Fréttatíminn - 25.05.2012, Side 39
3ÍSLENSKT GRÆNMETISUMAR 2012
Grillaðir tómatar með gráðaosti og basil Jarðarberjatrifli með mascarpone
4 stk tómatar
1 pk gráðaostur
1 stk shallottulaukur
1 rif hvítlaukur
1 bréf basil
Salt og pipar
Álpappír
Skerið toppinn af tómötunum og
takið kjarnann úr þeim. Blandið
kjarnanum við gráðaostinn,
saxaðann shallottulaukinn og
hvítlaukinn. Rífið basilblöðin niður,
bætið þeim út í og kryddið með
salti og pipar. Fyllið tómatana með
fyllingunni og vefjið í álpappír.
Grillið eða ofnbakið í u.þ.b. 20 mín.
- HS
250 g mascarpone-ostur
250 ml rjómi
4 msk flórsykur, eða eftir smekk
1 tsk vanillusykur
3 msk jarðarberjasulta
1 pakki fingurkex (ladyfingers) eða
makkarónukökur
sætt sérrí eða appelsínusafi
250 g íslensk jarðarber
Mascarpone-osturinn tekinn úr kæli
og látinn mýkjast. Rjóminn stífþeyttur.
Mjúkum ostinum hrært saman við og
bragðbætt með flórsykri og vanillusykri
eftir smekk. Blöndunni skipt í tvennt
og jarðarberjasultu hrært saman
við helminginn. Fingurkexið brotið í
bita (ekki mulið) og sett í botninn á 6
ábætisglösum. Bleytt í með svolitlu
sérríi eða appelsínusafa. Nokkur
jarðarber söxuð og dreift yfir. Kúfaðri
skeið af jarðarberjakreminu jafnað
yfir og síðan er kúfuð skeið af hvíta
kreminu sett ofan á. Jarðarberin sem
eftir eru skorin í helminga og dreift yfir.
- NR
Ást og
rómantík
Jarðarber eru ekki eiginleg
ber heldur blómbotn
jarðarberjablómsins. Litlu örðurnar
sem líta út eins og fræ eru hin
eiginlegu aldin jarðarbersins. Þau
geyma hvert um sig lítið fræ. Líkt og
brómber og hindber eru jarðarber
samsettur ávöxtur.
Jarðarber hafa verið ræktuð
frá ómunatíð. Þau voru í miklu
uppáhaldi hjá rómverskum
keisurum og þegar Spánverjar
komu til Ameríku kynntust þeir
jarðarberjarækt indíána. Þar
voru berin smá og uxu víða villt.
Frönskum garðyrkjumönnum tókst
að rækta stór jarðarber snemma á
18. öld með því að blanda saman
ræktun evrópskra berja og berja frá
Chile. Jarðarber vaxa víða villt hér á
landi en þau eru smá og oft ná þau
ekki fullum þroska.
Jarðarber eru ræktuð í
gróðurhúsum hér á landi og koma
á markað í júní og eru fáanleg fram
í ágúst.
Þau eru rómuð fyrir bragðgæði og
ferskleika, enda stutt á markaðinn frá
ræktunarstað.
Oft er sagt að jarðarber séu tákn
ástar og rómantíkur. Þau eru
borin fram súkkulaðihjúpuð með
kampavíni þegar við á.
Næringargildi
Jarðarber eru mjög rík af C-vítamíni.
Í 100 gr. af ferskum jarðarberjum eru
aðeins 45 hitaeiningar. Margir telja
að jarðarber hafi góð áhrif á gigt.
Geymsla
Þegar velja á jarðarber er mikilvægt
að þau séu stinn, þurr og vel rauð.
Best er að fjarlægja ekki krónublöð
og stilk fyrr en rétt áður en berin
eru skoluð og þeirra er neytt. Ef
krónublöð og stilkur eru fjarlægð
áður en berin eru skoluð sjúga þau í
sig vatn og linast.
Þegar frysta á jarðarber er best
að skola þau undir rennandi köldu
vatni með krónublöðunum á og
frysta í bökkum. Þegar berin eru
gegnfrosin má pakka þeim í aðrar
umbúðir og frysta þannig.
Öll sú þekking sem almenningur hefur um hollustu grænmetis hefur skilað sér í aukinni
sölu á grænmeti undanfarin ár. Ég held
að sú þróun haldi áfram. Þekkingin
eykst og rannsóknum fjölgar sem sýna
fram á nauðsyn þess að fara að þeim
ráðleggingum sem starfsmenn Landlæknis
og heilsugæslu hafa sett fram“, segir
Þórhallur Bjarnason garðyrkjubóndi á
Laugalandi í Borgarfirði.
Garðyrkja hefur verið stunduð
á Laugalandi frá árinu 1942, en nú
reka Þórhallur og kona hans Erla
Gunnlaugsdóttir garðyrkjustöðina. Hjá
þeim er sumar allt árið og gúrkutíð, því
þau rækta eingöngur gúrkur í um 3600
fermetra gróðurhúsum. Gróðurhúsin eru
hituð upp með hveravatni og raflýst allt
árið. Uppskeran er um þrjú hundruð tonn
á ári.
Þórhallur segir að garðyrkjubændur
hafi stöðugt bætt við sig menntun í faginu
undanfarin ár og það hafi skilað sér í
betri vöru. Þá hafi verið leitað þekkingar
til ráðunauta erlendis og þannig hafi
garðyrkjan tekið miklum framförum
undanfarin ár.
Síðustu tíu ár hafa garðyrkjubændur lagt
áherslu á gott markaðsstarf. Grænmetið
er nú selt í endurvinnanlegum umbúðum
sérmerkt hverri garðyrkjustöð og með
íslensku fánaröndinni. Það fer því ekki
á milli mála að grænmetið er ræktað
hér á landi. „Þetta skapar mikið aðhald
hjá okkur ræktendum og hvetur okkur
til að skila alltaf ferskri og nýrri vöru á
markaðinn“, segir Þórhallur.
Sumar og gúrkutíð allt árið