Fréttatíminn - 24.05.2013, Side 10
10 fréttir Helgin 24.-26. maí 2013
www.rekstrarland.isRekstrarland | Skeifunni 11 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100
Salernishreinsir 0,75 l – Verð: 490 kr.
Alhliða hreingerningalögur 1 l – Verð: 339 kr.
Gólfþvottaefni 1 l – Verð: 419 kr.
Rúðusápa 1 l – Verð: 699 kr.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
31
55
9
Hreinsiefni – auðvelda þér þrifin.
Tilboð
490kr.
654
Tónleikar Meðalaldur poppsTjarna seM sækja Ísland heiM 55 ár
Hrumar hetjur koma í heimsókn
Mikill fjöldi frábærra erlendra tónlistarmanna sækir Ísland heim í ár.
Flestir eiga það þó sameiginlegt að vera komnir af léttasta skeiði. Með-
alaldur stærstu nafnanna sem troða hér upp í ár er 55 ár. Það meðaltal
væri enn hærra ef ekki væri fyrir komu ungstirnisins Frank Ocean
sem sker sig nokkuð úr á listanum.
Veislan hefst strax í byrjun næsta mánaðar. Hinn 52 ára Daniel
Johnston treður upp í Fríkirkjunni 3. júní og hinn 9. júní treður
Jethro Tull upp í Hörpu með hinn 65 ára Ian Anderson í farar-
broddi. Sérstakur gestur á tónleikunum er Egill Ólafsson sem
varð sextugur fyrir skemmstu. Hljómsveitin Band of Horses
treður upp í Eldborgarsal Hörpu 11. júní en söngvari sveitar-
innar er hinn 35 ára Ben Bridwell. Átta dögum síðar syngur
hin 72 ára Dionne Warwick í sama sal. Hún er elsta stjarnan
sem boðað hefur komu sína hingað í ár.
Tónlistarhátíðin All Tomorrow’s Parties verður haldin
í fyrsta sinn hér á landi dagana 28. og 29. júní á gamla
varnarliðssvæðinu í Keflavík. Aðalnúmerið þar er Nick
Cave, 55 ára, sem mætir með hljómsveit sína, The Bad
Seeds. Þá leikur hljómsveitin Deep Purple í stóru
Laugardalshöllinni 12. júlí. Purple var stofnuð árið
1968 og söngvarinn Ian Gillan er orðinn 67 ára.
Sannkölluð veisla verður í Höllinni dagana 16.
og 17. júlí. Fyrra kvöldið treður ungstirnið Frank
Ocean, 25 ára, upp en hann sló í gegn í fyrra með
plötunni Channel Orange. Hún var plata ársins í
vali sérfræðinga Fréttatímans. Seinna kvöldið
er komið að hljómsveitinni Chic með Nile
Rodgers í broddi fylkingar. Nile Rodgers er
sextugur en hann hefur undanfarið vakið
athygli fyrir samstarf sitt við Daft Punk.
Hinn 61 árs David Byrne syngur í Eld-
borgarsal Hörpu 18. ágúst ásamt söng-
konunni St. Vincent. Stórsveitin Kraft-
werk verður lokanúmerið á Iceland
Airwaves-hátíðinni í nóvember og
þegar hefur verið bætt við aukatón-
leikum. Stofnandi og aðalmaður
Kraftwerk er hinn 67 ára gamli
Ralf Hütter. Síðast en kannski
ekki síst ber að geta komu hljóm-
sveitanna Scooter, Vengaboys og
Snap hingað hinn 9. nóvember.
Kyntáknið við hljóðnemann hjá
Scooter er Íslandsvinurinn
H.P. Baxxter, 47 ára.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Íslenskir tónleikahaldarar halda uppteknum hætti og flytja inn gömul brýni í ár. Í fyrra voru það James Taylor og Tony Bennett og þar áður Eagles. Í ár eru það
Dionne Warwick og Deep Purple. Ungstirnið Frank Ocean heldur uppi merkjum unga fólksins.
Daniel
Johnston
52 ára.
Ian
Anderson
í Jethro
Tull 65
ára.
Ben
Bridwell
söngvari
Band of
Horses
35 ára.
Dionne
Warwick
72 ára.
Nick
Cave 55
ára.
Ian Gillan
söngvari
Deep
Purple 67
ára.
Frank
Ocean
25 ára.
Nile Rodgers
60 ára.
David
Byrne
61 árs.
Ralf Hütter
stofnandi
Kraftwerk
67 ára.
H.P.
Baxxter
söngvari
Scooter 47
ára.
Íslenska GáMafélaGið
Fékk fyrst fyrirtækja
Jafnlaunavottun VR
Íslenska Gámafélagið fékk fyrst fyrirtækja Jafnlaunavottun VR. Tvö
önnur fyrirtæki fylgdu í kjölfarið en þau eru IKEA og ISS. Markmiðið
með Jafnlaunavottun VR er að gera úttekt á því hvort innan fyrirtækja
séu greidd misjöfn laun fyrir jafnverðmæt störf. Á vef VR kemur fram að
vottunin feli í sér ítarlega úttekt á launum starfsfólks, starfaflokkun og
öðrum þáttum sem hafa áhrif á kjör karla og kvenna.
„Íslenska Gámafélagið hefur tekið forystuna í þessum efnum eins og á
svo mörgum öðrum sviðum. Til að mynda var Íslenska Gámafélagið fyrst
allra sorphirðufyrirtækja á Íslandi til að innleiða ISO 14001 umhverfisvott-
unina,“ segir meðal annars á síðu Íslenska Gámafélagsins. Þar kemur enn
fremur fram að fyrirtækið muni halda áfram í að vera í fremstu röð jafn-
ræðis þar sem umhverfismál og samfélagsleg ábyrgð eru í forgrunni.
Íslenska Gámafélagið fékk fyrst fyrirtækja Jafnlaunavottun VR.