Fréttatíminn - 25.05.2012, Side 58
50 heilsa Helgin 25.-27. maí 2012
Hollusta Mikilvægasta líffærið
tvær nýjar bragðtegundir!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
51
72
7
Ný
bragðteguNd- bÉarNaise
Ný
bragðteguNd- sítróNa og Karrí
Upplýsingar í síma 50 1010
1. ostrur
Ostrur eru ríkar af sínki og
járni sem hjálpa til við að
halda heilanum skörpum og
minninu í lagi. Sýnt hefur
verið fram á að sínk og járn
hjálpa til við einbeitni og að
muna upplýsingar. Skortur
á sínki og járni getur leitt
til minnistaps, slæmrar
einbeitingar sem og annarra
líkamlegra einkenna.
2. Heilkorn
Flestir vita hve mikilvæg
heilkorn eru fyrir melt-
inguna. Færri gera sér hins
vegar grein fyrir því hversu
veigamikil þau eru fyrir heil-
ann. Heilhveiti, hveitiklíð og
hveitikím er ríkt af fólínsýru
sem og brún hrísgrjón, hafr-
ar, bygg og fleiri korntegund-
ir. Þær eiga það sameiginlegt
að auka blóðflæði til heilans
sem eykur jafnframt heila-
starfsemina. Þær innihalda
einnig B6 vítamín, þíamín,
sem bætir minnið.
3. te
Gleymdu kaffinu á morgnana
– fáðu þér heldur tebolla.
Nýuppáhelt grænt eða svart
te er sérstaklega gott fyrir
heilastarfsemina því það er
fullt af sérstakri tegund af
andoxunarefni sem nefnist
á ensku catechins. Þessi an-
doxunarefni hjálpa til við að
halda heilanum skörpum en
hjálpa einnig heilanum við að
vinna gegn andlegri þreytu.
4. Egg
Heilinn skreppur saman þeg-
ar við eldumst en við getum
brugðist við þessari þróun
með því að borða egg. Það er
vegna þess að egg eru full af
B12 vítamínum og lesitíni.
B12 vítamín hjálpar gegn
heilarýrnun sem oft sést
meðal Alzheimersjúklinga.
5. túrmerik
Kryddaður matur er góður
fyrir heilann, ekki síst ef not-
uð eru austurlenskar krydd-
blöndur, svo sem karrí. Aðal-
innihaldið í þeim er kryddið
túrmerik sem inniheldur
curcumin sem er fullt af
andoxunarefnum sem sporna
gegn öldrun heilans.
6. Ber
Ef þú ert ekki mikið fyrir
grænmeti ertu vonandi
ávaxtamanneskja því ávextir,
og þá sérstaklega ber, eru
mjög góð fyrir heilaheilsuna.
Bláber eru, til að mynda,
þekkt fyrir sinn þátt í að
bæta hreyfigetu sem og
námsgetu enda eru þau sögð
bestu berin fyrir heilann.
Flest ber eru þó stútfull af
andoxunarefnum sem hægja
á öldrun og því góð fyrir
heilann. Ber eru ofurfæði og
innihalda fisetín og flavenoid
sem gagnast til að bæta
minni og hjálpar til við rifja
upp liðna viðburði.
Fæða sem heilar heilann
Við höfum öll heyrt orðatiltækið „þú ert það sem þú borðar“. Við vitum svo sem alveg nú orðið hvað
er hollt og hvað er óhollt fyrir líkamann – en hvað með fæðu sem er góð fyrir mikilvægasta líffærið –
heilann? Hér er topp-tíu listi yfir fæðutegundir sem þið ættuð að fá á heilann ef þið viljið heila heilann.
Næringarinnihald í einum bolla af hráum tómötum (180 g):tómatar
Næringarefni Hlutfall af
ráðlögðum dagsskammti
C-vítamín 38.1%
A-vítamín 29.9%
K-vítamín 17.7%
Kalíum 12.1%
Mólýbden 12%
Mangan 10.5%
Trefjar 8.6%
B6-vítamín 7%
Fólínsýra 6.7%
Kopar 5.5%
B3-vítamín 5.3%
Magnesíum 4.9%
E-vítamín 4.8%
B1-vítamín 4.6%
Fosfór 4.3%
Prótein 3.1%
Tryptófan 3.1%
Kólín 2.8%
Járn 2.7%
Hitaeiningar (32) 1%
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011