Fréttatíminn - 25.05.2012, Page 42
6 ÍSLENSKT GRÆNMETISUMAR 2012
Vissir þú
... að paprikan er svo rík af C
-vítamíni að hún jafnast á við
fjórar appelsínur?
... að paprikur geymast best við
15° - 18°hita?
... að paprikur eru algjörlega
fitusnauðar og innihalda lítið af
kaloríum?
... að paprikan á að vera þétt
og föst í sér og með fallegum og
sterkum lit þegar hún er keypt?
... að prikan verður fyrst græn
áður en hún breytir um lit?
... að paprikan inniheldur B
vítamín?
... að paprikur eru til í
gulum, rauðum,grænum,
appelsínugulum, fjólubláum og
meira að segja brúnum lit?
Paprikuplantan er upprunnin í Mið-Ameríku og Suðaustur-Asíu. Spánverjar fluttu hana með sér frá Ameríku til
Evrópu á sautjándu öld. Það var svo ekki fyrr
en eftir síðari heimsstyrjöldina að hún barst til
norðanverðrar Evrópu. Orðið paprika er dregið
af latneska orðinu piper og gríska orðinu piperi,
sem þýðir pipar. Á hebresku er heitið paprika
og á japönsku papurika.
Lengi vel var paprika mest ræktuð í
Ungverjalandi, Búlgaríu, Rúmeníu og
Miðjarðarhafslöndunum en nú eru vinsældir
hennar það miklar að hún er ræktuð í
flestum löndum Evrópu, bæði utandyra og í
gróðurhúsum.
Paprikan er af náttskuggaætt (Solanaceae)
og því náskyld eggaldini, tómat og kartöflu. Í
öllum tegundum papriku er kapsikín, efnið sem
gefur þeim hið sterka og einkennandi bragð.
Það finnst einkum í fræjunum og himnum
innan í aldininu. Úr þessum hlutum aldinsins
í kryddpapriku er unnið svokallað chilli duft.
Himnurnar og fræin eru einnig nokkuð
bragðsterk í venjulegri papriku.
Paprika er samheiti yfir aldin tegundarinnar
capsicum annuum sem eru stór og mild á
bragðið. Til eru margar gerðir af papriku sem
eru ólíkar að stærð, lögun og lit en einnig er
talsverður munur á bragðinu. Plantan myndar
fyrst græn aldin sem síðan verða rauð, gul,
appelsínugul, hvít eða dökkfjólublá þegar þau
eru fullþroskuð. Rauð og gul paprika er því í
raun fullþroskuð græn paprika sem hefur skipt
um lit. Við meiri þroska eykst sætuinnihald
aldina en efnið kapsikín minnkar, þannig að
lituð aldin eru að jafnaði bragðbetri en þau
grænu. Sérstök sæt paprika er ræktuð hér á
landi og er mjög vinsæl. Hún er í laginu eins
og litla kryddpaprikan (chilli), en miklu stærri.
Kryddpaprika myndar minni aldin en verjuleg
paprika en er mun bragðsterkari.
NæriNgargildi
Best er að fá vítamín og steinefni úr fæðunni
og þá sérstaklega úr grænmeti og ávöxtum. Allt
grænmeti er hollt fyrir líkamann en dökkt og
litsterkt grænmeti er almennt næringarríkara en
það ljósara.
Paprika er mjög rík af C vítamíni. Í rauðum
aldinum er þrisvar sinnum meira C vítamín
en í appelsínum og í grænum aldinum tvöfalt
meira af C vítamíni en í appelsínum. Í papriku
er einnig mikið af A vítamíni, B vítamíni,
steinefnum og trefjum.
Grænar og gular paprikur eru mjög ríkar
af beta-karótíni sem umbreytist í A-vítamín
í líkamanum. Beta-karótín flokkast sem
andoxunarefni og ver frumur líkamans gegn
slæmum áhrifum súrefnis og mengunar. Einnig
er talið að andoxunarefni eins og beta-karótín
og C-vítamín minnki hættu á myndun
krabbameins í líkamanum auk þess að draga
úr oxun LDL kólesteróls í æðum sem hefur
bein áhrif á lægri tíðni kransæðasjúkdóma.
Í paprikku eru einnig svokölluð plöntuefni
(phytochemicals) sem flokkast ekki með
vítamínum en efla varnir líkamans og auka
C vítamín
sprengjan
Til eru
margar
gerðir af
papriku sem
eru ólíkar
að stærð,
lögun og lit
en einnig er
talsverður
munur á
bragðinu.
Paprika er
mjög rík af
C vítamíni.
Í rauðum
aldinum er
þrisvar sinnum
meira C
vítamín en í
appelsínum.
heilbrigði hans. Í papriku, eins og öllu grænmeti,
eru trefjar sem eru nauðsynlegar fyrir heilbrigði
meltingarkerfisins.
Paprikur má nota á óteljandi vegu. Hráar eru
þær notaðar í salöt, sem álegg ofan á brauð, með
ostum og kexi eða með ídýfu. Paprikur eru
einnig ljúfengar í kjöt- og fiskrétti, pastarétti,
grænmetisrétti, súpur, á grillið og fylltar t.d. með
kjöti og hrísgrjónum. Paprikur eru sérlega góðar
með tómötum og ólífuolíu og í ýmis konar
kryddlegi.
Paprika er hitaeiningasnauð, í 100g eru 36
hitaeiningar (kcal).
geymsla
Geymsluþol papriku er nokkuð
mismunandi, þó geymast græn
óþroskuð aldin best. Réttur
hiti er 8 – 12 °C. Papriku
hættir nokkuð til að tapa
vatni í þurru lofti. Hún
þolir illa að vera nálægt
vörum sem mynda etýlen
t.d.eplum, tómötum og
perum.
5 stk rauðar paprikur
2 stk rauðar kartöflur
1 vorlaukur
½ lítri vatn
Olífuolía
Hvítlaukssalt og pipar
Saxið grænmetið mjög
smátt setjið í pott og
brúnið í olíunni. Vatni
bætt út í. Sjóðið í 35
mínútur. Kryddið eftir
smekk. Maukið súpuna
með töfrasprota.
Upplögð hressing
þar sem þetta er
sannkölluð C vítamín
sprengja. - HS
6-8 íslenskar paprikur í
mismunandi litum
6 msk ólífuolía
1 hvítlauksgeiri, saxaður
smátt
nýmalaður pipar
salt
1-2 msk furuhnetur
nokkur basilíkublöð (má
sleppa)
Útigrill eða grillað í
ofninum, hitað og
paprikurnar grillaðar við
góðan hita, þar til hýðið er
allt orðið svart. Snúið öðru
hverju svo að þær grillist
jafnt. Þeim er svo stungið
í bréfpoka eða settar í skál
og plast breitt yfir. Látnar
standa í um 5 mínútur og
þá ætti að vera auðvelt
að fletta hýðinu af þeim.
Best er að gera þetta yfir
sigti svo að safinn fari ekki
til spillis. Skerið grilluðu
paprikurnar í breiðar
ræmur og raðið á disk.
Hrærið paprikusafanum
saman við ólífuolíu,
hvítlauk, pipar og salt og
hellið yfir paprikurnar.
Dreifið furuhnetum
yfir og skreytið með
basilíkublöðum sem skorin
hafa verið í ræmur. Berið
paprikurnar t.d. fram sem
forrétt eða sem meðlæti
með grilluðum mat. Einnig
má skera þær í mjórri
ræmur og nota þær og
olíuna út á pasta. - NR
Paprikusúpa Grillað paprikusalat
paprikur
Karrýkryddaðir
paprikubitar
2 stk paprika
1/2 tsk rifið engifer
2 msk karrýduft
1/2 tsk madras karrýduft
1 stk hvítlauksrif (fínt saxað)
Olía til steikingar
salt og cayennapipar
Skerið paprikuna í bita. Hitið olíu á
pönnu og létt brúnið smátt saxað
engiferið, karrýið og saxaðann
hvítlaukinn. Bætið paprikunni út á
og eldið í 1 mín. Smakkið til með
cayennapipar og salti.
- HS
Kuskus fylltar
paprikur
4 stórar paprikur, gjarna mismunandi
litar
3 msk ólífuolía
200 g kúskús
vatn eftir þörfum
safi úr 1 sítrónu
nýmalaður pipar
salt
150 g konfekttómatar (eða venjulegir)
2 vorlaukar
½ knippi steinselja, söxuð
1 ostarúlla með mango og jalape
Ofninn hitaður í 180°C. Paprikurnar
skornar í tvennt eftir endilöngu, stilkur,
kjarni og fræ fjarlægt og þær síðan
penslaðar með 1 msk af olíu og raðað
í eldfast mót. Kúskúsið sett í skál,
sjóðandi vatni hellt yfir samkvæmt
leiðbeiningum á umbúðum og látið
standa í um 5 mínútur. Þá er sítrónusafa,
2 msk af olíu, pipar og salti hrært
saman við. Tómatarnir, vorlaukurinn
og steinseljan söxuð smátt og blandað
saman við. Paprikurnar fylltar með
kúskúsblöndunni og síðan er ostarúllan
skorin í sneiðar og 1-2 sneiðar settar
ofan á hvern paprikuhelming. Sett í
ofninn og bakað í 20-25 mínútur. Borið
fram með grænu salati (t.d. grand-salati)
og góðu brauði.
- NR
Vi
g
fÚ
S
Bi
rg
iS
SO
n