Fréttatíminn - 24.05.2013, Page 30
lítið um það hversu erfitt þetta væri. Ég er ekki alveg
jafn orkumikil núna en ég myndi gera þetta aftur.
Þetta var mjög góð reynsla og ég lærði mikið af starf-
inu á barnaheimilinu,“ segir Dídí.
Hliðrun á sannleikanum
Eitt barnanna á barnaheimilinu, átta
ára gamall drengur, grét stöðugt því
hann vildi fá foreldra sína. Drengur-
inn hafði fundist á götunni og var ekki
vitað um foreldra hans. „Hann grát-
bað mig um að segja sér hvar mamma
hans og pabbi væru og grét mikið.
Ég ákvað þá að sýna honum mynd af
gúrúinum okkar og sagði honum að
þetta væri pabbi hans. Þá róaðist hann
aðeins en vildi líka vita hver mamma
sín væri. Ég reyndi að fá konu sem
ég þekkti til að segja honum að hún
væri mamma hans en hún tók það
ekki í mál. Eftir svolítinn tíma lét
hún þó til leiðast og lést vera mamma
hans og kom vikulega í heimsókn til
hans og hann var himinlifandi,“ segir
Dídí sem fannst óþægilegt að segja
drengnum ósatt og velti því fyrir sér í
fyrstu hvort hún væri að ljúga að hon-
um en telur svo ekki vera, heldur hafi
hún verið að hjálpa drengnum. Sá er
núna orðinn tuttugu og sex ára og er
verkfræðingur á Indlandi. „Hann skil-
ur þetta núna og veit að hún er ekki
raunveruleg manna hans en það besta
er að þau eiga í mæðgina sambandi í
dag og heimsækja hvort annað. Hún
lítur á hann sem son sinn og hann á
hana sem móður sína,“ segir Dídí.
Allir eru jafnir
Dídí er ekki viss um ástæðu þess að
hún var svo ákveðin að verða nunna
þrettán ára gömul. „Kannski er það
vegna einhvers sem gerðist í fyrra lífi.
Ef til vill var eitthvað þar sem ég átti
ólokið. Hvað varðar þetta líf þá held
ég að foreldrar mínir séu helsta ástæða þess að ég
varð nunna. Þau kenndu mér að hugsa ekki alltaf um
sjálfa mig, heldur gera eitthvað fyrir aðra og Ananda
Marga samtökin skipuðu stóran sess í okkar lífi. Sú
hugmyndafræði Ananda Marga, að allir séu jafnir,
líkar mér vel. Í skólanum mínum í æsku skiptist fólk
í hópa eftir trúarbrögðum. Múslimar, hindúar og
kristnir skiptust hver í sinn hópinn.
Öðruvísi leikskóli
Leikskólinn Sælukot hefur verið starfræktur frá árinu
1977 og var fyrsti skóli Ananda Marga samtakanna í
Evrópu en nú eru þeir margir. Samtökin sendu systur
til Íslands á áttunda áratugnum og fékk hún þau fyrir-
mæli að láta gott að sér leiða hér á landi.
Sú var þekkt fyrir að gefa fólki mat úti
á götu. „Sú systir var frá Filippseyjum
og mjög lágvaxin. Hún átti rauðan bíl
og þurfti að sitja ofan á púðum til að sjá
almennilega út um gluggana. Löggan
stoppaði hana nokkrum sinnum því það
leit út eins og barn væri að keyra,“ segir
Dídí hlæjandi.
Jóga og hugleiðsla daglega
Börnin í Sælukoti stunda hugleiðslu og
jóga daglega. „Markmiðið hjá okkur í
Sælukoti er að börnin læri að tileinka
sér hugleiðslu. Það er með fólk eins og
bambus, það er hægt að beygja hann
þegar hann er ungur en svo verður
hann stökkur. Þegar við erum ung
eigum við auðveldara með að læra.
Maturinn sem börnunum er boðið upp
á í Sælukoti er svokallaður „sentient“
matur sem er bæði góður fyrir líkama
og sál. Á leikskólanum er ræktað
grænmeti sem foreldrar taka upp einu
sinni á ári.
Við kennum ást
Á Sælukoti er börnunum kennt að
elska allt. „Við kennum börnunum að
elska bæði annað fólk, plöntur og dýr.
Það er mikilvægt að elska bæði lifandi
og dauða hluti. Við verðum að læra að
sýna virðingu og henda ekki hlutum
bara til að geta keypt nýja. Við verðum
að hafa í huga að það eru svo margir
sem eiga ekki einu sinni mat, eða eins
og guð sagði: „There is enough for eve-
ryone´s need but not enough for eve-
ryone´s greed,“ segir Dídí á ensku og
bætir við að ef gæðum heimsins væri
skipt jafnar þyrfti enginn að deyja úr hungri. Dídí
tekur Indland sem dæmi. „Flestir myndu segja að það
væri fátækt land en í rauninni er það mjög auðugt. Þar
eru miklar náttúruauðlindir en skipting gæða er svo
ójöfn og þess vegna deyr fólk úr hungri.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Sú hugmynda-
fræði Ananda
Marga, að allir
séu jafnir, líkar
mér vel. Í skól-
anum mínum í
æsku skiptist fólk
í hópa eftir trúar-
brögðum. Mús-
limar, hindúar og
kristnir skiptust
hver í sinn hóp-
inn. Hugmynda-
fræði Ananda
Marga er sú að
allir séu jafnir.
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero
1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
D
ídí þýðir systir og
ég er nunna. Flestir
hafa ýmsa titla, eru
systur, eiginkonur,
mæður og svo fram-
vegis en í mínu tilfelli á ég í eins
sambandi við alla, hver sem það
er. Ég er systir,“ segir Dídí sem
ákvað þrettán ára gömul að verða
nunna og helga líf sitt því að hjálpa
öðrum. Dídí starfar á vegum
indversku samtakanna Ananda
Marga en samtökin sinna ýmsum
verkefnum um allan heim, svo sem
rekstri skóla, heimila fyrir mun-
aðarlaus börn, háskóla, gistiskýla
fyrir heimilislausa og neyðarað-
stoð eftir náttúruhamfarir. Hug-
leiðsla er stór hluti af starfsemi
samtakanna og er hún kennd á
þeirra vegum um allan heim.
Grét með börnunum
Í barnæsku tók Dídí virkan þátt
í starfsemi Ananda Marga á Ind-
landi með fjölskyldu sinni og líkaði
hugmyndafræðin vel og var hún
aðeins þrettán ára gömul þegar
hún ákvað að verða nunna og
starfa fyrir samtökin. Samkvæmt
lögum á Indlandi þurfa nunnur að
vera orðnar átján ára gamlar og
eftir nokkrar tilraunir fékk Dídí
undanþágu til að verða nunna,
sextán ára gömul, en hélt þó áfram
í skóla og hóf svo þjálfun sína hjá
samtökunum.
Fyrsta starf Dídíar var á heimili
með fjörutíu og tveimur börnum á
Indlandi. Starfsmennirnir voru að-
eins þrír og því var annasamt hjá
þeim. Á nóttunni vöknuðu börnin
hvert á fætur öðru og þar sem Dídí
hafði litla reynslu af umönnun
barna var starfið í byrjun fram-
andi. Hún fann til með börnunum
sem höfðu af ýmsum orsökum
misst foreldra sína og grét með
þeim á nóttunni. „Á þessum tíma
var ég svo hugrökk að ég hugsaði
Ástin er undirstaða alls
Börnin á leikskólanum Sælukoti í Skerjafirði stunda jóga og hugleiðslu daglega en starf leikskólans byggir á hugmyndafræði indversku samtakanna Ananda Marga.
Dídí Ananda Kaostubha Acarya, sem er nunna á vegum Ananda Marga samtakanna, er leikskólastjóri Sælukots en Dídí var aðeins þrettán ára gömul þegar hún
ákvað að helga líf sitt því að hjálpa öðrum.
Dídí er leikskóla-
stjóri á Sælukoti
þar sem börnin
stunda jóga
og hugleiðslu
daglega og borða
hollan mat og
rækta sitt eigið
grænmeti yfir
sumarmánuðina.
Ljósmynd/Hari.
30 viðtal Helgin 24.-26. maí 2013