Fréttatíminn - 18.05.2012, Síða 33
Viðhald húsa
Unnið í samvinnu við Húseigendafélagið, Samtök iðnaðarins og Nýsköpunarmiðstöð Íslands Helgin 18.-20. maí 2012
E
igendur í fjöleignarhúsum
þurfa allir einhvern tímann að
ráðast í viðhald, breytingar og
endurbætur á íbúðum sínum.
Eigendur hafa verulegt svig-
rúm gagnvart sameigendum þótt slíkar
framkvæmdir valdi sambýlisfólkinu ónæði.
En, stundum er þetta „sagan endalausa“
og framkvæmdir spanna langan tíma. Oft
er barið, mölvað, sagað og borað á öllum
tímum. Slæm umgengni um sameignina er
oft fylgifiskur. Eru dæmi um illvígar deilur
vegna þessa og að íbúðareigendur hafi
jafnvel flúið hús þegar verst hefur látið.
Menn nota jafnvel sleggjur og múrbrjóta
til tjáskipta. Þegar framkvæmdagleðin
gengur af göflum eru góð ráð dýr. Hún er
oft stjórnlaus, illviðráðanleg og illkynja í
þokkabót. Sáttfýsi, sanngirni, málamiðlun,
tillitssemi, skilningur og umburðalyndi eru
þau bönd sem hún verður hamin í og tamin.
Í fjölbýli er fín línan milli athafnafrelsis
og hagnýtingar eins og friðar annars. Jafn-
vægið er hárfínt og viðkvæmt. Þar gildir hið
gullna meðalhóf sem mörgum gengur svo
tregt að feta. Mörkin milli athafnafrelsis eins
og næðisréttar annars eru hárfín og þarf lítið
til að raska því. Smæstu mál geta á auga-
bragði blossað upp í skaðræðis ófriðarbál.
Hús hins himneska friðar getur á örskots-
stundu orðið vítishús.
Djöfulgangur og múrbrot
Eigendum fjöleignarhúsa eru sem sagt tak-
mörk sett við hagnýtingu eigna sinna og
þeir hafa fráleitt frítt spil og mega ekki fara
sínu fram á sínum forsendum eingöngu og
kæra sig kollótta um hagsmuni og rétt sam-
eigenda sinna Á hinn bóginn verða íbúar í
fjöleignarhúsum að sætta sig við og þola að
vissu marki ónæði og óþægindi sem ekki
verða umflúin. Menn verða að sætta sig við
það að þeir eru á sama báti, undir sama þaki,
og fleira fólk sem lifir sínu lífi og á sér líka
tilverurétt. Þeir sem búa í fjölbýli verða að
sætta sig við ýmis „óþægindi“ vegna hins
nána sambýlis en þeim er hins vegar óskylt
að búa við viðvarandi verulegt ónæði. Ýmis
konar brölt og fyrirgangur er eðlilegur þátt-
ur í viðhaldi og eðlilegum endurbótum og
umhirðu eignar, til dæmis hamarshögg og
boranir. Öðru máli gegnir hins vegar um
múrbrot og annan „djöfulgang“ en telja verð-
ur að aðrir eigendur þurfi ekki að þola slíkt
nema á daginn. Rík skylda hvílir á eiganda
sem stendur í framkvæmdum að hann geri
allt sem í hans valdi stendur til að sambýlis-
fólk hans verði fyrir sem minnstu ónæði og
óþægindum vegna þeirra.
Grimmir frekjuhundar
Ef fólk færi almennt eftir hinni góðu bók um
að gera öðrum ekki neitt sem það vill ekki
að aðrir gjöri því þá væri allt í himnalagi.
En við erum því miður upp til hópa þrjóskir,
yfirgangssamir, ráðríkir, heimaríkir, frekju-
hundar sem eiga bágt með að setja sig í spor
annarra og beita málamiðlun. Í stað þess að
fara eftir boði Nýja testamentisins virðist
okkur mikið tamara að fara eftir grimmum
og hefnigjörnum boðum Gamla testament-
inu um auga fyrir auga og tönn fyrir tönn.
Og þá er vísast andskotinn laus. Í lögum
um fjöleignarhús eru engin bein ákvæði um
það hversu lengi og á hvaða tímum megi
smíða, brjóta og bramla en þar er hins vegar
almennt boðið að íbúar skuli gæta þess að
valda sambýlisfólki sínu ekki óþarfa ama
og óþægindum. Jafnframt er mælt fyrir um
að húsreglur skuli geyma nánari fyrirmæli
um hagnýtingu eigna og samskipi eigenda
í því efni. Skal í þeim meðal annars koma
fram bann við röskun á svefnfriði að minnsta
kosti frá miðnætti til klukkan sjö. Frá þessari
reglu má þó alls ekki gagnálykta á þá lund að
láta megi illum látum á öðrum tímum. Menn
eiga alltaf að stíga varlega til jarðar eða gólfs
og sýna hver öðrum tillitssemi ávalt og á öll-
um tímum. Húsfélag getur sett reglur til höf-
uðs ónæðissömum framkvæmdum og sett
þeim eðlilegar og sanngjarnar hömlur.
Nágrannakærleikurinn
Almennt má segja að viðhald og endurbætur
í fjöleignarhúsum eigi að framkvæma á eins
skömmum tíma og framast er unnt og með
sem allra minnstu ónæði og röskun fyrir
aðra íbúa hússins. Þó verður að játa fram-
kvæmdaglöðum eiganda ákveðið sanngjarnt
svigrúm og brýnt er að hann kosti kapps um
að hafa samráð við aðra eigendur fyrirfram
og upplýsi þá um framgang og stöðu verks-
ins og reyni eins og kostur er að taka tillit til
eðlilegra sanngjarnra óska og sjónarmiða
annarra eigenda við framkvæmdina. Fram-
kvæmdir sem hefjast eins og þruma eða
loftárás úr heiðskíru lofti valda mikið frekar
deilum og leiðindum en þær sem tilkynnt er
um fyrir fram og ráðist er í með tillitssemi
og nágrannakærleika að leiðarljósi.
FjölEigNaHúS grUNdvallarrEglUr Í SamSkiptUm
Grannar ganga
af göflunum
Íbúar hafa jafnvel flúið hús venga illvígra deilna.
PI
PA
R\
TB
W
A
·
SÍ
A
·
11
22
33
b
m
va
ll
a
.is
Sími: 412 5050
Fax: 412 5001
sala@bmvalla.is
BM Vallá ehf.
Breiðhöfða 3
110 Reykjavík
Gluggar
eru ekki bara gler
Veldu háeinangrandi PRO TEC Classic glugga
sem spara orku
BM Vallá býður vandaðar glugga lausnir frá PRO TEC
í Danmörku. Gluggarnir eru úr áli og tré og henta vel fyrir
íslenskar aðstæður. PRO TEC gluggar hafa verið seldir á
Íslandi frá 1993 og verið prófaðir og vottaðir gagnvart íslensku
vind- og slagregnsálagi. Glerið er háeinangrandi sem lækkar
hitunar kostnað og sparar orku. Hver gluggi er sér smíðaður
eftir óskum viðskipta vinar um stærð, lit og lögun.
Kynntu þér PRO TEC hjá BM Vallá áður en þú velur glugga.
Það gæti borgað sig.
Sigurður Helgi Guðjónsson hrl, formaður Húseigendafélagsins, fer hér yfir nokkrar
grundvallarreglur í samskiptum þeirra sem búa í fjölbýlishúsum; tæpir á hryllings-
sögum og nágrönnum sem eru svo illskeyttir að þeim lánast að breyta húsum í
sannkölluð vítishús eins og hendi sé veifað.