Fréttatíminn - 24.05.2013, Page 74
6 viðhald húsa Helgin 24.-26. maí 2013
KYNNING
E
flaust geta ekki mörg
fyrirtæki, sem komin
eru á fimmtugsaldur-
inn, státað sig af því að
hafa verið rekin á sömu
kennitölunni alla tíð, en það getur
Glerverksmiðjan Íspan ehf gert.
Hún var stofnuð 14. ágúst 1969, og
hefur frá upphafi verið rekin af sömu
fjölskyldunni,“ segir Ólafur Ragnar
Hilmarsson, verkstjóri Íspan. Fyrir-
tækið hefur í gegnum tíðina fram-
leitt einangrunargler í hæsta gæða-
flokki, auk þess að framleiða spegla,
glerhandrið, hillur, borðplötur og
fjölmargt annað úr gleri. „Einnig
seljum við fjölmargar tegundir fest-
inga fyrir gler og spegla, og bjóðum
einnig alhliða lausnir í gleri, bæði
utan- og innanhúss. Íspan er fyrsta,
og eina íslenska glerverksmiðjan
sem hefur Evrópska samræmis-
merkið CE, og því er framleiðsla
okkar CE-vottuð,“ segir Ólafur.
Allskonar gler
Ólafur segir styrk fyrirtækisins,
þegar kemur að viðhaldsverkefnum,
felast meðal annars í miklu úrvali af
gleri og sérþekkingu starfsmanna.
„Við eigum gríðarlegt úrval gler-
tegunda á lager, og má þar nefna til
dæmis „venjulegt“ flotgler, K-gler,
öryggisgler, sólvarnargler af mörg-
um mismunandi tegundum og litum,
margar gerðir af hömruðu gleri,
spegla, litað gler og svo mætti lengi
telja, allt skorið og framleitt sam-
kvæmt þörfum viðskiptavina okkar.
Einnig bjóðum við upp á hraða af-
greiðslu og gríðarlega þekkingu
og reynslu sérfræðinga í söludeild
okkar og verksmiðju. Þá eigum við
Íspan CE-vottuð glErvErksmiðja
Verksmiðjan rekin af
sömu fjölskyldunni í 44 ár
Glerverksmiðjan Íspan ehf er komin á fimmtugsaldurinn og hefur verið rekin á sömu kennitölunni alla tíð.
stóraukist í seinni tíð, en einn af
mikilvægari þáttum þegar skipta á
um gler í gluggum er að velja gler-
tegundir sem henta hverju verkefni.
„Það er mikilvægt að skoða mjög
vel hverskonar eiginleikum leitað er
að, bæði varðandi einangrunargildi
glersins, en ekki síður eiginleika
þess varðandi gegnumflæði ljós- og
hitageisla. Þá hefur meðvitund fólks
um nauðsyn þess að koma í veg fyrir
upplitun, bæði vegna vandaðra gólf-
efna og húsgagna, en ekki síst vegna
listaverka sem fólk hefur á heimilum
sínum og vinnustöðum, Íspan hefur
lausnir á þessum vandamálum. Sölu-
fulltrúar okkar veita allar nauðsyn-
legar upplýsingar um glerið og
ráðleggja einnig varðandi ísetningu
og aðra þætti,“ segir Ólafur.
Tilbúin að skoða flest allt
Ólafur segir fyrirtækið einnig bjóða
upp á aðstoð við önnur viðhalds-
verkefni, til dæmis endurnýjun bað-
herbergja, en þar má nefna spegla,
sturtugler, sturtuklefa, glerhurðir,
glerveggi, og margt fleira. „Það
er til dæmis vinsælt að setja gler á
milli skápa í eldhúsinnréttingum
í stað flísa, og þar bjóðum við mis-
munandi lausnir. Einnig setjum
við gler á skápahurðir, framleiðum
stigahandrið, búum til glertússtöfl-
ur, setjum gler í útihandrið, gler í
skjólveggi og bara gler í allt milli
himins og jarðar. Við erum tilbúin
að skoða flest sem mögulega er
hægt að láta sér detta í hug, þegar
kemur að glerlausnum.“
Söludeild Íspan ehf er staðsett að
Smiðjuvegi 7 í Kópavogi og er opin
alla virka daga til klukkan 17. -ss
áratuga samstarf við birgja og framleiðendur í Evrópu
að baki, sem gerir okkur kleift að útvega nánast hvað
sem er, þegar um gler eða spegla er að ræða, með til-
tölulega stuttum fyrirvara.“
Íspan býður upp á mikið úrval af einangrunargleri.
„Við bjóðum upp á gler í gamla og nýja glugga, af ótal
glertegundum, þykktum og hvað annað sem viðskipta-
vinir óska eftir. Við getum framleitt tvöfalt einangrun-
argler sem er einungis 10 mm að heildarþykkt, en það
er oft nauðsynlegt þegar verið er að endurnýja gler í
mjög gömlum byggingum, þar sem gluggaföls eru mun
minni en tíðkast í dag,“ segir Ólafur.
Hann segir eftirspurn eftir sólvarnargleri hafa
Starfsmaður Íspan undirbýr samsetningu á tvöfoldu gleri.
Ólafur Ragnar Hilmarsson, verkstjóri Íspan.