Fréttatíminn - 29.11.2013, Qupperneq 90
Ekki einn í heiminum
Páll Magnússon stendur í ströngu þessa
dagana, blóðugur upp að öxlum með
niðurskurðarhnífinn á lofti og er ekki
vinsælasti maðurinn innan veggja RÚV í
Efstaleitinu. Palli er þó ekki alveg einn í
heiminum og þannig steig Egill Helgason
fram fyrir skjöldu á Facebook og furðaði
sig á því hversu fólk
geti verið „skrítið“, að
beina reiði vegna upp-
sagnanna að Páli en ekki
„þeim sem hafa skorið
niður fjárveitingar til
stofnunarinnar hvað
eftir annað síðasta hálfa
áratuginn.“
BÆKUR hafnfiRsKaR sKemmtisögUR
Ingvar Viktorsson er í góðum gír í
bókinni Húmör í Hafnarfirði þar sem
hann segir gamansögur af sjálfum sér og
sveitungum sínum. Mynd/Hari
g aflarinn Ingvar Viktorsson er maður sem getur að eigin sögn allt, nema fara í megrun. Hann
hefur upplifað margt, séð enn meira og
heyrt ótal gamansögur og hnyttin til-
svör þá áratugi sem hann hefur haldið
til í Hafnarfirði. Hann var bæjarstjóri í
Firðinum, á fullu í félagsmálunum og að
sjálfsögðu áberandi innan FH.
Ingvar hefur nú safnað saman og
gefið út á bók skemmtisögur af sjálfum
sér og samferðafólki í Hafnarfirði en
eins og alkunna er þykja gaflarar með
fyndnara fólki. Hann segir bók sína,
Húmör í Hafnarfirði, þó ekki vera
neina Hafnarfjarðarbrandarabók enda
sé fólk löngu hætt að gera slíkt grín
að Hafnfirðingum. Enda má víst telja
það stjórnarskrárbrot að gera grín að
minnihlutahópum þótt Ingvar vilji að
vísu ekki kannast við að Hafnfirðingar
flokkist sem slíkir.
Ingvar kenndi við Flensborgarskóla
frá 1963 og hefur fylgt ófáum æringj-
unum úr Hafnarfirði einhvern spöl á
menntaveginum og skólastarfið kemur
þó nokkuð við sögu í bókinni.
Ingvar segist fyrst og fremst vilja
með bókinni halda til haga frábærum
karakterum sem megi ekki falla í
gleymskunnar dá og viðbrögðin hafa
verið slík að fólk er farið að senda
honum sögur af Hafnfirðingum og
hann er að sjálfsögðu byrjaður á
næstu bók.
Á golfvellinum
Á upphafsárum golfklúbbsins
Keilis var skrásetjari að berjast
við að ná tökum á golfíþróttinni
og gekk það satt best að segja
brösuglega.
Ég vildi endilega fá
vin minn og félaga,
Þóri heitinn Jóns-
son, með í sportið
og tók hann því
með út á Hval-
eyri einn góðan
veðurdag og
ætlaði að
kenna honum
undirstöðuat-
riðin í íþrótt-
inni. Ég
stillti upp
bolta og tók
upp kylfu
og sló, en
hitti ekki
boltann.
Ég reyndi í
annað sinn en allt fór á sama veg, bolt-
inn hreyfðist ekki, og þegar ég hafði
reynt í þriðja sinn með sama árangri
sagði Þórir, sem fylgst hafði með af
miklum áhuga:
„Já, þetta er helvíti sniðugt, en til
hvers er boltinn?“
Áhaldahúsið
Einn daginn mætti Guðmundur
Valdimarsson, kallaður Gummi Valda,
draghaltur í vinnuna. Elías Már smiður
vatt sér að honum og spurði:
„Varst þú að meiða þig, Guðmundur
minn?“
Guðmundur svaraði að bragði.
„Nei, Elli minn, ég var ekki að meiða
mig, heldur eru það stígvélin mín sem
eru misdjúp.“
Úr Víðistaðaskóla
Í Víðistaðaskóla hafa komið margar
skemmtilegar ritgerðir frá yngstu
nemendunum eins og þessar tvær. Þær
eru stuttar en segja allt sem nemand-
inn vildi að fram kæmi. Sú fyrri er um
nytsamasta húsdýrið og hljóðar svona:
„Hænan er nytsamasta húsdýrið af því
að það er hægt að borða hana áður en
hún fæðist og líka eftir að hún er dauð.“
Hin ritgerðin fjallar um kúna og er á
þessa leið:
„Kýrin. Barnið hennar heitir kálfur.
Kýrin er kvendýr og er spendýr, karl-
dýrið heitir naut og sko ekki spendýr.“
Hildur Guðmundsdóttir
Hildur Guðmundsdóttir hefur lengi
kennt við Grunnskóla Hafnarfjarðar
og átt þar mjög farsælan feril og hefur
öllum nemendum hennar þótt vænt um
hana. Hún hefur frá ýmsu að segja eftir
öll þessi ár.
Einn nemandi minn, stúlka sem
stundum fór mikið fyrir, átti það til að
koma of seint að morgni. Henni líkaði
þetta illa og fór oft mikið fyrir henni
þegar hún var að koma sér fyrir.
Einu sinni sem oftar er hún seint
á ferðinni og hafði greinilega gengið
mikið á heima, því hún kom með þjósti
miklum inn í stofu, slengdi upp hurð-
inni og sagði hátt og skýrt:
„Sko, Hildur, ég kem alltaf of seint
þegar mamma og pabbi fara saman í
sturtu.“
Eitt sinn kom nemandi minn, stúlka
nokkur sem oft leit lífið öðrum augum
en við hin, of seint. Ég spurði hana
hverju það sætti. Þá svaraði hún:
„Ég kom of seint, af því að við pabbi
vorum að grilla tígrisdýr á svölunum.“
Ingvar Viktors-
son, fyrrverandi
bæjarstjóri
Hafnarfjarðar
með meiru,
hefur tekið
saman gaman-
sögur af sveit-
ungum sínum í
bókinni Húmör
í Hafnarfirði.
Hafnfirðingar
eru annálaðir
fyrir gott geðs-
lag og að hafa
ekki síst húmor
fyrir sjálfum sér.
Þess sjást glögg
merki í Húmör
í Hafnarfirði en
Ingvar lætur
hér nokkrar vel
valdar sögur
flakka.
Grillað tígrisdýr
á svölunum
Bragi Þór unir hag sínum vel í konungsríkinu Bafokeng og vonast til þess að
fólk styðji hann til þess að koma með kórinn sinn til Íslands.
BRagi ÞóR stjóRnaR KóR í afRísKU KonUngsRíKi
Hrellir ekki kórfélaga með miklu eldfjallatali
Tónlistarmaðurinn Bragi Þór
Valsson hefur búið í Suður-Afríku
undanfarin þrjú ár og starfar nú
sem tónmenntakennari og kórstjóri
hjá tónlistarskólanum Lebone II
College of the Royal Bafokeng í kon-
ungsríkinu Bafokeng. Skólinn telur
800 nemendur og nýtur sérstakrar
velvildar konungsins sem fylgist
náið með starfinu.
Tónskóli Sigursveins D. Krist-
inssonar hefur boðið kammerkór
Lebone að koma fram á 50 ára af-
mælishátíð Tónskólans í Eldborgar-
sal Hörpu 30. mars 2014 og Bragi
Þór hefur hafið söfnun á vefnum
Karolinafund til þess að reyna að
fjármagna ferðalagið sem eins og
gefur að skilja gæti orðið mesta
ævintýraferð lífs meðlimanna.
„Kórfélagarnir eru mjög spenntir
fyrir Íslandsferðinni,“ segir Bragi.
„Þau vita náttúrulega ekkert um
Ísland nema það sem ég hef sagt
þeim. Ég hef samt verið frekar
rólegur í tali um eldfjöll og jarð-
skjálfta, svo foreldrar þeirra fríki
ekki út. Fyrir flest þeirra verður
þetta óneitanlega mesta ferðalag
sem þau hafa nokkurn tíma farið í.“
Bragi unir hag sínum vel í Afríku.
„Það er frábært að búa í Suður-Afr-
íku. Veðrið er æðislegt, verðlag er
um 30% lægra en á Íslandi og hús-
næði líklega 60% ódýrara. Maturinn
er góður og fólkið er skemmtilegt.
Það er náttúrulega ekki hjá því
komist að Suður-Afríka hefur hæstu
glæpatíðni í heimi en maður lifir
bara með því, svipað og maður býr
við eldgosahættuna á Íslandi. Það er
alls staðar eitthvað neikvætt,“ segir
Bragi sem vonast til þess að geta
komið með kammerkórinn sinn í
ævintýraferð til Íslands.
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
KLASSÍSK AÐVENTULJÓS
Frá Svíþjóð
Frá Svíþjóð
16 GERÐIR
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
Opið kl. 11 - 16 laugardag
Opið kl. 13 - 16 sunnudag
Geðveik jól á RÚV
Vikan hefur verið erfið fyrir starfsfólk Ríkisút-
varpsins í Efstaleiti og hollvini stofnunarinnar.
Margt þekkt fjölmiðlafólk missti vinnuna og eftir
helgi verður kynnt hvernig dagskrá út-
varps og sjónvarps verður skert vegna
niðurskurðarins. Það eru þó ekki bara
slæmar fréttir sem berast þaðan því
RÚV hefur tryggt sér sýningarrétt
á Geðveikum jólum sem undan-
farin ár hafa verið á Skjá einum.
Hið ástsæla tvíeyki Gunna Dís og
Andri Freyr mun stýra þáttunum.
Að þessu sinni munu 12 fyrirtæki
keppa um besta jólamyndbandið.
Vefurinn Gedveikjol.is opnar föstudaginn
6. desember.
Afneitar svínshausum
Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi
borgarstjóri, hefur hvergi farið leynt
með andstöðu sína gegn byggingu
mosku í Reykjavík og hefur meðal annars
tekist að tengja umræðuna Tyrkjaráninu
og teygt málið í ýmsar aðrar frumlegar
áttir. Hann þvoði þó hendur sínar á
Facebook af blóði svínanna sem áttu
höfuðin sem skilin voru eftir á lóðinni
þar sem moskan á að rísa þegar hann
kvartaði yfir því að DV reyndi að tengja
hann svínshausunum. „Ég fyrirlít ofbeldi
og þar með þá sem stóðu að þessum
gjörningi. Lögreglurannsókn verður að
fara fram á þessu athæfi, því að nær allir
aðilar málsins, bæði andstæðingar og
stuðningsmenn moskunnar eru líklegri
en ég til að gera svona.“ Skrifaði Ólafur
og var talsvert niðri fyrir.
90 dægurmál Helgin 29. nóvember-1. desember 2013