Fréttatíminn - 25.05.2012, Qupperneq 10
Flóttmenn Átök milli hópa
Meðaleyðsla aðeins
3,8 lítrar á hverja 100 km*
www.volkswagen.is
Sparnaðarráð
frá Þýskalandi
Volkswagen Golf BlueMotion
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Golf
* Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum
Volkswagen Golf BlueMotion 1.6
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
1
8”
á
lfe
lg
ur
Golf kostar aðeins frá
3.390.000 kr.
n okkuð er um alvarleg slagsmál á vistheimili fyrir flóttamenn í Reykja-nesbæ þar sem hnífar eru jafnvel á
lofti. Lögreglan á Suðurnesjum vildi ekki
gefa upp hve oft hún hefði verið kölluð til
vegna atvika á gistiheimilinu Fit á undan-
förnum árum. Ástandið á vistheimili fyrir
flóttamenn í Reykjanesbæ er mjög eldfimt en
enginn starfsmaður á vegum Reykjanesbæj-
ar starfar á vistheimilinu og engri öryggis-
gæslu til að dreifa, samkvæmt heimildum
Fréttatímans. Reykjanesbær telur Fit ekki
hæfan búsetustað fyrir konur og börn og
útvegar fjölskyldum í hælisleit því íbúðir
annars staðar í sveitarfélaginu.
Þó svo að langflestir hælisleitendur séu
friðsamlegt fólk sýnir nokkur hluti þeirra
sem dveljast á Fit augljós merki um ofbeldis-
hneigð, samkvæmt heimildum Fréttatímans.
Átök eru milli ólíkra hópa, þjóða og þjóðar-
brota sem og trúarbragða – mest eru átökin
milli súnníta og sjíta-múslima. Erlendis er
öryggisvarsla á vistheimilum fyrir hælisleit-
endur en svo er ekki hér.
Á síðustu árum hafa nokkrir flóttamenn
gert tilraunir til að svipta sig lífi og fyrir
fáeinum árum framdi einn hælisleitandi
sjálfsvíg á Fit. Sá var ekki í umsjá Reykjanes-
bæjar.
Enginn skriflegur samningur hefur
verið gerður um rekstur vistheimilis fyrir
flóttamenn en Útlendingastofnun hefur
falið Reykjanesbæ að veita þessa þjónustu.
Reykjanesbær er í samstarfi við tvö gisti-
heimili í Reykjanesbæ um þjónustu við
hælisleitendur, gistiheimilið Fit í Njarðvík
og gistiheimilið við Hótel Keflavík, sam-
kvæmt upplýsingum frá félagsþjónustunni í
Reykjanesbæ.
Alls eru 73 hælisleitendur á framfæri
Reykjanesbæjar. Af þeim eru 40-50 skráðir
í gistingu á Fit. Af þeim eru 10-15 að jafnaði
fjarverandi án vitneskju yfirvalda en ekkert
eftirlit er með því hverjir dveljast á gistiheim-
ilinu. Hælisleitendur geta sótt um tímabund-
ið atvinnu- og dvalarleyfi ef þeir finna vinnu
en missa þá félagsleg réttindi hælisleitenda
sem felast í húsnæði, mat, almennri læknis-
þjónustu, afþreyingu og vasapeningum.
Samkvæmt upplýsingum frá Reykjanesbæ
fá hælisleitendur jafnframt afhent símkort,
hreinlætisvörur og Bónuskort við komuna til
landsins. Þeir sjá hins vegar sjálfir um inn-
kaup og matseld. Eftir fjögurra vikna dvöl fá
þeir 2500 krónur í vasapeninga á viku. Auk
þess er boðið upp á íslenskukennslu og fá
hælisleitendur jafnframt bókasafnskort með
aðgangi að interneti eina klukkustund á dag
og frítt í sund, á söfn bæjarins og í strætó
innanbæjar. Ennfremur fá þeir tvo rútumiða
til að komast til Reykjavíkur einu sinni í
mánuði en rútumiða til viðbótar þurfi þeir
að fara til Reykjavíkur í tengslum við mál
þeirra.
Samkvæmt upplýsingum frá félagsþjónust-
unni í Reykjanesbæ þurfa hælisleitendur að
gefa sig fram við fulltrúa félagsþjónustunnar
einu sinni í viku til að fá nýtt Bónuskort og
vasapeninga ef þeir hafa öðlast rétt á þeim.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Engin gæsla í eld-
fimu ástandi á Fit
Enginn samningur hefur verið gerður um rekstur vistheimilis fyrir flóttamenn
í Reykjanesbæ. Enginn starfsmaður er á vegum yfirvalda á heimilinu þar sem
ástandið er eldfimt og nokkuð um harkaleg slagsmál. Átök eru milli ólíkra hópa;
þjóða og þjóðarbrota sem og trúarbragða en engin öryggisvarsla.
Tveir af flóttadrengjunum sem hafa komið hingað til lands á árinu. Þeir sögðust í samtali við Fréttatímann
vera hræddir á Fit.
Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra
mun endurskoða verklagsreglur sínar
í kjölfar þess að ríkissjónvarpið ákvað
að sýna beint frá neyðarlendingu Ice-
landair-flugvélar á föstudagskvöldið
síðasta.
Rögnvaldur Ólafsson, lögreglufulltrúi
hjá almannavarnadeild ríkislögreglu-
stjóra, segir það ekki í höndum björgun-
araðila að ákveða hvernig greint sé frá
atburðum sem þessum. Þeirra sé aðeins
að koma réttum upplýsingum á fram-
færi. „Við þurfum að reikna með meiri
fjölmiðlaáhuga sem getur aukið álagið.
Þetta er einn faktor af mörgum í svona
verkefni sem þarf að sinna.“
Þetta var fyrsta útkallið á árinu, en
Rögnvaldur segir slíkar neyðarlending-
ar, sem hann kallar öryggislendingar,
almennt um fimm til sex á ári eftir að
verklagsreglum var breytt og þörfin fyr-
ir björgunarsveitir og aðra viðbragðs-
aðila er metin eftir umfangi og stærð
véla í vanda. Þeim hafi verið breytt eftir
fimmtán útköll árið 2009.
Rögnvaldur segir að björgunarsveit-
armenn hafi fundið fyrir meiri áhuga
almennings og umferð við þessa lend-
ingu en aðrar sambærilegar, en þetta
var önnur íslenska vélin sem lendir á
vellinum með slíkum viðbúnaði. Ástæð-
an var að eitt hjól vélarinnar varð eftir
á flugbrautinni við flugtak. Vélinni var
því snúið við og lenti á vellinum eftir
að hafa brennt upp eldsneyti yfir Atl-
antshafi.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
neyðarlending Flugslys í beinni útsendingu?
Bein útsending RÚV
kallar á breytt vinnubrögð
Icelandair-vél í vanda í beinni
útsendingu á RÚV. Vélinni var
giftusamlega lent.
10 fréttir Helgin 25.-27. maí 2012