Fréttatíminn - 25.05.2012, Blaðsíða 12
Fundir og ráðstefnur
Veislusalurinn er vel tækjum búinn og er því tilvalinn
fyrir hvers kyns ráðstefnur og fundi, stóra sem smáa.
Í salnum er meðal annars hágæða hljóðkerfi, skjávarpi,
flettitafla og púlt. Starfsfólk okkar veitir þér ráðgjöf
varðandi veitingar og annað sem huga þarf að.
GLÆSILEGUR VEISLUSALUR!
Náttúruparadís í hjarta borgarinnar
www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is sími 599 6660
Árið 2010
horfðu 44
prósent
íslenskra
drengja á
aldrinum
16-19 ára
á klám oft í
viku en með-
altal Norður-
landanna,
Færeyja,
Álandseyja
og Græn-
lands var 29
prósent.
Meira klám og minna einelti
Í
slensk ungmenni byrja fyrr að stunda
kynlíf en jafnaldrar þeirra á Norður-
löndunum, smitast frekar af kynsjúk-
dómum, nota síður getnaðarvarnir
og eignast frekar börn. Þau eru mörg
hver yfir kjörþyngd og með verstu tann-
heilsu ungmenna á Norðurlöndunum enda
drekka þau mesta gosmagnið og bursta
sjaldnar tennurnar.
Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps vel-
ferðarráðherra um bætta heilbrigðisþjónustu
og heilbrigði ungs fólks á aldrinum 14-23 ára
en ráðherra vinnur nú að undirbúningi sér-
stakrar unglingamóttöku í miðbæ Reykjavík-
ur þar sem fólk á aldrinum 14-23 ára getur
sótt heilbrigðisþjónustu sem sniðin er að
þörfum þess.
Skýrslan er afrakstur starfshóps sem skip-
aður var árið 2010 sem leita átti leiða til að
bæta heilbrigðisþjónustu og heilbrigði ungs
fólks. Í henni kemur meðal annars fram að
ungt fólk nýti sér síður þjónustu heilsugæsl-
unnar en þeir sem eldri eru. Í nágrannalönd-
unum hefur í vaxandi mæli verið komið á fót
sérstökum unglingamóttökum og annarri
heilbrigðisþjónustu fyrir ungt fólk og var nú
í maí samþykkt þingsályktunartillaga á Al-
þingi þar sem lögð var til stofnun starfshóps
sem meðal annars myndi vinna að stofnun
sérstakrar unglingamóttöku í samræmi við
tillögur starfshópsins frá 2010.
Byrja fyrr að sofa hjá
Ungt fólk á Íslandi byrjar tiltölulega snemma
að stunda kynlíf ef miðað er við jafnaldra
þeirra á hinum Norðurlöndunum, sérstak-
lega stúlkurnar og þær eiga jafnframt flesta
Hvergi er meira um kynsjúkdóma en hér á landi, sé miðað við Norðurlöndin. Ungt fólk á Íslandi byrjar snemma að stunda kynlíf ef miðað er við jafnaldra þeirra á hinum Norðurlöndunum, sérstaklega stúlkurnar og
þær eiga jafnframt flesta bólfélaga. Barneignir eru mun fleiri í þessum aldurshópi en tíðni fóstureyðinga er hér næstlægst. Ljósmynd Nordic Photos/Getty Images
Íslensk ungmenni verða síður fyrir einelti en jafnaldrar þeirra
á Vesturlöndunum. Íslenskir drengir horfa hins vegar meira á
klám en gengur og gerist og stúlkur byrja fyrr að stunda kynlíf
og eiga fleiri bólfélaga en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndunum.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir rýndi í skýrslu starfshóps sem
vinnur að undirbúningi sérstakrar unglingamóttöku á heil-
brigðissviði.
Framhald á næstu opnu
bólfélaga. Barneignir eru mun fleiri í
þessum aldurshópi þótt þeim hafi fækkað
á undanförnum árum en tíðni fóstureyð-
inga er hér næstlægst. Hvergi er meira
um kynsjúkdóma en hér á landi, sé miðað
við Norðurlöndin.
Í rannsókninni Health Behaviour in
School-Aged Children (HSBC) árið
2006 kom fram að í Evrópu og Norður-
Ameríku höfðu að meðaltali 30 prósent
drengja í 10. bekk stundað kynlíf og 24
prósent stúlkna. Hlutfallið meðal drengja
á Íslandi var 29 prósent, eða rétt undir
meðaltali. Hlutfall íslenskra stúlkna var
hins vegar 36 prósent og var það einung-
is hærra meðal danskra (40 prósent) og
grænlenskra (66 prósent) stúlkna.
Í norrænni rannsókn sem gerð var
sama ár kom í ljós að 35 prósent ís-
lenskra stúlkna höfðu haft kynmök fyrir
15 ára aldur en tíðnin var lægst í Noregi,
25 prósent. Hið sama gilti um aldurs-
hópinn 16-17 ára. Einnig kom fram að
fjöldi bólfélaga var hæstur á Íslandi eða
að meðaltali 8,8 bólfélagar miðað við 7,4 í
Noregi þar sem hann var lægstur.
Færri íslenskir unglingar notuðu
smokk við síðustu samfarir og er
smokka notkun hér með því lægsta á
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@ frettatiminn.is
12 fréttaskýring Helgin 25.-27. maí 2012