Fréttatíminn - 25.05.2012, Side 2
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
LögregLumáL InnanhússmáL hjá sérstökum saksóknara
OR greiðir 15,6 milljónir í vexti dag hvern
5,7
milljarðar
greiddir vextir
á síðasta ári
Ársreikningur 2011
Orkuveita
Reykjavíkur
Borgarbúar
fá umboðs-
mann
Borgarbúar fá brátt
umboðsmann sem
fær sjálfstæða stöðu,
heyrir stjórnskipulega
undir forsætisnefnd
og verður stað-
settur á skrifstofu
borgarstjórnar. Helga
Laxdal, skrifstofustjóri
borgarstjórnar, segir
fyrirmyndina frá Kaup-
mannahöfn, þar sem
starfi fjöldi ráðgefandi
aðila fyrir borgarbúa.
Hún segir að ekki sé
búið að taka ákvörðun
um hvenær umboðs-
maðurinn taki til
starfa. í fyrstu verður
þetta tilraunaverkefni
til eins árs, þar sem
það komi í hlut við-
komandi að þróa vinn-
una sjálfur. stefnt er að
því að ráða lögfræðing
í stöðuna. „við erum
spennt og höldum
að þetta geti aukið
aðgengi borgarbúa að
stjórnsýslunni.“- gag
Huga þarf
að þeim
skuldsettu
Meirihluti borgarráðs telur mikilvægt að alþingi taki
meira tillit til skuldsettra sjávarútvegsfyrirtækja en gert
er í frumvarpinu um breytta fiskveiðistjórnin og veiðigjald.
Borgarráð bendir á að það megi gera með því að gefa lengri
aðlögunarfrest við innleiðingu á sérstöku veiðigjaldi. Þetta
kemur fram í umsögn þess til alþingis sem lögð var fyrir
borgarráð þann 18. maí. Borgarráð leggur einnig áherslu á
að alþingi hagi veiðigjöldum þannig að vel rekin fyrirtæki
geti staðið undir þeim og jafnframt skilað eigendum sínum
ásættanlegum arði. „einnig þarf að tryggja að þjóðin,
eigandi fiskimiðanna, fái ásættanlegan arð af sinni auðlind.“
Þá fagnar borgarráð sérstaklega því að settur verði á lagg-
irnar markaður, kvótaþing, sem gefi nýjum aðilum færi á að
komast inn í greinina. - gag
Vilja húsmæðraorlofið burt og
segja það tímaskekkju
Bæjarráð Hafnarfjarðar skorar á alþingi og samband
íslenskra sveitarfélaga að beita sér fyrir því lög um hús-
mæðraorlof verði felld út gildi. Bæjarráðið telur þau ganga
gegn lögum um jafnrétti kynjanna, nútíma jafnréttissjónar-
mið og jafnréttisáætlun Hafnarfjarðarbæjar.
Bærinn þráaðist við að greiða lögbundin framlög til Orlofs-
nefndarinnar í fyrra og fékk hún ekki greiðsluna fyrr en nú í
janúar. Nefndin sendi því engar húsmæður í orlof í fyrra, en
nokkrar húsmæður fóru í ferðir með húsmæðrum annarra
sveitarfélaga. Í bréfi formanns nefndarinnar um miðjan apríl
bað hún bæjarstjórnina að virða nú gjalddaga sem sé lög-
varinn, sem bæjarráðið gerir nú.- gag
Orkuveitan greiddi tæplega 5,7 milljarða króna í vexti á
síðasta ári. Það gera tæplega 15,6 milljónir á dag, tæplega
650 þúsund á klukkustund, ellefu þúsund á mínútu eða
180 krónur á sekúndu. Þetta er 1,9 milljörðum meira en
Orkuveitan greiddi í laun og 17 prósent af tekjunum.
skuldastaða orkufyrirtækis höfuðborgarbúa og
nágrannasveitarfélaga er þung. samkvæmt síðasta árs-
reikningi voru skuldir þess 234.741.857.000 Þetta eru 234
milljarðar króna og 1,1 milljarði krónum hærri en árinu á
undan. Það er þó rúmum sex milljörðum lægra en 2009,
en skuldirnar sveiflast með gengi krónunnar.
Orkuveitan kynnir uppgjör fyrsta ársfjórðungs nú í
vikunni. - gag
Sá óvenjulegi atburður átti sér stað í gær
að gæsluvarðhaldsúrskurður yfir tveimur
föngum, Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki
Birgissyni, var kveðinn upp á fangelsinu á
Litla Hrauni en ekki í Héraðsdómi Suðurlands
á Selfossi eins og venjan er þegar fangar eru
annars vegar. Annþór Kristján og Börkur voru
úrskurðir í þriggja vikna gæsluvarðhald vegna
gruns um að hafa ráðið öðrum fanga bana í
fangelsinu í síðustu viku. Maðurinn lést vegna
innvortis blæðinga sem urðu til vegna bar-
smíða. Annþór og Börkur voru þeir einu sem
sáust á eftirlitsmyndavélum við klefa manns-
ins í kringum þann tíma sem andlát hans bar
að. Eftir því sem Fréttatíminn kemst næst var
það mat lögreglunnar að ekki væri á hættandi
að flytja Börk til Selfoss þar sem hann hafði
lent í slagsmálum við lögreglu á miðvikudag-
inn, þegar krafan um gæsluvarðhald var tekin
fyrir.
Annþór Kristján og Börkur hafa haft í mörg
horn að líta undanfarnar vikur. Þeir rufu
báðir reynslulausn þegar þeir voru handteknir
í síðasta mánuði vegna gruns um aðild að
líkamsárás og frelsissviptingu. Annþór hafði
nýlokið afplánun fjögurra ára dóms vegna
fíkniefnasmygls en Börkur fimm og hálfs
árs dóms vegna tilraunar til manndráps með
exi. Í fyrirtöku fyrir nokkrum dögum hrækti
Börkur síðan á dómarann í málinu. -óhþ
DómsmáL tveIr hrottar í gæsLuvarðhaLD
Börkur ekki hæfur til ferðalaga
gæsluvarðhaldsúrskurður yfir föngunum tveimur var kveðinn upp á litla hrauni.
k æra sérstaks saksóknara á hendur tveimur lögreglumönn-um, Guðmundi Hauki Gunn-
arssyni og Jóni Óttari Ólafssyni, vegna
brots á þagnarskyldu í starfi hefur sett
rannsókn á Vafningsmálinu í uppnám
þar sem tvímenningarnir stýrðu rann-
sókn málsins um leið og þeir skrifuðu
skýrslu fyrir þrotabú Milestone. Vafn-
ingsmálið snýst um 10 milljarða króna
lántöku Milestone hjá Glitni og Sjóvá í
febrúar 2008 og er fyrirtaka í því máli
6. júní næstkomandi.
Auk þess er óvissa hjá embætti sér-
staks saksóknara um stöðu rannsókna
á málefnum Glitnis þar sem tvímenn-
ingarnir unnu jafnframt fyrir skila-
nefnd Glitnis um leið og þeir unnu að
rannsókn á málum er tengjast bank-
anum.
Samkvæmt heimildum Fréttatímans
telja Lárus Welding og Guðmundur
Hjaltason, sem ákærðir hafa verið fyrir
aðkomu sína að Vafningsmálinu svo-
kallaða, líklegt að sérstakur saksókn-
ari neyðist til að fella málið gegn þeim
niður þar sem grundvallarákvæði laga
um rannsókn mála hafi verið brotin.
Guðmundur Haukur og Jón Óttar
komu sem lánsmenn til sérstaks
saksóknara frá lögreglustjóranum
á höfuðborgarsvæðinu árið 2009 og
unnu að rannsókn kæru í tengslum
við Vafningsmálið svokallaða. Þeir
létu af störfum um áramót en unnu
áfram fyrir sérstakan saksóknara sem
verktakar.
Samkvæmt heimildum Fréttatímans
er atburðarás málsins á þá leið að í
ágúst 2011 hafði skiptastjóri Milestone,
Grímur Sigurðsson, samband við sér-
stakan saksóknara og óskaði allra
gagna í máli Milestone. Hann fékk þau
afhent. Lögreglumennirnir tveir settu
sig í kjölfarið í samband við Grím og
réðu sig í framhaldinu sem verktakar
til þrotabúsins. Á sama tíma stýrðu
þeir rannsókn málsins fyrir sérstakan
saksóknara. Guðmundur og Lárus
voru kallaðir til yfirheyrslu í byrjun
september og síðan aftur um miðjan
október. Þann 2. nóvember skiluðu tví-
menningarnir skýrslu sem er grund-
völlur ákæru á hendur Lárusi og Guð-
mundi sem gefin er út 15. desember.
Heimildir Fréttatímans herma enn-
fremur að Lárus og Guðmundur íhugi
að höfða mál gegn sérstökum sak-
sóknara á grundvelli þess að hann hafi
brotið gegn mannréttindum þeirra við
rannsókn málsins.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Glitnisrannsókn
sérstaks í uppnámi
Lögreglumennirnir tveir sem sérstakur saksóknari hefur kært fyrir brot á þagnarskyldu unnu
ekki eingöngu skýrslu fyrir þrotabú Milestone á eigin vegum á meðan þeir störfuðu við rannsókn
mála þeim tengdum, heldur unnu þeir einnig fyrir skilastjórn glitnis. Fyrir vikið eru rannsóknir
sérstaks saksóknara á málum tengdum glitni í uppnámi. glitnismenn búast við niðurfellingu.
guðmundur Haukur
gunnarsson.
Ljósmynd af heimasíðu PPP.
Jón Óttar Ólafsson.
Ljósmynd af heimasíðu PPP.
Lögreglumenn sem unnu fyrir sérstakan saksóknara að rannsókn mála tengdum glitni hafa komið rannsókn málanna í uppnám
því þeir unnu samhliða störfum sínum hjá sérstökum saksóknara fyrir skilastjórn glitnis og þrotabú Milestone. Ljósmynd/Hari
2 fréttir Helgin 25.-27. maí 2012