Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.09.2012, Side 2

Fréttatíminn - 28.09.2012, Side 2
Smurostar við öll tækifæri ms.is ... ný bragðtegund H VÍ TA H Ú SI Ð / SÍ A - 1 1- 05 09 Ný bragðtegund með pizzakryddi Ný viðbót í ... ... baksturinn ... ofnréinn ... brauðréinn ... súpuna eða á hrökkbrauðið Fjáröflun leikskóla fór í dúkkur á deildirnar „Fallega gert,“ segir Haraldur Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, en Sjónarhóll – félag fyrir sérstök börn til betra lífs, hefur gefið öllum leikskólum landsins dúkkuna Engilráð og brosbókina um hana. Það gerði Sjónarhóll fyrir peningana sem Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, færði félaginu með ávísun að andvirði 363 þúsund krónur. Féð gáfu leikskólakennarar sveitarfélögum. Það var afrakstur styrktartónleika sem leikskólakennarar stóðu fyrir í fyrrasumar í aðdraganda boðaðs verkfalls fyrir sveitarfélögin svo þau gætu bætt bág kjör þeirra. „Þetta er komið góðan hring,“ segir formaðurinn. - gag S njólaug Ósk Björnsdóttir er 15 ára og hefur verið lögð í einelti frá því hún flutti til Egilsstaða frá Húsavík þegar hún var á tíunda ári. Hún birti mynd af sér á Facebook- síðu sinni með tilkynningunni: „þó ég sé feit, ljót og strákaleg hvað á ég að gera í þessu? ég á allavega ekki að vera lögð í einelti vegna þess að einelti lagar ekkert sorry ákvað að koma þessu hingað en ef ykkur“ finnst þetta asnalegt þá má ykkur finnast það mér er alveg sama. :´( plízz hættiði að leggja mig í einelti er komin með nóg. :´( “ Snjólaug segist hafa séð mynd hjá stúlku á Facebook sem gerði álíka. „Ég ákvað að sýna þessari stelpu og öllum hvernig mér líður,“ segir Snjólaug. „Hún gaf mér kjark til þess,“ bætir hún við. Snjólaug hefur fengið mjög jákvæð viðbrögð við birtingu yfirlýsingar sinnar. „Ég sé núna að það eru miklu fleiri sem standa með mér en sem leggja mig í einelti,“ segir hún. Aðspurð segist hún ekki hafa fengið afsök- unarbeiðni frá neinum þeirra sem lögðu hana í einelti, fyrrverandi skólabræðrum sínum. Hún myndi hins vegar gjarnan vilja það. „Þeir eru ekki einu sinni búnir að „læka“ myndina eða deila henni. Þeir þora það ekki því þeir vita hvað þeir gerðu og þeir vita hvernig mér líður,“ segir Snjólaug. Hún er ekki sú eina sem gripið hefur til þessa ráðs. Agnes Birgisdóttir setti eftirfarandi status á Facebook-síðu sína: „Ákvað að segja mína skoðun eins og þessar hugrökku stelpur á undar mér. Þótt að ég sé feit og ljót, bólu- grafin og asnaleg, þýðir ekki að þið þurfið að vera að tala um það! Kannski vitið þið ekki hvernig þetta er fyrir okkur sem þurfa að fara í skólann á hverjum degi, vitandi af ykkur að baktala mann. Sumir eru voða nice, en aðrir ekki. Einelti er slæmt! Hvernig getið þið ekki fattað það?! [...].“ Þórkatla, sem segist á Facebook vera dóttir foreldra sinna, þakkar Snjólaugu fyrir að hafa veitt sér innblástur til að koma fram og segja frá einelti í sinn garð. „Ég var lögð í einelti og mér leið hræðilega með sjálfa mig. Ég var nið- urbrotin, sjálfstraustið í mínus og fannst eins og það væri eitthvað að mér, að þetta væri mér að kenna [...] Orð særa, það er bara þannig. [...] Berjumst gegn einelti öll sem eitt!“ Helga Guðný er einnig komin með nóg: „Þótt ég sé feit, með latt auga, bólur, klæði mig fáránlega að ykkar mati og sé með skrýtið nef þá á ég ekki skilið að þið leggið mig í einelti. [...] Ég veit að bróðir minn er einhverf- ur en þið þurfið ekki að stríða mér útaf því í nánast hvert einasta skipti sem þið hittið mig. Hann ákvað ekkert að fæðast svona og hann getur líka alveg verið yndislegur þið þekkið hann ekkert. Svo hættið þessu bara. Ég á ekki heldur að þurfa að berjast í gegnum hvern einasta dag og fara með kvíðahnút í maganum í skólann vegna þess að ég sé hrædd um að þið rakkið mig niður í skólanum [...] Þótt ég brosi þarf ekki allt að vera yndislegt! Einelti er ógeðslegt og enginn vill verða fyrir því!“ Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is  EinElti ÞolEndur EinEltiS Stíga fram og vEita hvEr öðrum kjark Fórnarlömb eineltis stíga fram og segja stopp Orð særa, það er bara þannig. Í það minnsta fimm stúlkur á aldrinum 14- 17 ára hafa nýverið stigið fram og hver um sig mótmælt því opinberlega á samskiptamiðlum að vera lagðar í einelti. Skilaboð þeirra allra eru áþekk: „Hættið að leggja mig í einelti!“ Snjólaug Ósk Þórkatla Helga Guðný  forSEtakjör frEStur forSEtaframbjóðEnda til að Skila uppgjöri að rEnna út Ari Trausti sá eini sem hefur skilað uppgjöri Höskuldur Daði Magnússon hdm@ frettatiminn.is Ari Trausti Guðmundsson er eini frambjóð- andinn til embættis forseta Íslands í sumar sem skilað hefur uppgjöri vegna kosninga- baráttunnar til Ríkisendurskoðunar. Þetta staðfesti Lárus Ögmundsson, yfirlögfræðingur Ríkisendurskoðunar, í samtali við Fréttatím- ann. Útdráttur úr uppgjöri Ara Trausta hefur verið birtur á vef Ríkisendurskoðunar. Þar kemur fram að kostnaður við framboðið nam alls 1.789.167 krónum. Þar af voru framlög lögaðila 785 þúsund krónur, framlög 37 ein- staklinga námu 516.500 krónum en Ari Trausti lagði sjálfur fram 487.668 krónur. Í útdrættinum er getið um þau fyrirtæki sem styrktu framboð Ara Trausta. Hæsta framlagið þar nemur 200 þúsund krónum. Mesta athygli vekur þó framlag upp á 180 þúsund krónur frá Vesturkoti ehf. Það er félag um rekstur hrossa- ræktarbúsins Vesturkots á Skeiðum. Vesturkot er í eigu Finns Ingólfssonar, fyrrum ráðherra og Seðlabankastjóra, og eiginkonu hans og er það skráð á einkahlutafélagið Fikt, samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins í mars á þessu ári. Frambjóðendum til embættis forseta Íslands ber að skila yfirlýsingu og eftir atvikum upp- gjöri til Ríkisendurskoðunar fyrir 30. septem- ber 2012. Að sögn Lárusar varða brot á þeim reglum sektum og jafnvel fangelsi eftir alvar- leika brotanna. Ari Trausti Guðmundsson hefur skilað uppgjöri vegna forsetafram- boðs síns, einn frambjóðenda. Hann þáði styrk upp á 180 þúsund krónur af félagi í eigu Finns Ingólfssonar. Nærri 90 milljónir í hinar ýmsu borgarhátíðir Borgin styrkir Blúshátíð í Reykjavík, Bók- menntahátíðina, Food and Fun og Myrka músíkdaga um tvær milljónir króna í ár og næstu tvö; samtals sex fyrir hverja hátíð. Hönnunarmars um fimm milljónir á ári til 2014. Tónlistarhátíðina Iceland Airwaves um tíu milljónir á ári næstu þrjú, með þessu. Og RIFF kvikmynda- hátíðina um níu milljónir í síðasta sinn auk þess að greiða 120 þúsund króna greiðslu fyrir setu fulltrúa borgarinnar í nefnd hátíðarinnar. Þá fær Jazzhátíð í Reykjavík þrjár milljónir í ár og næstu tvö, samtals níu. Samtals eru þetta rúmar 87 milljónir til þessara rótgrónu hátíða í borginni sem tryggir þær árin 2012, 2013 og 2014. Jóhanna ætlar að hætta Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra tilkynnti um í gær að hún ætli að hætta þátttöku í stjórn- málum að loknu þessu kjörtímabili. Hún mun því ekki gefa kost á sér í næstu alþingiskosningum sem fram fara í vor. Í bréfi sem hún sendi flokksmön- num Samfylkingarinnar í gær segir hún: „Þessi tæplega fjögur ár hafa ve- rið átakamikil og þung í skauti fyrir mig eins og alla þjóðina en einnig gefandi, ekki síst að undanförnu þegar árangur erfiðisins hefur sífellt komið skýrar í ljós. [...] En allt hefur sinn tíma, líka minn tími í stjórnmálum sem er orðinn ansi langur og viðburðaríkur.“ 2 fréttir Helgin 28.-30. september 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.