Fréttatíminn - 28.09.2012, Page 24
Hagkvæmir heimilisbílar
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
Nú getur þú kíkt á ergo.is og kynnt þér yfir 50 nýjar tegundir grænna
bíla og kosti grænna bílalána.
1Blönduð eyðsla á hverja 100 km
2Rekstur í eitt ár á meðalstórum fólksbíl m.v. að bensínverð sé 243 kr., dísilverð 243 kr. og akstur á ári 20.000 km
Árgerð 20052
sjálfskiptur · bensín
Árgerð 20122
beinskiptur · dísil
Sparnaður
á ári
228.420 kr.Eyðsla1 218.700 kr.
4,5 l
447.120 kr.
9,2 l
- =
24.480 kr.Bifreiðagjöld 9.760 kr.34.240 kr. - =
2.040 kgCO2 útblástur 2.380 kg
119 g/km
4.420 kg
221 g/km
- =
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
3
4
2
3
leiðast út í glæpi. Rannsóknir sýna
að snemmtæk íhlutun og rétt þjón-
usta dregur úr líkunum á því að
fólk með raskanir lendi í vandræð-
um síðar á lífsleiðinni.
Haukur Einarsson, sálfræð-
ingur hjá Fangelsismálstofnun,
segir að raskanir á borð við ADHD
og fíkniraskanir séu algengari
hjá föngum en almennt gerist. Í
nýlegri rannsókn sem gerð var á
íslenskum föngum og ADHD kom
í ljós að rúmlega helmingur fanga
hafði reynst vera með ADHD í
bernsku. Sex af hverjum tíu þeirra
reyndust enn með einkenni ADHD
á fullorðinsárum.
Vildi fyrst ekki sérskóla
Ásta segist hafa verið því mótfallin
til að byrja með að senda son sinn í
Brúarskóla. „Ég hélt að hann fengi
fullnægjandi þjónustu í almennum
skóla en svo reyndist ekki vera,“
segir hún. Sonur Ástu er í grein-
ingarferli en hefur þegar fengið
greiningu á skyldum röskunum.
Skólar fara fram á greiningar til að
veita börnum tilskilinn stuðning
en greiningarferlið getur tekið
mörg ár og á meðan fær barnið
ekki þá þjónustu sem það hefur
þörf fyrir. „Allt að tveggja ára bið
er eftir forgreiningu á einhverfu
og svo tekur við enn einn biðlist-
inn til að fá fullnustugreiningu,“
segir hún.
Hún segir að nýr bekkjarkenn-
ari hafi meðal annars stuðlað að
því að sonur hennar einangraðist
félagslega. Það hafi kennarinn
gert með því að útiloka drenginn
til að mynda frá því að fara með
bekknum í ferðalag. „Honum var
þó ekki sagt frá því og var fullur
tilhlökkunar að fara í ferðalög með
vinum sínum. Ég fékk síðan símtal
á föstudegi eftir skóla um að hann
væri ekki velkominn í ferðalagið
á mánudeginum. Skólinn bar við
manneklu en ég veit að það var fyr-
irsláttur. Auk þess hefði ég getað
farið með honum sjálf ef ég hefði
fengið lengri fyrirvara,“ segir hún.
„Það er til einn og einn skóli
með starfsfólk með sérþekkingu
en langstærsti hluti kennara hefur
ekki þekkingu á því hvernig takast
á við börn með hegðunarerfiðleika
og raskanir,“ segir Ásta.
Þurfti að berjast í leikskóla
Karlotta og Þorgerður taka undir
þetta. Þorgerður er mjög sátt með
þá þjónustu sem drengurinn henn-
ar er að fá í skóla. Hún ákvað samt
sem áður að senda hann í skóla í
öðru hverfi þar sem hún vissi að
börnum með einhverfugreiningu
væri vel sinnt með þeim hætti
sem henni hugnaðist fyrir barnið
sitt. Hún leggur mikla áherslu á
atferlisþjálfun sem hún segir að
skili miklum árangri sé henni beitt
markvisst og ákveðið.
„Skóli drengsins hefur komið
fyllilega til móts við þarfir hans og
er ég mjög ánægð með þá þjónustu
sem ég hef fengið. Við lentum hins
vegar í miklum erfiðleikum í leik-
skóla og mættum ótal veggjum
þegar við börðumst fyrir því að
hann fengi atferlisþjálfun,“ segir
hún.
Karlotta nefnir dæmi af sínum
syni sem tók ósjaldan einhverf-
uköst í skólastofunni. „Kennarinn
var sífellt að reyna að halda honum
ADHD er alþjóð-
leg skammstöfun
sem stendur fyrir
Attention Deficit
Hyperactivity
Disorder eða
athyglisbrestur og
ofvirkni.
Niðurstöður
rannsókna hér-
lendis og erlendis
sýna að um 7,5
prósent barna
greinast með
athyglisbrest og
ofvirkni. Telja má
að sex þúsund
börn á Íslandi séu
því með ADHD.
Orsakir athyglis-
brests eru líf-
fræðilegar og stafa
af truflun boðefna
í miðtaugakerfi og
heila. Rannsóknir
benda ennfremur
til þess að þessi
röskun gangi í
erfðir. Rannsóknir
benda til þess að
erfðir skýri um
75-95% einkenna
ADHD.
Börn og ung-
lingar með ADHD
eiga erfitt upp-
dráttar bæði náms-
lega og félagslega.
Um 50-70% þeirra
eru áfram með
einkenni athyglis-
brests og ofvirkni
sem fullorðin og
um 30% þeirra
þróa með sér al-
varleg sálfélagsleg
vandamál og ánetj-
ast vímuefnum.
Rannsóknir sýna
ennfremur fram á
að um helmingur
fanga á Íslandi
uppfyllir eða hefur
á lífsleiðinni upp-
fyllt greiningarvið-
mið um ADHD.
Um ADHD
Nemendur með sérþarfir er að finna í nær öllum bekkjum í grunnskólum landsins.
Foreldrar sem standa að stofnun Daumakerfisins telja kennara ekki alla í stakk
búna til þess að veita börnunum viðunandi þjónustu þrátt fyrir góðan vilja. Ljós-
mynd/NordicPhotos/GettyIMages
Um 700 nemendur í
Reykjavík eru með grein-
ingar um alvarlega fötlun
og röskun í almennum
grunnskólum borgarinnar
en það er 5 prósent nem-
enda. Allir umsjónarkenn-
arar og kennarar sinna
þeim börnum sem stunda
nám í grunnskólunum
og eru með greiningar.
Nemendur með sérþarfir
eru í öllum grunnskólum
borgarinnar og í flestum
bekkjardeildum.
Nemendur með greiningar í öllum bekkjum
Þessar greiningar skiptast þannig:
ADHD og skyldar raskanir 35.2 prósent
Einhverfa og einhverfurófsraskanir 29
prósent
Alvarleg málhömlun 10.3 prósent
Skynhamlanir (Heyrnar- og sjónskerðing)
3.8 prósent
Hreyfihamlanir 3.8 prósent
Þroskahamlanir 15.1 prósent
Langveikir nemendur og nemendur með
greiningar sem ekki falla undir vinnu-
reglur um úthlutun 2.8 prósent
24 viðtal Helgin 28.-30. september 2012