Fréttatíminn - 25.05.2012, Síða 20
Léttöl
14 dagar
þangað til gleðin byrjar
Fylgstu með okkur á facebook.com/carlsberg
Þýski framherjinn Mario Gomez þykir vera líklegastur til að verða markakóngur Evrópumótsins
í sumar samkvæmt veðmálasíðunni Betsson. Tveir hollenskir framherjar, Robin Van Persie og
Klaas Jan Huntelaar, eru á meðal fjögurra líklegustu.
Robin Van Persie 10/1
Van Persie valinn besti
leikmaður í ensku úrvals-
deildinni á nýastöðnu tímabili.
Hann skoraði þrjátíu mörk í
deildinni og alls 37 mörk í 47
leikjum. Öll bestu lið Evrópu
vilja fá þennan frábæra
hollenska framherja í sínar
raðir í sumar en hann á eitt
ár eftir af samningi sínum við
Arsenal.
Cristiano Ronaldo 13/1
Ef ekki væri til leikmaður sem
heitir Lionel Messi þá væri
Ronaldo yfirburðaleikmaður
í heiminum. Hann skoraði 46
mörk í 38 deildarleikjum með
Real Madrid og alls 60 mörk
í 55 leikjum á þessu tímabili.
Hann líður að einhverju leyti
fyrir það að portúgalska liðið
er ekki jafnsterkt og þau allra
bestu, Þýskaland, Holland og
Spánn.
Klaas Jan Huntelaar 14,5/1
Eftir martraðarár hjá Real
Madrid og AC Milan hefur
Huntelaar heldur betur fundið
fjölina sína hjá Schalke. Hann
skoraði 48 mörk í 47 leikjum
á nýafstöðnu tímabil og hefur
skorað í þremur landsleikjum
Hollendinga í röð. Framlína
Hollendinga með hann og
Van Persie saman er ekki
árennileg.
Karim Benzema 17/1
Benzema er kannski mesti
markaskorari Evrópu en hann
átti frábært tímabil með Real
Madrid. Hann skoraði 32 mörk
í 52 leikjum og í ljósi þess að
hann er framherji númer eitt
hjá Frökkum telja menn hann
líklegan til að skora mikið.
Gomez
líklegastur til að verða markakóngur
Þótt framherjinn Mario
Gomez hafi sennilega átt
sinn lélegasta leik á tímabilinu
á laugardaginn þegar lið hans
Bayern München tapaði fyrir
Chelsea í úrslitaleik meistara-
deildar Evrópu um síðustu
helgi þá leikur enginn vafi á
því að hann er einn besti fram-
herji Evrópu í dag. Og menn
hafa ekki misst trú á honum
því veðmálarisinn Betsson er
á því að Gomez sé líklegastur
til að skora flest mörk allra
á Evrópumótinu sem hefst
8. júní. Líkurnar á því að
Gomez verði markakóngur
eru 8/1 og skýtur hann
mönnum eins og Robin Van
Persie, Cristiano Ronaldo og
heimsmeistarakeppnismarka-
maskínunni Miroslav Klose ref
fyrir rass. Og það er kannski
ekki skrýtið. Gomez skoraði 26
mörk í þýsku deildinni, tvö mörk
í bikarnum og þrettán mörk í
meistaradeildinni – alls 41 mark
í 52 leikjum. Gomez er framherji
af gamla skólanum. Hans helsta
athafnasvæði er inni í teignum og
í kringum hann. Og þar er hann
eitraður eins og andstæðingar hans
hafa fengið að kynnast.
Fernando Torres 20/1
Torres vill væntanlega
gleyma þessu tímabili
sem fyrst. Hann gekk
í gegnum helvíti og
skoraði aðeins ellefu
mörk í 46 leikjum. Þó
mátti greina meira líf
á tanki Torres undir
lok tímabilisins sem
gefur fyrirheit fyrir
Evrópumótið. Torres
var hetjan á síðasta Evrópumóti og
græðir nú á því að David Villa er
meiddur.
Fernando Llorente 20/1
Llorente gengur
undir nafninu
Konungur ljónanna
vegna fram-
göngu sinnar á
vellinum. Þessi 195
sentimetra fram-
herji Athletic Bilbao
er einn sá eftir-
sóttasti í Evrópu og
vart líður sá dagur
sem hann er ekki
orðaður við
stórlið úr
álfunni. Hann
skoraði 29 mörk í 51 leik í vetur og
berst við nafna sinn Torres um fram-
herjastöðuna hjá Spáni.
Miroslav Klose 20/1
Klose er landsliðsmaður í orðisins fyllstu
merkingu. Honum gengur mikið mun
betur með þýska landsliðinu en félags-
liðum sínum. Hann skoraði 16 mörk í 33
leikjum fyrir Lazio á Ítalíu í vetur en skoraði
níu mörk í sex leikjum fyrir þýska liðið í
undankeppni EM og hefur skorað 14 mörk
í þremur heimsmeistarakeppnum. Þegar
hann klæðist þýska búningnum er hann
alltaf líklegur til að skora.
Markakóngar
EM frá upphafi
2008
David Villa, Spáni 4
2004
Milan Baros, Tékklandi 5
2000
Patrick Kluivert, Hollandi 5
Savo Milosevic, Serbíu 5
1996
Alan Shearer, Englandi 5
1992
Henrik Larsen, Danmörku 3
Karlheinz Riedle, Þýskalandi 3
Dennis Bergkamp, Hollandi 3
Tomas Brolin, Svíþjóð 3
1988
Marco Van Basten, Hollandi 5
1984
Michel Platini, Frakklandi 9
1980
Klaus Allofs, V-Þýskalandi 3
1976
Dieter Müller, V-Þýskalandi 4
1972
Gerd Müller, V-Þýskalandi 4
1968
Dragan Dzajic, Júgóslavíu 2
1964
Jesús María Pereda, Spáni 2
Ferenc Bene, Ungverjalandi 2
Dezso Novák, Ungverjalandi 2
1960
Francois Heutte, Frakklandi 2
Valentin Ivanov, Sovétríkjunum 2
Viktor Ponedelnik, Sovétríkjunum 2
Milan Galic, Júgóslavíu 2
Drazan Jerkovic, Júgóslavíu 2
20 fótbolti Helgin 25.-27. maí 2012