Fréttatíminn - 18.05.2012, Blaðsíða 6
BLÖNDUNARLOKI
FYLGIR.
VÖNDUÐ VARA
ÁRATUGA REYNSLA
HITAKÚTAR
RYÐFRÍIR
NORSK
FRAMLEIÐSLA
Olíufylltir
rafmagnsofnar Stærðir: 250W-2000W
V ið finnum þetta á eigin skinni, við jeppamenn. Þegar ég fer á fjöll þá eru færri bílar en áður og alveg ljóst að menn ferðast ekki jafnmikið
og þeir gerðu,“ segir Hafliði Sigtryggur Magnússon,
formaður jeppaklúbbsins 4x4, um áhrif síhækkandi
eldsneytisverðs á ferðir jeppamanna. Í dag kostar
lítrinn af bensíni 257 krónur en kostaði rétt rúmar 150
krónur í maí 2008. Hækkunin er tæplega 42 prósent
og segir Hafliði að kostnaður jeppamanna af ferða-
lögum á bílum sínum hafi aukist í beinu hlutfalli við
hækkun bensínverðs. Verð á díselolíu er einnig um
257 krónur
„Staðan er orðin þannig að menn eru farnir að spara
fyrir stóru ferðunum. Þetta er jafnvel orðin spurning
hvort maður fer með fjölskylduna til útlanda eða í
þriggja til fjögurra daga ferð upp á hálendið. Slík ferð
er farin að slaga upp í utanlandsferð,“ segir Hafliði og
bætir við að það sé algjörlega ljóst að jeppamenn vilji
lægra eldsneytisverð. „Við höfum ekki mótmælt form-
lega en höfum komið okkar skilaboðum óbeint áleiðis
til þeirra sem ráða.“
En þrátt fyrir færri ferðir og hátt eldsneytisverð er
starfsemi klúbbsins í blóma. „Félagsstarfið er jafn-
kröftugt og það var þó að menn ferðist ekki eins og
áður. Það eru fjögur þúsund manns í klúbbnum og nú
fara menn bara styttri ferðir. Algengustu ferðirnar eru
orðnar þær sem menn komast á einum tanki. Þegar
þeir geta lullað í bæinn aftur á síðustu dropunum.
Þannig er nú okkar veruleiki,“ segir Hafliði.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Aukinn afli og
aflaverðmæti
Heildarafli íslenskra skipa í apríl,
metinn á föstu verði, var 32,8
prósentum meiri en í apríl 2011.
Það sem af er árinu hefur aflinn
aukist um 29,9 prósent miðað við
sama tímabil 2011, sé hann metinn
á föstu verði, að því er Hagstofa
Íslands greinir frá. Aflinn nam
alls 80.340 tonnum í apríl 2012
samanborið við 36.756 tonn í apríl
2011. Botnfiskafli jókst um tæp
3.900 tonn frá apríl 2011 og nam
rúmum 35.900 tonnum. Þar af var
þorskaflinn tæp 16.100 tonn, sem
er aukning um rúm 2.700 tonn.
Ýsuafli nam 4.700 tonnum. - jh
Algeng-
ustu ferð-
irnar eru
orðnar
þær sem
menn
komast
á einum
tanki
Ferðalög JeppaFerðir
Jeppamenn í
bobba vegna
eldsneytisverðs
Mikið hefur dregið úr fjallaferðum jeppamanna á undanförnum
árum í takt við hækkandi eldsneytisverð. Formaður jeppaklúbbsins
4x4 segir að himinhátt eldsneytisverð sé ákaflega heftandi fyrir
hina fjögur þúsund meðlimi klúbbsins og vonast eftir lækkun.
Hafliði Sigtryggur Magnússon á góðri stund með Patrol-jeppann sinn uppi á
hálendinu. Nokkuð sem er sjaldgæf sjón þessi dægrin.
Stýrivextir hækkaðir
Peningastefnunefnd
Seðlabanka Íslands
hækkaði vexti bankans
um 0,5 prósentur
á miðvikudaginn.
Daglánavextir eru
6,50 prósent, vextir af
lánum gegn veði til sjö
daga 5,50 prósent, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum
5,25 prósent og innlánsvextir 4,50 prósent. Þjóðhagsspá
sem birtist í Peningamálum staðfestir, að því er fram kemur í
tilkynningu Seðlabankans, að batinn sem hófst síðla árs 2010
heldur áfram og nær til flestra sviða efnahagslífsins. Þróttur
innlendrar eftirspurnar er töluverður og sjást skýr merki um
bata á vinnu- og fasteignamarkaði. Horfur eru á ívið meiri hag-
vexti en í febrúarspá bankans. Verðbólga hefur verið meiri en
spáð var og verðbólguhorfur hafa versnað. - jh
Minnsta atvinnuleysi
síðan 2008
Atvinnuleysi mældist 6,5% í apríl og
minnkar um 0,6 prósentustig frá því
í mars, samkvæmt tölum Vinnumála-
stofnunar. Þetta er í neðri mörkum
þess bils sem stofnunin hafði reiknað
með (6,4%-6,8%) og hefur skráð
atvinnuleysi ekki mælst minna síðan
í desember árið 2008, að því er fram
kemur hjá Greiningu Íslandsbanka.
Í apríl í fyrra mældist atvinnuleysi
8,1% og var að jafnaði 8,5% á fyrstu
fjórum mánuðum það árið. Í ár hefur
skráð atvinnuleysi að jafnaði mælst
7,0%. Alls voru 10.990 einstaklingar
atvinnulausir í lok apríl, sem er fækkun
um 827 einstaklinga frá því í mars. - jh
Lítill munur á Þóru
og Ólafi Ragnari
Lítill munur er á fylgi Þóru Arnórs-
dóttur og Ólafs Ragnars Grímssonar
til embættis forseta Íslands, að því er
fram kemur í könnun MMR. Af þeim
sem tóku afstöðu voru 43,4 prósent
sem sögðust myndu kjósa Þóru en
41,3 prósent sögðust myndu kjósa Ólaf
Ragnar. Ari Trausti Guðmundsson fékk
stuðning 8,9 prósent þeirra sem tóku
afstöðu. Aðrir frambjóðendur voru
nefndir af 6,4 prósentum svarenda
samanlagt. 52,4 prósent framsóknar-
manna og 62,2 prósent sjálfstæðis-
manna sögðust kjósa Ólaf Ragnar en
72,7 prósent samfylkingarfólks og
62,6 prósent Vinstri-grænna Þóru. - jh
Hópbílar buðu lægst í
Akureyrarakstur
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
bárust fjögur tilboð í fólksflutninga á
sérleyfisleiðinni Reykjavík-Akureyri. Til-
boð Hópbíla var lægst. Hópbílar fengu
fyrr á árinu sérleyfið á Suðurlandi og
voru lægstir á leiðinni Akranes-Mos-
fellsbær, að því er fram kemur í Skessu-
horni. Í útboðinu felst að ekið verður
bæði í gegnum Akranes og Sauðárkrók.
Heimilt var að bjóða í sitt hvora leiðina
en bílar keyra frá báðum endastöðvum
á hverjum morgni. Hópbílar buðu 110,2
milljónir í báða verkhlutana. Hóp-
ferðabílar Reynis Jóhannssonar buðu
124 milljónir, Bílar og fólk 147,1 milljónir
og Kynnisferðir 164,8 milljónir. -jh
6 fréttir Helgin 18.-20. maí 2012