Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.05.2013, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 24.05.2013, Blaðsíða 10
10 fréttir Helgin 24.-26. maí 2013 www.rekstrarland.isRekstrarland | Skeifunni 11 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100 Salernishreinsir 0,75 l – Verð: 490 kr. Alhliða hreingerningalögur 1 l – Verð: 339 kr. Gólfþvottaefni 1 l – Verð: 419 kr. Rúðusápa 1 l – Verð: 699 kr. PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 31 55 9 Hreinsiefni – auðvelda þér þrifin. Tilboð 490kr. 654  Tónleikar Meðalaldur poppsTjarna seM sækja Ísland heiM 55 ár Hrumar hetjur koma í heimsókn Mikill fjöldi frábærra erlendra tónlistarmanna sækir Ísland heim í ár. Flestir eiga það þó sameiginlegt að vera komnir af léttasta skeiði. Með- alaldur stærstu nafnanna sem troða hér upp í ár er 55 ár. Það meðaltal væri enn hærra ef ekki væri fyrir komu ungstirnisins Frank Ocean sem sker sig nokkuð úr á listanum. Veislan hefst strax í byrjun næsta mánaðar. Hinn 52 ára Daniel Johnston treður upp í Fríkirkjunni 3. júní og hinn 9. júní treður Jethro Tull upp í Hörpu með hinn 65 ára Ian Anderson í farar- broddi. Sérstakur gestur á tónleikunum er Egill Ólafsson sem varð sextugur fyrir skemmstu. Hljómsveitin Band of Horses treður upp í Eldborgarsal Hörpu 11. júní en söngvari sveitar- innar er hinn 35 ára Ben Bridwell. Átta dögum síðar syngur hin 72 ára Dionne Warwick í sama sal. Hún er elsta stjarnan sem boðað hefur komu sína hingað í ár. Tónlistarhátíðin All Tomorrow’s Parties verður haldin í fyrsta sinn hér á landi dagana 28. og 29. júní á gamla varnarliðssvæðinu í Keflavík. Aðalnúmerið þar er Nick Cave, 55 ára, sem mætir með hljómsveit sína, The Bad Seeds. Þá leikur hljómsveitin Deep Purple í stóru Laugardalshöllinni 12. júlí. Purple var stofnuð árið 1968 og söngvarinn Ian Gillan er orðinn 67 ára. Sannkölluð veisla verður í Höllinni dagana 16. og 17. júlí. Fyrra kvöldið treður ungstirnið Frank Ocean, 25 ára, upp en hann sló í gegn í fyrra með plötunni Channel Orange. Hún var plata ársins í vali sérfræðinga Fréttatímans. Seinna kvöldið er komið að hljómsveitinni Chic með Nile Rodgers í broddi fylkingar. Nile Rodgers er sextugur en hann hefur undanfarið vakið athygli fyrir samstarf sitt við Daft Punk. Hinn 61 árs David Byrne syngur í Eld- borgarsal Hörpu 18. ágúst ásamt söng- konunni St. Vincent. Stórsveitin Kraft- werk verður lokanúmerið á Iceland Airwaves-hátíðinni í nóvember og þegar hefur verið bætt við aukatón- leikum. Stofnandi og aðalmaður Kraftwerk er hinn 67 ára gamli Ralf Hütter. Síðast en kannski ekki síst ber að geta komu hljóm- sveitanna Scooter, Vengaboys og Snap hingað hinn 9. nóvember. Kyntáknið við hljóðnemann hjá Scooter er Íslandsvinurinn H.P. Baxxter, 47 ára. Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Íslenskir tónleikahaldarar halda uppteknum hætti og flytja inn gömul brýni í ár. Í fyrra voru það James Taylor og Tony Bennett og þar áður Eagles. Í ár eru það Dionne Warwick og Deep Purple. Ungstirnið Frank Ocean heldur uppi merkjum unga fólksins. Daniel Johnston 52 ára. Ian Anderson í Jethro Tull 65 ára. Ben Bridwell söngvari Band of Horses 35 ára. Dionne Warwick 72 ára. Nick Cave 55 ára. Ian Gillan söngvari Deep Purple 67 ára. Frank Ocean 25 ára. Nile Rodgers 60 ára. David Byrne 61 árs. Ralf Hütter stofnandi Kraftwerk 67 ára. H.P. Baxxter söngvari Scooter 47 ára.  Íslenska GáMafélaGið Fékk fyrst fyrirtækja Jafnlaunavottun VR Íslenska Gámafélagið fékk fyrst fyrirtækja Jafnlaunavottun VR. Tvö önnur fyrirtæki fylgdu í kjölfarið en þau eru IKEA og ISS. Markmiðið með Jafnlaunavottun VR er að gera úttekt á því hvort innan fyrirtækja séu greidd misjöfn laun fyrir jafnverðmæt störf. Á vef VR kemur fram að vottunin feli í sér ítarlega úttekt á launum starfsfólks, starfaflokkun og öðrum þáttum sem hafa áhrif á kjör karla og kvenna. „Íslenska Gámafélagið hefur tekið forystuna í þessum efnum eins og á svo mörgum öðrum sviðum. Til að mynda var Íslenska Gámafélagið fyrst allra sorphirðufyrirtækja á Íslandi til að innleiða ISO 14001 umhverfisvott- unina,“ segir meðal annars á síðu Íslenska Gámafélagsins. Þar kemur enn fremur fram að fyrirtækið muni halda áfram í að vera í fremstu röð jafn- ræðis þar sem umhverfismál og samfélagsleg ábyrgð eru í forgrunni. Íslenska Gámafélagið fékk fyrst fyrirtækja Jafnlaunavottun VR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.