fjölmiðlakona,“ segir Sirrý og hlær. Sagan um tröllastrákinn Vaka er þriðja bókin sem Sirrý skrifar en hún hefur þegar gefið út tvær aðrar bækur, „Laðaðu til þín það góða“ og „Örugg tján- ing – betri samskipti“. Þær bækur vann Sirrý eftir áralanga reynslu af því að halda námskeið til þess að efla fólk. „Það er ein af mínum helstu ástríðum í lífinu að kenna fólki að takast á við sviðsskrekk og kvíða. Þjálfa fólk í því að tjá sig af öryggi og láta kvíðann vinna með sér,“ segir Sirrý. Nú kennir Sirrý námskeiðið „Framsækni – Örugg tjáning“ við Há- skólann á Bifröst. Lestur ríkur þáttur í æsku „Þegar ég var stödd á Snæfellsnesi, en þangað fer fjöl- skyldan gjarnan, og horfði á fjöllin þá kallaði tröllast- rákurinn sem býr þarna á mig. Það er svo gaman að sjá hvernig heilinn og hugurinn virkar því um leið og ég var búin með þessa bók þá skapaðist rými á harða disknum fyrir nýjar hugmyndir. Stundum þurfum við að klára hluti til að endurnýja jarðveginn fyrir nýjar hugmyndir,“ segir hún. „Ég fór að horfa á stelpuna í bókinni, sem býr á bóndabænum, og í næstu bók munu þau Vaki kynnast og lenda í ævintýrum. Ég ól upp stráka og það hefur áhrif á að aðalpersónan er strákur en mér finnst mjög mikilvægt að bæði stelpur og strákar séu í sögunum okkar,“ segir Sirrý. Sirrý segir að mjög mikil áhersla hafi verið á lestur á hennar heimili og að hún hafi lesið mjög mikið sem barn. „Það vakna mjög sterkar tilfinningar og minn- ingar þegar ég sé að verið er að endurútgefa bækur sem voru mér mjög kærar sem barn. Það var mjög rík- ur þáttur í mínu uppeldi,“ segir Sirrý. „Aðstæður geta verið svo margvíslegar í nútímanum en að sitja með barni og lesa fyrir það bók eða segja því sögu er mjög gott mótvægi við álag, streitu, óvissu og áhyggjur sem er í okkar lífi sem og barnanna því að þá myndast nánd. Þá er verið að upplifa sameiginlegan heim sem er hér og nú,“ segir Sirrý. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is Sirrý hefur skrifað sína fyrstu barnabók sem fjallar um afar sniðugan tröllaskrák sem býr við rætur Snæfellsness. Söguna sjálfa hafði Sirrý samið fyrir löngu og notað til þess að koma strákunum sínum í svefn. Sirrý lumar á mörgum sögum enda nýtur hún þess að segja þær. Ljósmynd/Hari frábærtVErð! – fyrst og fre mst ódýr og snjöl l 1098 kr.kg Verð áður 1698 kr. kg Íslenskur kalkúnn, frosinn 35%afsláttur 48 viðtal Helgin 29. nóvember-1. desember 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.