Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.11.2013, Blaðsíða 74

Fréttatíminn - 29.11.2013, Blaðsíða 74
74 skák og bridge Helgin 29. nóvember-1. desember 2013  Skák NorSkur heimSmeiStari Carlsen fór létt með Anand J æja, nú eigum við norskan heimsmeistara í skák! Hver hefði trúað því fyrir 10 árum eða svo? Magnus Carlsen hrein- lega bakaði Vishy Anand í einvígi þeirra í Chennai, heimaborg An- ands, og var búinn að tryggja sér sigur eftir tíu skákir, en til stóð að tefla tólf. Carlsen vann þrjár skák- ir, en sjö lauk með jafntefli. Ein- vígið fór heldur dauflega af stað, með tveimur litlausum jafnteflum, en síðan æstust leikar. Hart var barist í þriðju og fjórðu skákinni, en báðum lauk þeim með jafntefli. Svo tók Carlsen öll völd, og sýndi af hverju hann er næstum hundrað skákstigum hærri en Anand. Carlsen vann fimmtu og sjöttu skákina, og þá voru úrslit í reynd ráðin. Ótrúlegur svíðingssigur hans í 9. skákinni þýddi að Anand varð að vinna þrjár skákir til að jafna metin og tryggja framleng- ingu. Slíkt er jafnvel snillingi eins og Anand ofviða, hann lagði allt í sölurnar í 10. skákinni, en Carlsen var aldrei í teljandi vandræðum og tryggði jafntefli af einurð og festu; og er þar með orðinn 16. heims- meistarinn í skák. Anand mun ásamt sjö öðrum kempum tefla á áskorendamóti næsta vor, en sig- urvegarinn þar öðlast keppnisrétt við Carlsen. Það eru hinsvegar hverfandi líkur á að nokkur skáki Carlsen næstu árin. Hann verður 23 ára á morgun, og gæti hæglega setið á veldisstóli í 10 eða 20 ár. Skemmtikvöld fyrir ungmenni Skákskólinn og Skákakademían standa fyrir skemmtikvöldi ung- menna fædd 1990-1999 á laugar- dagskvöldið kemur. Kvöldið fer fram á sal Skákskólans. Á kvöldinu verða tveir merkilegir fyrirlestrar ásamt hraðskákmóti í Heilinn og höndin þar sem tveir stórmeist- arar munu tefla! Sjónvarpsstjarnan og skemmtikrafturinn Björn Þorfinnsson hefur einna mestu reynslu Íslendinga af taflmennsku á opnum erlendum mótum síðustu tvo áratugina. Björn hefur teflt ansi víða og hefur verið lunkinn við að finna skemmtileg erlend mót þar sem hægt er að hækka á stigum og njóta taflmennskunnar í botn. Að mörgu þarf að huga þegar farið er á erlend mót; gisting, flug, að- stæður á mótsstað, möguleikar á að hækka á stigum, veðurfar og fleira. Frá öllu þessu og ferðum sínum mun Björn segja frá á léttan og ljúfan hátt. Árangur Hjörvars Steins Grétars- sonar þarf vart að kynna, en hann varð á dögunum stórmeistari, en hvað nákvæmlega liggur að baki? Hversu marga klukkutíma stúderaði hann sjálfur þegar hann var fimmtán ára, hafði hann kvóta á þeim hraðskákum sem hann tefldi, hvað fór hann oft utan að tefla á hverju ári, hefur hann haldið sig við sömu byrjanir síðan hann var lítill, leggur hann áherslu á hreyfingu og hollt líferni? Hjörvar mun í snagg- aralegum fyrirlestri fara yfir stað- reyndir frá sínum ferli, allt til þess að efnileg ungmenni viti hvað þarf til að bæta sig í skák og á hvað skal leggja áherslu. Að loknum fyrir- lestrum verða veitingar og svo hrað- skákmót í Heilinn og höndin. Húsið opnar 19.30 og fyrirlestrar hefjast 20. Aðgangseyrir 1000 kr. Skráning á FB-síðu kvöldsins eða á stefan@ skakakademia.is. Skákgleði á Grænlandi Liðsmenn Hróksins eru nú á Græn- landi og í gær hófst mikil skákhátíð í Upernavik, sem er á 73. breidd- argráðu, og hefur verið kallaður „gleymdi bærinn á Grænlandi“. Þar búa 1200 manns og um 800 til við- bótar í 10 litlum þorpum í nágrenn- a ðalsteinn Jörgensen og Sverrir Ármannsson unnu öruggan sigur á Íslandsmóti eldri spilara sem fram fór laugardaginn 23. nóvember. Sigur þeirra félaga byggðist mestmegn- is á vandaðri spilamennsku, sérstaklega í úrspili þar sem lögð var áhersla á þýðingu allra spilanna, líka þeirra lægri. Þetta spil er gott dæmi um það, suður gjafari og allir á hættu. ♠ Á1065 ♥ 10752 ♦ ÁK7 ♣ D7 ♠ K932 ♥ ÁD6 ♦ 9654 ♣ ÁK ♠ G84 ♥ K83 ♦ 108 ♣ 108642 ♠ D7 ♥ G94 ♦ DG32 ♣ G953 N S V A Sagnir gengu hjá S-N, sterkt lauf (16+ punktar) og eitt grand (jafnskipt hönd 8-13 punktar) – 2 lauf og 3 hjörtu = samkvæmt Super Precision sagnkerfinu sem sýnir 11- 13 punkta og 4 hjörtu og 4 spaða. Sverrir lauk sögnum með 4 spöðum með lágmark fyrir laufopnun. Níu sagnhafar spiluðu 4 spaða og 2 sagnhafar voru metnaðarfyllri og keyrðu alla leið í 6 spaða. Níu sagnhafar fengu 9 slagi en aðeins 4 stóðu spilið (í 4 spöðum). Á borði Aðalsteins og Sverris var útspilið tígultía. Sverrir drap á ás, spilaði spaða á kóng og meiri spaða. Sverrir var að fá á tilfinninguna að hjartasvíning gengi ekki og setti spaðatíu úr blindum. Austur spilaði eðlilega tíguldrottningu, inni á spaðadrottningu, sem gerði tígulníuna heima að stórveldi. Sverrir tók næst ÁK í laufi, spilaði spaða á ás og litlu hjarta. Austur var ekki vakandi og setti fjarkann. Sexan heima leysti öll vandamál og tryggði tíunda slaginn. Ef austur setur níuna, setur Sverrir drottninguna. Andstaðan gerir best í því að spila hjarta áfram og spilið vinnst ef Sverrir finnur að setja sjöuna í blindum. Fyrir 4 spaða slétt staðið fengust 17 stig af 20 mögulegum. Lokastaða 5 efstu para varð þannig: 1 . Aðalsteinn Jörgensen – Sverrir G. Ármannsson 63,0% 2 . Hallgrímur Hallgrímsson – Sigmundur Stefánsson 60,8% 3. Sigurður Skagfjörð – Sverrir Þórisson 56,2% 4. Björn Friðriksson – Jóhann Ævarsson 56,0% 5. Kristján Snorrason – Hjálmar S Pálsson 54,8% Sagnkeppni og Butlertvímenningur Skráning er hafin í Íslandsmótið í But- lertvímenning sem fer fram laugardaginn 7. desember. Spilamennska hefst klukkan 11 og verður spilað í Síðumúla 37. Núverandi Íslandsmeistarar eru þeir Kristján Blöndal og Páll Valdimarsson. Íslandsmótið í sagnkeppni fer fram föstu- daginn 6. desember. Mótið hefst klukkan 19.30 og lýkur um klukkan 22.30. Melduð verða 30 spil og skráning á staðnum. Helgi og Haukur í forystu í BR Helgi Sigurðsson og Haukur Ingason skoruðu mest á öðru spilakvöldi í Sushi Shamba tvímenningi Bridgefélags Reykja- víkur. Þeir hafa skorað flesta impa að loknum 2 kvöldum af 3 og staða 5 efstu para er þannig: 1. Helgi Sigurðsson – Haukur Ingason 79 2. Sigurbjörn Haraldsson – Jón Baldursson 72 3. Björn Eysteinsson – Guðmundur Sv. Hermannsson 66 4. Hlynur Garðarsson – Hermann Friðriksson 45 5. Oddur Hjaltason – Hrólfur Hjaltason 42,1 Í síðasta spiladálki var greining á spilinu vitlaus. Samningurinn var 4 spaðar og get- ur unnist með því að fara aldrei í trompin. Því var haldið fram að spilið ynnist með því að taka 2 hæstu í trompi og hreinsa upp lauf og hjarta áður en tígli var spilað.  Bridge ÍSlaNdSmót eldri Spilara Öruggur sigur Aðalsteins og Sverris inu. Frumkvæðið að hátíðinni á Ingibjörg Gísladóttir, sem starfar í flugturninum í Upernavik, og Jósep bróðir hennar er meðal leið- angursmanna. Jósep er margt til lista lagt, og er m.a. sprenglærður píanókennari. Hann mun halda að- ventutónleika í kirkjunni í Uperna- vik á sunnudaginn, auk þess sem efnt verður til fleiri tónlistarvið- burða. Og auðvitað verður efnt til fjölda skákviðburða, fyrir börn og fullorðna. Svo skemmtilega vill til að í Upernavik býr Steffen Lynge, sem náði bestum árangri grænlenskra skákmanna á fyrsta móti Hróksins í Qaqortoq árið 2003. Stofnað verður skákfélag í Upernavik, og það er í traustum höndum hins vaska Steffens, sem jafnframt er tónlistarmaður og lög- reglumaður. Hann hefur einmitt náð undraverðum árangri með unglinga, með skák og tónlist að vopni, og beint mörgum á rétta braut í lífinu. Aðalsteinn Jörgensen og Sverrir Ármannsson voru að vonum ánægðir með sigurinn á Íslands- móti eldri spilara í tvímenningi. Guðný Guðjóns- dóttir, varaforseti BSÍ, afhenti verðlaunin og er með þeim á myndinni. Glaðasti skákdrengur í heimi. Þessi ungi piltur heitir Nuka og er yngsti liðsmaður Skákfélagsins í Nuuk, sem er vinafélag Hróksins. Nuka mætir á alla æfingar, jafnan með sitt ósigrandi bros á vör. Hann var heiðraður af Hróksmönnum í Nuuk á þriðjudaginn, og fór heim með íslenska fánann og fleiri gjafir – og auð- vitað bjartur og brosandi. Loksins ...skákbók fyrir byrjendur SÍMI 588 6609 · WWW.TOFRALAND.IS „Ég get mælt með þessari vönduðu skákbók fyrir alla byrjendur.“ Gunnar Björnsson, forseti skáksambands Íslands „... skemmtileg og aðgengileg handbók fyrir skákkennslu ... ég fagna útgáfu hennar. “ Stefán Bergsson, framkvæmdastjóri Skákakademíunnar Bókin Lærum að tefla er komin út! Aðgengileg bók fyrir börn og byrjendur í skák. Farið er yfir grunnatriði eins og mannganginn og einfaldar skákfléttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.