Fréttatíminn - 29.11.2013, Side 71
matur & vín 71Helgin 29. nóvember-1. desember 2013
OSTAVEISLA FRÁ MS
Gullostur
Hvítmygluostur. Hvítmyglan er einnig
inni í ostinum. Áhugaverður ostur
með mildu bragði sem gott er að
njóta í lok góðrar máltíðar. Þessi
ostur er einn af flaggskipunum í
ostafjölskylduni frá MS.
Heilbakaður Gullostur
með timjan og hvítlauk
Vefjið smjörpappír utan um ostinn, pikkið átta göt ofan í
ostinn og stingið ögn af timjan ásamt þunnum sneiðum
af hvítlauk ofan í götin. Dreypið örlítilli ólífuolíu yfir.
Pakkið ostinum aftur inn í bréfið sem var utan um hann
og bakið hann í 30 mínútur við 160°C. Berið ostinn
fram með grilluðu hvítlauksbrauði.
Osta er hægt að bera fram með ýmsum hætti, það
má t.d. borða Gullostinn með góðu ávaxtamauki, eða
með hnetum og hella síðan góðu hunangi yfir eða setja
í hann fyllingu úr þurrkuðum ávöxtum s.s. apríkósum
og fíkjum og skreyta hann að ofan með þurrkuðum
trönuberjum og hlynsírópi. Búa til litlar og fallegar
ostasamlokur eða ostasnittur.
Kynntu þér fleiri góðar hugmyndir og
uppskriftir á heimasíðunni: www.ostur.is
Ostabakki
- antipasti
Grillaðar paprikur, sól- eða ofn-
þurrkaðir tómatar, grillað eggaldin,
hráskinka og þurrkaðar pylsur.
Gullostur, gráðaostur með ferskri
peru, blár Kastali.
Steyptur villisveppaostur skorinn út
í litla hringi. Maribóostur. Kryddað
apríkósumauk. Baguette-brauð.
Uppskriftina að kryddaða apríkósu-
maukinu má finna á vefnum www.ostur.is
Hráefni:
150 g möndlur
75 g heslihnetur
75 g pistasíur
100 g sykraður
appelsínubörkur
75 g hveiti
30 g kakó
1/2 tsk negull
1/2 tsk kanill
1/2 tsk múskat
1/2 tsk hvítur pipar
150 g sykur
150 g fljótandi
hunang
35 g smjör
flórsykur
Aðferð
Hrærið saman
hnetum og
appelsínuberki.
Sigtið hveiti, kakó
og krydd og blandið
saman við hnetur.
Hitið sykur, hunang
og smjör varlega
þangað til sykurinn
hefur leyst upp og
sjóðið í 3-4 mínútur.
Blandið sírópinu
fljótt saman við
þurrefnablönduna
og setjið í kringlótt
form sem klætt
hefur verið með
bökunarpappír.
Þrýstið deiginu
út í formið með
fingrunum. Bakið í
150 gráðu heitum
ofni í 40 mín-
útur og látið kólna í
forminu. Fjarlægið
bökunarpappír og
stráið flórsykri yfir.
Berið fram í litlum
bitum.
Ítölsk hnetukaka
Önnur þekkt ítölsk jólakaka er Panforte Di Siena.
Hér er uppskrift að henni.