Fréttatíminn - 25.05.2012, Page 68
Helgin 25.-27. maí 201260 tíska
5
dagar
dress
„Ég er alltaf búin að ákveða
í hverju ég ætla að klæðast
kvöldinu áður,“ segir Anna Þóra
Alfreðsdóttir 24 ára sem er að
læra að verða tannlæknir. „Þegar
ég leggst upp í rúm á kvöldin þá
ákveð ég oftast í hverju ég ætla að
klæðast næsta dag. En auðvitað
getur það breyst. Það fer mikið
eftir skapi. Ég nota mjög mikið af
gömlum fötum, bæði sem ég finn
af mömmu minni og jafnvel ömmu,
og para það við eitthvað nýtt. Mér
finnst mjög gaman að dressa mig
upp og finnst mér bara allt ganga
betur fyrir sig ef ég er ánægð með
klæðarval dagsins.
Þar sem ég er með annan fótinn
í London kaupi ég eiginlega mín
öll föt þar. Secondhand-búðir eru
í miklu uppáhaldi hjá mér en svo
finnst mér alltaf gaman að kíkja í
þessar týpísku búðir eins og Zöru,
Topshop og Urban Outfitters.“
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Sjálfstæðinu
fylgir útgeislun
Ég get fullyrt það að við erum flest, ef ekki öll,
fórnarlömb tískunnar. Það er kannski ekkert
slæmt í sjálfu sér, því það sem slíkt hefur fylgt
mannkyninu frá örófi alda. Þó er mikilvægt að við
getum staðið með sjálfum okkur þegar kemur að
klæðavali og að við sköpum okkar eigin persónu-
lega stíl samhliða því að fylgja tískunni. Sjálfstæði
skipti máli. Okkur á að líða vel bæði í eigin skinni
sem og fötunum sem við veljum okkur á hverjum
degi. Því fötin okkar lýsa oft persónuleikanum.
Það þýðir lítið að kaupa sér föt sem samfélagið
segir okkur að fjárfesta í, ganga í þeim en líða ekki
vel í þeim klæðum. Því sjálfstæðinu fylgir útgeisl-
unin. Útgeislun viljum við flest hafa.
Að mínu mati hefur tískan aldrei verið eins einhæf
og einmitt núna í íslensku samfélagi. Það er eins
og hún hafi náð að sameina allskonar týpur, sem
áður voru hinar mestu andstæður og gert þær sem
eitt. Fjölbreytnin er því lágmarki og sjálfstæðið í
dvala um þessar mundir. Því miður.
Um þetta er vitaskuld ekki hægt að alhæfa, því
að sjálfsögðu er til fólk úti í samfélaginu sem er
alveg sama hvað öðrum finnst, fylgir ekki tískunni
heldur sínu innsæi. Vonandi fer slíkur hugsunar-
háttur að komast í tísku og að fjölbreytnin mun þá
aðeins færast í aukana.
Þriðjudagur
Skór: Gs Skór
Kjóll: Keyptur í
Osló 1994
Belti: Frá
mömmu
Taska: Vero
Moda
Mánudagur
Skór: Rauði
Krossinn
Buxur: Topshop
Jakki: Jofama
Klútur: Gjöf frá
ömmu
Miðvikudagur
Skór: Manía
Buxur: Topshop
Jakki: Topshop
Skyrta: Asos
Hanskar: Kooples
Fimmtudagur
Skór: Manía
Kjóll: Zara
Jaki: Einvera
Veski: Álaskinn
Föstudagur
Skór: Gamlir
af ömmu
Buxur: Tops-
hop
Bolur: frá
vinkonu
Skyrta:
Spútnik
Gleraugu:
Brik road
Blandar
gömlu og
nýju saman
Nýr söluvefur fyrir
íslenska tískuunnendur
Vefsíðan fataskipti.is er orðin vinsæl
meðal íslenskra tískuunnenda, en
þar má selja fötin og kaupa föt sem
og skipta á fötum við aðra seljendur.
Stofna má aðgang sér að kostnaðar-
lausu og því geta allir stofnað aðgang
og byrjað á sumarhreingerningu án
frekari tafar. Á vefsíðunni er hægt að
finna bæði kvenmanns- og karlmanns-
flíkur, barnafatnað og aðrar vörur sem
ekkert endilega tengjast klæðnaði.
Naglalakksfyrirtækið
Ruffain, sem þekkt
er fyrir að hanna
gervineglur með hálf-
mánamynstri, vinnur nú
að nýrri sumarlínu fyrir
snyrtivörufyrirtækið
MAC. Línan mun saman-
standa af fallegum
hálfmánamynstruðum
nöglum í öllum litum
og varalit í stíl og hefur
fyrirtækið þegar kynnt
hluta framleiðsl-
unnar. Línan mun vera
væntanleg á Banda-
ríkjamarkaði í lok júní
og mun hluti hennar
koma hingað til lands
nokkrum vikum síðar.
Verst selda tölublað
Vogue frá upphafi
Söngkonan Adele, sem hefur
selt í kringum 17 milljónir
platna, er ekki eins góð að
selja tímarit og koma tónlist á
framfæri. Söngkonan prýddi
forsíðu breska tímaritsins
Vogue síðastliðinn október
og reyndist það verst selda
tölublað Vogue tímaritsins
frá upphafi. Ritstýra tíma-
ritsins, Alexandra Shulman,
segir að tónlistarstjörnur hafi aldrei verið
vinsælar á forsíðu tímarita. „Þrátt fyrir að Adele sé
ein vinsælasta kona heims um þessar mundir virðist
sem fólk hefur ekki að áhuga að fjárfesta í tímariti
með henni á forsíðu.“
Ný naglalína frá Mac